Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2020, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 14.11.2020, Qupperneq 28
Ég hafði aldrei komið til Íslands! En fyrir ári síðan var ég í Færeyjum. Ég ferðast mjög mikið og hef komið til Noregs og Svíþjóðar en aldrei hingað. Í Færeyjum hugsaði ég að þær hlytu að vera alveg eins og Ísland, en það kom á daginn að það er alls ekki þannig! Það er stórkost­ legur munur,“ segir hann og hlær. Ástfanginn af Íslandi „Þetta er tiltölulega einfalt með Ísland. Ég hef farið hringinn í kringum hnöttinn tvisvar, að mestu leyti mun sunnar en hér, vegna þess að ég er Skandinavíu­ maður og við leitum í hlýjuna. En ég verð að viðurkenna, og hérna er ég að vera algjörlega hreinskilinn, að þetta er fallegasta land sem ég hef séð á ævinni. Ég er algjörlega dolfallinn.“ Ég hef komið til Noregs og í fyrsta sinn sem ég var þar fannst mér það stórkostlegt. Því ég ferðast alltaf bara suður. Og svo í Færeyj­ um hugsaði ég að þetta gæti ekki orðið fallegra, en hér er ég. Ég er algjörlega ástfanginn,“ segir hann. „Við erum ekki með neitt af þessu magnaða landslagi í Danmörku.“ Thomas fer með hlutverk mótor­ hjólamanns í Ófærð 3 og segir að samstarfið með Baltasar Kormáki, leikstjóra og framleiðanda, hafi gengið vonum framar. Aðspurður segist hann þó  varast að segja nokkuð til um ágæti þess efnis sem hann komi fram í þar til eftir að það er komið út, en er þó fullviss um að Íslendingar verði ekki illa sviknir. „Ég sá fyrstu seríuna og mér fannst hún virkilega góð. Ég hef ekki séð númer tvö en þessi fyrsta var alveg frábær. Svo það var magnað að geta komið hingað og hlutverkið hentaði mér vel, því í frítíma mínum keyri ég mikið af mótorhjólum. Ég hlakkaði til hvers dags, því alltaf fékk ég að prófa nýtt hjól og það var algjörlega klikkað að fá að keyra um á Siglufirði og á þjóðveginum á hjólinu,“ segir Tho­ mas. Hann segir veðrið hafa verið misgott en það hafi ekki haft áhrif á tökur. Frábært að fá tækifæri í Ófærð 3 Thomas var eins og áður segir hér í fimm vikur við tökur. Hann kemur svo hingað aftur síðar í nóvember til að klára. „Maður er auðvitað orðinn vanur þessu brasi. Á síðasta ári var ég til dæmis í Finnlandi og hafði aldrei komið þangað áður. Þannig að ég er vanur þessu, en kærastan mín er kannski ekki eins vön þessu,“ segir hann og hlær. „Ég hafði aldrei unnið með Balt­ asar áður, en það var frábært. Ég hafði hitt hann nokkrum sinnum á kvikmyndahátíðum. Ég hitti hann í Frakklandi til dæmis í Cannes, og á Celebration Fest í kringum Jagten,“ segir Thomas, sem fór með eitt hlutverkanna í þeirri vinsælu mynd. Það hafi ekki reynst erfið ákvörðun að slá til og leika í Ófærð 3. „Ég hafði aldrei komið hingað en heyrt mikið um landið. Svo snerist þetta um mótorhjól og ég elska mótorhjól, svo hvernig gat ég sagt nei?“ segir hann. „Ég hef líka verið að vinna rosalega mikið síðasta árið. Svo kemur þessi vírus upp og ég fæ smá frí, en þegar þetta boð kom ákvað ég bara að slá til,“ segir Thom as. Hann segist aðspurð­ ur vel geta hugsað sér að leika meira í íslensku efni. Leikarar aðskildir með litakóða Thomas viðurkennir að það hafi verið skrítið að taka upp þátt á tímum heimsfaraldurs. „Þetta er mjög skrítið, því það þarf að aðskilja okkur eftir litakóðuðum svæðum og við þurfum auðvitað að hafa grímur öllum stundum, nema þegar við tökum upp, þá gengur það ekki,“ segir hann léttur í bragði. Við tíu manna samkomubann stjórn­ valda þurfi að hugsa hlutina upp á nýtt, sem auðveldara reynist við tökur utandyra. Var alveg jafnlétt að komast í karakt- er, þrátt fyrir COVID? „Já!