Fréttablaðið - 14.11.2020, Síða 8
Þjónusta TM er
hugsuð fyrir þig
Hjá TM getur þú fengið tjón bætt á 60 sekúndum, keypt
tryggingu upp í sófa að kvöldi til eða framkvæmt kaskóskoðun
í gegnum appið. Þú getur líka nálgast alla ráðgjöf og þjónustu
á öruggan máta með rafrænum skilríkjum í netspjalli.
Hugsum í framtíð
UMHVERFISMÁL Hlutfall eldislaxa
í hópi hrygningarfiska í Fífustaða
dalsá hefur aldrei verið hærra og er
langt yfir þeim opinberu viðmið
unarmörkum sem segja til um hvort
erfðablöndun spilli stofngerð.
Þetta segir Jóhannes Sturlaugsson
líffræðingur í aðsendri grein á vef
Fréttablaðsins, frettabladid.is, í dag.
Jóhannes gerði nú í október
rannsókn á laxastofnum í ám við
Arnarfjörð, sjötta árið í röð. Hann
segir aukna og viðvarandi erfða
blöndun hjá villtum laxastofni sýna
að sjókvíaeldi vegi illilega að tilvist
hans og muni með sama áframhaldi
hafa í för með sér óafturkræfar
breytingar.
„Aldrei hafa f leiri eldislaxar
veiðst í íslenskri veiðiá og aldrei
hefur svo hátt hlutfall eldislaxa
verið staðfest í hópi hrygningar
laxa í veiðiá hérlendis (15,4 pró
sent) á þessari öld. Í þessum hópi
voru f lestir eldislaxanna langt
komnir í hrygningu sinni: Veiddir
þar sem þeir voru hrygnandi, par
aðir við villta laxa af stofni árinnar,“
segir meðal annars í grein Jóhann
esar, um niðurstöður varðandi Fífu
staðadalsá.
„Með slíkri erfðablöndun er
aðlögun laxastofna að umhverfi
sínu í ferskvatni og sjó, sem staðið
hefur yfir allt upp í þúsundir ára,
kastað fyrir róða og fyrir vikið
minnkar lífshæfni hjá löxum stofns
ins,“ segir Jóhannes við Fréttablað
ið. Hann bætir við að eldisfiskur
sleppi alltaf úr sjókvíaeldi. „Þetta
er ekki spurning um hvort, heldur
í hve miklum mæli.“
Þá segir Jóhannes erfðablöndun
sannarlega ekki vera einu hættuna
sem villta laxastofninum stafi af
sjókvíaeldi, því sníkjudýrið laxalús
sem berist úr því eldi á laxaseiði
sem eru á sjógöngu, skerði veru
lega lífslíkur laxanna enn frekar, í
tilfelli villtra laxa úr ám í nágrenni
við sjókvíaeldissvæði.
Jóhannes segir niðurstöður rann
sóknarinnar sýna að áhættumat
Hafrannsóknastofnunar á erfða
blöndun eldislaxa og villtra laxa, sé
meingallað. Það taki engan veginn á
vandamáli laxastofna í ám sem eru
næst sjókvíaeldissvæðunum.
„Áhættumatið er fyrst og fremst
byggt á laxastofnum sem eru nytj
aðir í ákveðnum mæli, eins og það
skipti máli að laxastofnar séu af
ákveðinni stærð svo laxar þeirra
eigi tilverurétt,“ segir Jóhannes.
„Það er ekki hlutverk neinna sér
fræðinga, og allra síst líffræðinga,
að ákveða hvaða stofnar skuli lifa og
hvaða stofnar skuli deyja, á grund
velli einhverra reglustikuviðmiða
sem þeir útbúa með vísun í fjölda
laxa eða veiðinytjar af laxastofnum.
Laxastofnar eiga tilverurétt, án til
lits til þess hve stórir þeir eru og án
tillits til þess hvort þeir eru nytjaðir
af mönnum nú eða síðar.“
Jóhannes segir að ítrekað hafi
verið bent á alvarlega galla áhættu
matsins á öllum stigum stjórnsýsl
unnar varðandi villtu laxastofnana,
án þess að þeir væru lagfærðir þegar
matið var uppfært fyrr á þessu ári.
„Það er ekkert gagn að þessu
áhættumati gagnvart þessum smáu
laxastofnum sem eru næst sjókvía
eldissvæðunum. Ástandið hefur
verið óviðunandi og versnar nú
enn,“ segir Jóhannes.
„Það er gríðarlegt áhyggjuefni
að Hafrannsóknastofnun sé alls
staðar í kringum borðið – allt frá
því að ákveða magnið sem á að ala
á tilteknum svæðum, hvar það skuli
alið, hvernig það skuli rannsakað
og í þokkabót eru þeir umsagnar
aðilar um allt er málið varðar, þar
á meðal kvartanir er varða þeirra
eigin starfshætti.“
arnartomas@frettabladid.is
Aukin ógn af fiskeldi fyrir laxastofna
Aukin erfðablöndun vegna sjókvíaeldis vegur illilega að villtum laxi, segir líffræðingur. Aðkoma Hafrannsóknastofnunar að málinu
sé áhyggjuefni og áhættumat hennar meingallað. Einn af hverjum sex hrygningarlöxum í Fífudalsá í haust reyndist vera eldisfiskur.
Aflagaður bakuggi hrygnu úr röðum eldislaxa úr í Fífustaðadalsá í október 2020. MYND/JÓHANNES STURLAUGSSON
Það er ekki hlut-
verk neinna sér-
fræðinga, og allra síst
líffræðinga, að ákveða
hvaða stofnar skuli lifa og
hvaða stofnar
skuli deyja.
Jóhannes
Sturlaugsson
líffræðingur
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð