Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 92

Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 92
Listaverkið Konráð á ferð og flugi og félagar 429 „Jæja þá, tvær nýjar sudoku gátur,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að leysa sudoku gátur að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa þær,“ bætti hún við. „Allt í lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg til í keppni. „Við glímum öll við þær báðar og þá kemur í ljós hversu klár þú ert orðin,“ sagði hún. „En ég vara ykkur við, ég er orðin mjög klár,“ sagði Kata montin. “Við getum byrjað á þessari léttari,“ sagði Lísaloppa. „Þeirri léttari fyrst,“ sagði Kata hneyksluð. „Ekki ég, ég byrja á þeirri erfiðari fyrst,“ sagði hún og glotti. „Ég yrði fljótari en þið bæði til samans þótt þær væru báðar þungar.“ Kata var orðin ansi klár. En skildi hún vera svona klár? Heldur þú að þú g etir ley st þessar sudoku gátur h raðar e n Kata? ? ? ? Bryndís Ólína Skúladóttir  er níu ára. Hún á heima í Reykjanesbæ. Ertu kölluð báðum nöfnunum, Bryndís Ólína? Já, fullorðnir kalla mig oftast báðum nöfnunum en vinir mínir kalla mig Bryndísi, Bibbu eða Bíbí. Í hvaða skóla ertu og hver er uppá- haldsnámsgreinin þín? Skólinn minn heitir Myllubakkaskóli. Uppáhaldsnámsgreinarnar mínar eru stærðfræði, íþróttir og tón­ mennt. Ertu í íþróttum eða tónlist utan skólans? Já ég er að læra að spila á píanó og æfi dans hjá Danskompaníi. Hvað var best við sumarið í sumar? Að hitta ömmur mínar og afa, að leika og dansa, vera með fjölskyldunni minni. Svo fór ég á Hvalasafnið á Húsavík og heim­ sótti Jaja Ding Dong barinn – það var gaman. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í tómstundum heima? Ég nota mikinn tíma í að teygja, setja fótinn minn beint upp í loft og æfa dansinn minn. Ég er oft að föndra, lita, lesa, skrifa sögur og tala við fjöl­ sk ylduna. Mér finnst líka mjög gaman að hringja í ömmur og afa. Áttu þér uppá- haldstónlist – eða tónlistar- f l y t j a n d a ? Já, ég hlusta mest á lög sem ég get dansað við. Stóri bróðir minn, Guðjón Steinn, er mjög f lottur tónlistar­ maður, hann spilar á saxófón og klarí­ nett. Guðjón spilar oft með Má Gunnarssyni, sem mér finnst líka vera frá­ bær tónlistarmaður. Móðursystir mín, Steinunn Björg, syngur mjög vel og svo er Ágústa Eva frænka mín líka rosalega mikil fyrirmynd. Það er mjög mikil tónlist hér á heimilinu alla daga. En sjónvarpsefni? Ég horfi mikið á Friends, myndirnar um Svamp Sveinsson eru skemmtilegar og svo er Stundin okkar á RÚV mjög spennandi þennan veturinn. Hvað er það geggjaðasta sem þú hefur gert? Það magnaðasta sem ég hef gert er að fara með allri stórfjölskyldunni minni frá Hof­ felli til Tenerife í tvær vikur. Við vorum tuttugu og tvö (tuttugu og líka tveir bumbubúar). Þetta var ótrúlega gaman og ég væri svo til í að fara aftur í svona ferð, það var svo gaman að eiga tíma með allri fjölskyldunni minni í sólinni. Manstu ef tir einhverju fyndnu sem hefur komið fyrir þig? Já, í sumar þá var ég hjá ömmu og afa í Svínafelli og það var þyrla á túninu fyrir framan húsið. Ég og mamma vorum að skoða þyrluna og svo sagði einn af mönnunum: „Viltu koma upp í?“ og ég sagði auðvitað já og fékk að setjast í framsætið á þyrlunni, það var rosalega gaman. Hvað langar þig mest að verða þegar þú verður stór? Fræg tónlistarstjarna, dansari eða kennari í fyrsta bekk, öðrum bekk eða fimmta bekk.  Nota mikinn tíma í að teygja Löppin upp í loft nefnist þessi mynd af henni Bryndísi Ólínu sem getur vel hugsað sér að verða dansari þegar hún verður stór. MYND/ODDGEIR ÉG OG MAMMA VORUM AÐ SKOÐA ÞYRLUNA OG SVO SAGÐI EINN AF MÖNN- UNUM: „VILTU KOMA UPP Í?“ OG ÉG SAGÐI AUÐVITAÐ JÁ OG FÉKK AÐ SETJAST Í FRAMSÆTIÐ. Krakkar! Þessi fallega mynd á að minna ykkur á að senda Fréttablaðinu teikningar eða málaðar myndir til birtingar á krakkasíðunni. Sumar mega alveg minna okkur á jólin sem óðum nálgast. Best væri að fá myndirnar sendar í tölvu á netfangið gun@ frettabladid.is. Ef teknar eru ljósmyndir af listaverkunum heima þá þurfa þær að vera í góðri upplausn. Myndir - meiri myndir! 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.