“ segir hann. „Í sjónvarpsþætt­ inum er auðvitað enginn heims­ faraldur svo þar látum við bara eins og ekkert hafi í skorist. En heims­ faraldurinn hefur auðvitað haft áhrif á verkefnastöðuna hjá mér, og mikil bið er á f lestum verkefnum,“ segir Thomas. Gaman sé þó að geta glatt fólk með þátttöku í einhverju eins og sjónvarpsþáttum. Norrænar kvikmyndir í vexti „Þessi sería verður mjög góð, svo fólk mun hafa eitthvað til að horfa á, á þessum skrítnu tímum,“ segir hann. Hann segir Íslendinga geta verið stolta af Ófærð, serían sýni að íslensk kvikmyndagerð sé í vexti. Thomas segir að svo virðist vera sem kvik­ myndagerð sé í vexti á Norðurlönd­ um almennt og bendir á að nýjasta kvikmynd sín, Druk, þar sem hann fer með eitt af aðalhlutverkunum ásamt Mads Mikkelsen, hafi fengið prýðisviðtökur á heimsvísu. Myndinni er leikstýrt af Thomas Winterberg, hinum sama og leik­ stýrði þeim Thomas og Mads í Jag­ ten árið 2010. Thomas segir að þeir hafi verið vinir um árabil. „Þetta er rosalega góð mynd. Ég hef unnið með Thomas Winterberg í þrjátíu ár. Festen og Jagten voru stórar, en þessi virðist ætla að verða enn stærri og það á tíma heimsfaraldurs og það gleður mig mikið,“ segir hann. Druk fjallar um hóp menntaskólakennara sem athuga hvort það hafi teljandi áhrif á hamingju sína að hafa 0,5% áfengi í blóðinu öllum stundum. „Við kynntumst fyrir þrjátíu árum þegar Thomas var á fjórða ári í leik­ stjórnarskóla Kaupmannahafnar. Ég var að klára leiklistarskóla og var ekki með neina vinnu. Ég setti á fót lítið leikrit með félaga mínum, sem hét Lorte og það var algjörlega rosalegt. Það var ofbeldi og kynlíf í í þessu litla, svæsna leikriti. Tom sá það og við gerðum saman litla mynd sem hét „One Last Round,“ segir Thomas. Hann segir frumsýningu myndarinnar hafa mótað feril sinn síðan. Leitar sömu tilfinningar „Við fundum það bara á áhorfendum í kvikmyndaskólanum á frumsýn­ ingunni að þeim fannst þetta rosa­ lega góð mynd. Ég gleymi aldrei þessari tilfinningu og fyrir okkur var þetta magnað, því þetta var fyrsta myndin okkar. Og ég reyni alltaf að upplifa þessa tilfinningu aftur við frumsýningu hverrar myndar en hef aldrei upplifað hana aftur,“ segir Thomas. „Druk var að vinna til verðlauna á Spáni og þetta er mögnuð mynd, en fyrsta myndin, það var stærsta stundin. Ég mun aldrei upplifa slíkt aftur, enda vorum við svo ungir og áttuðum okkur þá á því hvers við vorum megnugir,“ segir hann léttur í lund. Thomas segist aldrei hafa orðið þreyttur á leiklistinni. Hann hafi upplifað róstusama æsku og reynt margt fyrir sér, meðal annars starfað sem bakari, glergerðar­ maður, smiður, unnið í verksmiðju og starfað fyrir danska herinn. „Og ég gerði það sama í eitt og hálft ár. Vann hjá trésmiðum og í tíu ár áður en ég fór að leika prófaði ég allt og er líka lærður glersmiður,“ segir hann. Hann segir leiklistina hafa verið áhugamál frekar en vinnu, en hann kláraði leiklistarskólann 27 ára. „Svo ég gerði margt en frá því ég var ellefu ára tók ég þátt í áhugaleikhúsi, en ég vissi bara ekki að ég gæti unnið fyrir mér með því.“ Hann segir virði starfsins mun meira virði en peninga. „Maður legg­ ur auðvitað mikið á sig í vinnunni, en þegar maður sér viðbrögðin og upplifir tilfinningar fólks, þá er það eitthvað sem verður ekki metið til fjár,“ segir Thomas. EN ÉG VERÐ AÐ VIÐUR- KENNA, OG HÉRNA ER ÉG AÐ VERA ALGJÖRLEGA HREINSKILINN, AÐ ÞETTA ER FALLEGASTA LAND SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÆVINNI. ÉG ER ALGJÖRLEGA DOLFALL- INN. Vill upplifa tilfinninguna aftur Danski stórleikarinn Thomas Bo Larsen, sem þekktastur er fyrir leik sinn í Jagten, segist algjörlega dolfallinn yfir Íslandi. Hann var staddur hér á dögunum við tökur á Ófærð 3. Hann telur íslenska kvikmyndagerð eiga mikið inni. Thomas fer með hlutverk í kvikmyndinni Druk sem fengið hefur frábæra dóma og fjallar um kennara í áhugaverðri tilraunastarfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Thomas ásamt Mads Mikkelsen við frumsýningu kvikmyndarinnar Jagten, sem þeir báðir léku í, á kvikmyndahátíðinni í Cannes. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Oddur Ævar Gunnarsson odduraevar@frettabladid.is 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.