Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 16
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Samskipti
stirðna og
léttvæg mál,
sem auðvelt
er að leysa,
hlaupa í
harðan hnút.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
auglýsir eftir umsóknum um styrki á
málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs og
landbúnaðarráðherra.
Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna sem efla
atvinnulíf og nýsköpun.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2020.
Umsóknir berist rafrænt í gegnum
eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Allar nánari upplýsingar á anr.is
Styrkir til verkefna
og viðburða
Heimsþing kvenleiðtoga fór fram í Reykjavík og á veraldarvefnum í vikunni. Á þinginu kom fram að fjölgun kvenna í leiðtogastöðum
undanfarin ár hefði verið svo hæg, að héldi svo fram
sem horfir taki 200 ár að ná jöfnum hlutföllum á
þjóðþingum. Silvana Koch-Mehrin, stofnandi Sam-
taka þingkvenna, sagði eina ástæðu hægagangsins
vera uppgang popúlismans, svo sem í Bandaríkj-
unum í forsetatíð Trump, í Brasilíu undir Bolsonaro, á
Filippseyjum undir Duterte og víða í Austur-Evrópu.
„Í popúlisma ríkir hugmyndafræði hins sterka karl-
manns,“ sagði Silvana. „Að svona eigi leiðtogi að líta
út.“
Hinn sterki karlmaður er þó ekki eina táknmyndin
sem komst í fréttirnar í vikunni. Stórhneyksli skók á
dögunum hverfið sem ég bý í hér í London. Ástæðan
var pínulítil, allsber kona.
Í Bretlandi eru fleiri styttur af körlum sem heita
John, en styttur af konum. Undanfarin ár hafa þar-
lendar konur reynt að breyta því.
Árið 2018 var í fyrsta sinn reist stytta af konu á
Parliament Square í London. Styttan var af Millicent
Fawcett, baráttukonu fyrir jafnrétti kynjanna, sem
lék lykilhlutverk í að tryggja konum í Bretlandi kosn-
ingarétt. Fyrir voru á Parliament Square ellefu styttur
af körlum úr stjórnmálasögunni.
Í Wales er sem stendur ekki að finna eina einustu
styttu af nafngreindri konu, ókonungborinni, sem
uppi var í alvörunni. Á þessu ári mun rísa í miðbæ
Cardiff stytta af Betty Campbell, fyrsta svarta skóla-
stjóra Wales, en hún lést árið 2017.
Síðastliðinn þriðjudag stóð til að hér í Islington-
hverfi yrði næsti styttu-stórsigurinn unninn. En
öðruvísi fór en á horfðist.
Í heilan áratug hefur hópur íbúa staðið fyrir fjár-
söfnun svo reisa mætti styttu af Mary Wollstonecraft.
Wollstonecraft er gjarnan sögð móðir femínismans.
Hún fæddist í London árið 1759. Fjölskylda hennar
var vel stæð en drykkfelldur og of beldisfullur faðir
hennar glopraði niður fjölskylduauðnum. Woll-
stone craft hlaut enga formlega menntun. Hún horfði
hins vegar öfundaraugum upp á bróður sinn ganga
menntaveginn og ákvað að mennta sig sjálf. Aðeins 25
ára opnaði hún stúlknaskóla í Newington Green, þar
sem reisa átti styttuna af henni.
Styttan var afhjúpuð í beinni útsendingu í gegnum
rafrænt streymi vegna COVID-samkomutakmarkana.
Samstundis runnu tvær grímur á ákafa áhorfendur.
Styttan var ekki af Mary Wollstonecraft heldur
örsmárri, ónafngreindri, kviknakinni konu, með
mjótt mitti og sperrt brjóst. Gagnrýnin lét ekki á sér
standa. „Ekkert heiðrar móður femínismans betur en
sexí, allsber skvísa,“ tísti Twitter. „Hversu margir af
okkar fremstu karlkynsrithöfundum hafa verið heiðr-
aðir, allsberir á styttuformi? Maður minnist þess ekki
að hafa séð Charles Dickens á sprellanum.“
Við og átjánda öldin
Mary Wollstonecraft lést aðeins 38 ára að aldri í kjöl-
far barnsburðar. Dóttir hennar lifði, en hún var Mary
Shelley, höfundur Frankenstein. Í einu frægasta verki
Wollstonecraft, Til varnar réttindum konunnar, færði
hún rök fyrir því að konur væru vitsmunalegir jafn-
ingjar karla og hvatti til þess að konur yrðu metnar af
andlegu atgervi en ekki eftir útliti.
