Fjölrit RALA - 15.11.1981, Blaðsíða 35
29 -
Heybindivél, IH 425
Baggavagn, Egebjerg
" Röke
SúgþurrkunarblSsari JS 15
Traktor, Same Taurus 60
Traktortengi, Accord
S.I.S véladeiid "
Röskva h.f. "
Glóbus h.f. ólokið
Jón Sigurgeirsson lokið
Orkutækni h.f. "
Hamar h.f. ólokið
Markmiðið með vélaprófunum er, eins og kunnugt er, að
reyna verkhæfni og almennt notagildi nýrra og endurbættra
búvéla við íslenskar aðstæður. Prófun fer fram að beiðni
framleiðenda eða umboðsmanns hans. Opinberar prófunarskýrslur
koma aðeins um þau tæki, sem talin eru henta við íslenskar
aðstæður og framleiðandi hyggst hafa á boðstólum. Oft er það
svo, að um þriðjungur þeirra tækja, sem bútæknideild hefur til
reynslu, er ekki settur á markað hérlendis, vegna þess að sýnt
þykir, að þau eiga ekki erindi til bænda. Þá kemur einnig oft
upp sú staða, að endurbæta eða breyta þarf tæki til að aðlaga
það Islenskum aðstæðum. Er þá haft samband við framleiðendur
og gerðar tillögur um breytingar. Að öllum jafnaði eru slíkar
ábendingar teknar til greina, ef ætlunin er að hafa tækin á
markaði hérlendis.
2. Jarðyrkjutækni.
Gerðar voru frekari tilraunir með niðurfellingu mykju með
tæki því, sem keypt var 1979 á vegum bútæknideildar og
véladeildar S.I.S. Sett var niður tilraun að Möðruvöllum
sumarið 1980 og eru tilraunaliðir hennar að mestu í samræmi
við tilraun þá, sem hafin var á Hvanneyri 1978 og framkvæmd er
í samvlnnu við tilraunastöð bændaskólans. Uppskera I þeirri
tilraun var mæld 1980 og eru niðurstöður í eftirfarandi töflu:
Uppskera hkg/ha þurrefni
áborið niðurfellt
fiburðarmagn á ha. 1980 meðalt.2 ára 1980 meðalt.2
100 t mykja, 0 kg N 20,8 28,0 25,1 35,0
100 " " 40 " tt 36,1 40,8 47,5 55,0
100 " " 80 " tl 53,7 54,0 56,6 59,3
Grunnáburður var 25 kg P/ha og 60 kg K/ha.
Niðurstöður tilraunarinnar benda til þess, að auka megi
nýtingu búfjáráburðar að mun með þvl að fella hann niður I
jarðveginn.
Tilraun með endurvinnslu túna á bænum Krossnesi I
Alftaneshreppi var fram haldið I samvinnu við sömu aðila og
fyrr. Uppskerumæling var gerð sumarið 1980 og ennfremur voru
gerðar mælingar á grunnvatnsstöðu.
Tafla sýnir niðurstöður uppskerumælinga: