Fjölrit RALA - 15.10.2000, Page 14

Fjölrit RALA - 15.10.2000, Page 14
hreinsun á skurðbrettum, hnífum og skálum úr blandara var notað kalt vatn án sápu og síðan var skolað með allt að því sjóðandi afjónuðu vatni. Blankur úr aíjónuðu vatni var útbúinn daglega og var vatnið látið koma í snertingu við sömu áhöld og sýnin. Með þessu móti var hægt að íylgjast með því hvort sýnin yrðu fýrir mengun. Eftirfarandi upplýsingar voru skráðar í sérstaka sýna- vinnslubók: heiti sýnis, vinnsluaðferð, magn, fjöldi hlutasýna, ffamleiðandi eða uppruni, magn afskurðar, dagsetning sýnatöku, dagsetning ffamleiðslu og „best fyrir“ dagsetning. Við blöndun á flestum sýnum var notaður blandari (Tecator 1094) með skál og hnífum úr stáli. Mjölsýnum var þó blandað í plastpokum. Við snyrtingu á sýnum var tekið mið af venjulegum vinnu- brögðum neytenda. Grænmeti var skolað og snyrt, vömb var tekin af slátri. Kartöflur voru þó ekki skrældar en þær vom skolaðar rækilega. Þegar safnsýni var búið til úr hlutasýnum var þess gætt að magn allra hlutasýna væri svipað. Hvert safnsýni var að blöndun lokinni sett i tíu 100 ml plastósir sem komið var fyrir í ffysti. Vatnsmæling var gerð samdægurs á ófrosnu, blönduðu sýni. Matreiðsla Nokkur sýnanna voru matreidd og var í flestum tilfellum byggt á bókinni Við matreiðum eftir Önnu Gísladóttur og Bryndísi Steinþórsdóttur (3. útgáfa, ísafoldarprentsmiðja 1992). Eingöngu stálpottar og stálpönnur voru notaðar. Við steikingu var notuð sojaolía. Upplýsingar um matreiðsluna eru hér að neðan. l.tafla. Lýsing á matreiðslu sýna. Fæðutegund Lýsing Nautagúllas, steikt Við matreiðum, 3. útg., bls. 123. Frávik: Ekki var notað hveiti, pipar, laukur, gulrætur, lárviðarlauf, merian og súputeningar. Nautahakk, steikt 1,5 kg hakk og 3 msk olía. Hakkið var steikt í 5 mín á pönnu. Nautahakksréttur Uppskrift: 400 g nautahakk, 1 msk sojaolía, 100 g laukur, 1 tsk salt, 1 dós niðursoðnir tómatar. (Enginn pipar). Steikt i 5 mín og hitað síðan í 55 mín við vægan hita. Lambaframhryggjarsneiðar, steiktar Við matreiðum, 3. útg., bls. 113, Pönnusteiking I. 34 g salt í 3,5 kg kjöt. Steikt í 5 mín. Lambaframhryggjarsneiðar, soðnar Við matreiðum, 3. útg., bls. 102. Suðutími 45 mín. 17 g salt pr. kg kjöt. Lambalifur, steikt Við matreiðum, 3. útg., bls. 135. Pipar var ekki notaður. Grænar baunir, frystar, soðnar Suðutími var 2 min. 7 g salt í 1,5 kg baunir og 1,3 kg vatn. