Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 38

Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 38
Af þeim veiðitólum og stóru dýra- beinum sem fundust í kumlinu má draga sterkar ályktanir um að einstaklingur 6 hafi því verið stolt veiðikló. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Þessi forsenda hefur ósjaldan, en þó æ sjaldnar sem betur fer, verið notuð sem veik rök fyrir því að konan sé því eðli gædd að sjá um heimilið á meðan karlinum sé það eðlislægt að fara út á vinnumarkaðinn. Nýlegar fornleifarannsóknir sýna þó fram á að þessi gamla staðhæfing um að veiði/safnara-samfélög fornaldar hafi verið verkefnaskipt á grund- velli kyns er ekki endilega eins rétt og margir vilja meina. Þessi saga hefst árið 2018 í Andesfjöllunum á meðan á fornleifauppgreftri stendur við Wilamaya Patjxa, á svæði þar sem Perú er nú. Eða raunar hefst þessi saga mun fyrr því um er að ræða leifar frá því fyrir um 9.000 árum. Á svæðinu eru kuml og grafir og ein af gröfunum inniheldur beinagrind einstaklings, sem kallaður er einstaklingur 6. Þeim einstaklingi hafði á sínum tíma verið komið fyrir í gröf sinni ásamt veiðitólum fyrir stóra bráð líkt og örvaroddum úr steini, beittum steinflísum (líklega til slátrunar), einhverju sem líkist steinhníf úr steinflís, feldsköfu og brúnjárn- steini sem var líklega notaður til að lita dýrahúðir. Algengt var í hinum forna heimi að grafa hina látnu ásamt hlutum sem þeir notuðu í lifanda lífi. Þannig voru stríðsmenn grafnir með vopnum sínum og stjórn- endur með dýrmætum eigum sínum til þess að sýna fram á vel- megun og völd. Af þeim veiðitólum og stóru dýrabeinum sem fundust í kumlinu að Wilamaya Patjxa má draga sterkar ályktanir um að einstaklingur 6 hafi því verið stolt veiðikló. Ekki var allt sem sýndist Að sögn Randy Haas, aðstoðar- kennara við mannfræðideild Háskólans í Kaliforníu, fann teymið margar grafir á svæðinu en sú sem vakti hvað mestan áhuga og undrun var einmitt þessi einstakl- ingur númer 6. Einn í teyminu, James Watson frá Háskólanum í Arizona, sem er sérfræðingur í að greina bein, grunaði nefnilega sterklega að einstaklingurinn væri kvenkyns. Þessu segir vefmiðillinn IFLScience frá í grein sem birtist á dögunum. Með því að greina prótínið í tönnum einstaklingsins var hægt að staðfesta þennan grun og kom þá í ljós að um var að ræða 17-19 ára konu. Hins vegar er ekki mikið hægt að staðhæfa út frá einni gröf og er spurningin því sú hvort um eitt einstakt tilfelli sé að ræða eða hvort kvenkyns veiðimenn hafi verið algengir í Ameríku til forna. Með þessa uppgötvun í huga héldu fræðingarnir áfram og endurskoðuðu fjölda fornra veiði- mannagrafa í Ameríku. Skoðaði teymið áður útgefnar skýrslur um 429 einstaklinga sem grafnir höfðu verið á yfir 100 svæðum vítt og breitt um Suður- og Norður- Ameríku á tímabili sem telur frá lokum pleistósen-tímabilsins og til upphafs hólósen. Af öllum þeim einstaklingum sem grafnir voru með veiðitól til þess að veiða stóra bráð voru minnst 16 af þeim karlkyns og ellefu kvenkyns. Þessar upplýs- ingar benda til þess að kvenkyns veiðimenn hafi verið einhvers staðar á milli 30-50% af öllum veiðimönnum. Þessar uppgötvanir setja því allstórt spurningarmerki við gömlu mýtuna um að í fornum samfélögum manna hafi karlarnir séð um að veiða og konurnar verið safnarar. Gögnin stangast á við fyrir- framgefnar hugmyndir Haas útskýrir að þetta hafi komið honum mjög svo á óvart. „Ég vann samkvæmt þeirri staðhæfingu, eins og flestir gera, að veiðimenn í veiði/safnara-samfélögum hafi aðallega verið karlkyns. Því hafði ég búist við því að flest kuml með veiðitólum tengdust helst karlkyns einstaklingum. Þetta var hins vegar ekki niðurstaðan. Veiðitól fundust vissulega í gröfum karlkyns einstaklinga en þau voru jafnlíkleg til þess að finnast hjá konum einnig. Ég held ekki að það hafi verið rangt að vinna út frá upphaflegu tilgátunni. Verkaskipting á grundvelli kyns í nauðþurftarsamfélögum er mjög algeng í nýlegri veiði/safnara-sam- félögum. En fornleifafræðingar lærðu fyrir löngu að endurskoða allar forsendur og fyrirframgefnar hugmyndir eins ört og mögulegt er þegar kemur að fornleifagögnum. Og gögnin í þessu tilfelli stangast greinilega á við forskriftina.“ Fleiri dæmi eru um að forn- leifafræðin gefi tilefni til þess að endurskoða gamlar hugmyndir um kynjaskiptingu verka í fornöld. Fyrr á árinu grófu vísindamenn upp flokk af fornum skýþverskum konum í Rússlandi sem grafnar voru fyrir 2.000 árum ásamt tylftum vopna og skrautlegra höfuðfata, sem bendir til þess að þær hafi verið stríðsmenn. Konurnar veiddu einnig Sú gamla mýta er lífseig að í fornum veiði- og safnarasamfélögum hafi karlar verið veiðimenn og konur séð um söfnun berja, róta og ýmiss annars matarkyns til að draga fram lífið á sléttunum. Nýleg gögn benda til þess að vítt og breitt um Ameríku til forna hafi verið nokkuð algengt að konur sinntu veiði líkt og karlar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY. JÓLAHREINGERNING Sérblaðið Jólahreingerningar kemur út þann 18. nóvember. Blaðið mun fylgja Markaðnum inn í 500 stærstu fyrirtæki landsins ásamt því að koma út í tæplega 80.000 eintökum um allt land. Blaðamenn munu fjalla um heimilis- og fyrirtækjaþrif í þessu blaði. Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við: Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.