Aðeins tíu prósent af styttum í London eru af
konum. Flestar eru þær af nafnlausum líkneskjum,
léttklæddum englum, mæðrum, friði, réttlæti, hálf-
nöktum skvísum.
Táknmyndin um hinn sterka karlmann er ekki eina
táknmyndin sem ógnar framgangi kvenna. Styttan
af Mary Wollstonecraft er af táknmyndinni sem
Wollstonecraft barðist svo hatrammlega gegn; kon-
unni sem er ekkert nema ytra lag, yfirborð, nafnlaus
og abstrakt brons Barbie. 223 árum eftir andlát „fyrsta
femínistans“ virðast skilaboð Mary Woll stonecraft
eiga jafnbrýnt erindi við samtímann og þau áttu við
samtíð hennar, átjándu öldina.
Dickens á sprellanum
Það er varla til hræða hér á þessu landi sem ekki er orðin örþreytt og úttauguð á langvinnum slagsmálum við faraldurinn undanfarna mánuði. Þau hafa staðið fast að heilli meðgöngulengd með vonum og væntingum, vonbrigðum og bakslögum.
Líf fólks hér á landi hefur verið undir linnulitlum
takmörkunum þennan tíma allan og svo er um
heimsbyggðina alla.
Á grundvelli sóttvarnalaga hafa höft og hömlur
verið lagðar á daglegt líf fólks, samskipti takmörkuð,
fjöldatakmarkanir, tilmæli um takmarkaðar sam-
göngur, heimsóknabann á sjúkrastofnanir og dvalar-
heimili, aldraðir og sjúkir einangra sig, ótölulegum
fjölda aðgerða og meðferða á heilbrigðisstofnunum
landsins hefur verið frestað eða þær slegnar af. Skóla-
hald er með gerbreyttu sniði. Grímuskylda í skólum
og verslunum. Kvíði og ótti grefur um sig og svo má
lengi telja.
Daglegt líf er allt úr lagi gengið.
Í upphafi var almennt litið svo á að um afmarkað,
stutt tímabil væri að ræða og við gætum um frjálst
höfuð strokið þegar voraði. Það auðveldaði að sætta
sig við þær skorður sem daglegu lífi voru settar.
Svo hallaði sumri og syrta fór í álinn á ný. Enn
dundu yfir þunglyndisleg skilaboð og ákvarðanir
sóttvarnayfirvalda og veturinn fram undan. Þetta
vissi ekki á gott.
Bera tók á fréttum af fólki sem missti tökin á tilver-
unni. Tilkynntum heimilisofbeldismálum fjölgaði,
vísbendingar kviknuðu um aukna neyslu áfengis og
augljóst var af fréttum að þráðurinn tók að styttast.
Við vorum að þreytast á ástandinu og sumir við það
að gefast upp. Fluttar voru og eru fréttir af fólki sem
missir tök á tilverunni og rasar út á almannafæri,
sjálfum sér og sínum til minnkunar, sem bendir til
þverrandi þolinmæði og uppurins umburðarlyndis.
Fólk sem vinnur nú dögum saman heima finn ur
ekki sömu hvíldina heima fyrir. Heimili og vinnu stað-
ur runnin saman í eitt. Samskipti stirðna og létt væg
mál, sem auðvelt er að leysa, hlaupa í harðan hnút.
Vissulega vöktu fréttir af bóluefni von í líðandi
viku. Ekki bara að virkni þess virðist með besta móti
og framleiðsluferlar þess ættu að geta afkastað nægu
magni bóluefnis. Heldur, og miklu frekar, að Íslend-
ingum er, vegna samstarfs Evrópuríkja, tryggður
aðgangur að því.
Helsta óvissan er þá hvenær hægt sé að hefja hér
bólusetningu og þar með kveða niður faraldurinn
fyrir fullt og allt og lífið komist í samt lag á nýjaleik.
Nú virðist allt benda til að ekki sé áhugi á að rýna
sóttvarnaaðgerðir í miðjum klíðum. Það hefði þó
verið tilefni til. En þegar faraldurinn verður að baki
og litið verður í baksýnisspegilinn, verður ekki hjá því
komist. Þá verður betur komið í ljós hverjar aukaverk-
anir þeirra voru. Fjárhagslega tjónið verð ur þá auð-
veldlegar mælt. Hitt tjónið, sem varð á lífi og heilsu,
andlegri og líkamlegri, verður erfiðara að meta. Og nú
hefur verið ákveðið að slaka til á ný. Það varð minna
en allir þráðu. Á meðan vonum við að þráðurinn
styttist ekki um of.
Þráðurinn
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN