Fjölrit RALA - 15.11.1981, Side 52

Fjölrit RALA - 15.11.1981, Side 52
46 reglugerðar um innflutnlng plantna hefur því enn verið slegið á frest eða þar til hin nýju lög hafa verið samþykkt. Fylgst var með innflutningi og ákvarðað um vafatilfelli. 2. Eftirlit með ræktun kartöfluútsæðis. Parin var ein skoðunarferð um stofnaræktunarsvæðin við Eyjafjörð dagana 11.-13- ágúst. Að mati stofnunarinnar eru gæði kartöfluútsæðis hér á landi ekki nægjanleg, og þvl hefur hún farið af stað með verkefni, er stuðla eiga að bættum gæðum og verður nánar sagt frá þeim hér á eftir. 3. Myndun heilbrigðra kartöflustofna og varðveisla þeirra. Þetta verkefni er 1 þremur liðum, auk þess tengjast því tvö önnur verkefni, sótthreinsun kartöfluútsæðis og Islenskar kartöflur. a) Þrlr bændur innan stofnræktunarinnar eru aðstoðaðir við að koma upp heilbrigðari stofnum með úrvali og sótthreinsun. Haustið 1980 eru þessir stofnar orðnir um 5 tonn af afbrigðunum Bintje, Gullauga, Helgu og Rauðum Islenskum. b) Hjá RALA hafa verið myndaðir græðlingastofnar af fyrrnefndum fjórum afbrigðum. Með þessum stofnum ætti að vera mögulegt að draga verulega úr bakterlu- og sveppasmiti, en ekki veirusmiti. Haustið 1980 voru þessir stofnar orðnir á bilinu 70-120 kg, af hverju afbrigði. c) Merlstemstofnar. Með þvl að einangra vaxtarpunkt (merlstem) plöntunnar og rækta I tilraunaglasi má fá fram veirulausa og fullkomlega smitlausa plöntu. I upphafi ársins voru 9 vlrushreinar plöntur af Rauðum íslenskum og 5 plöntur af Helgu tilbúnar til fjölgunar. Hver planta var látin mynda stofn og haldið aðskildum. Fjölgað var með græðlingum og smáplöntum plantað út I Þormóðsdal og á Korpu. Um haustið fékkst hnýðisuppskera frá 700 g og upp I 6 kg, allt eftir stofnum. 4. Sótthreinsun kartöfluútsæðis. Haustið 1980 var sótthreinsað með thiabendazol innan stofnræktarinnar. Bæði var úðað með dælu og duftað. Stefnt er að þvl að fá efnið skráð hér á landi árið 1981 og að fá hentugan útbúnað til að setja á upptökuvélar.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.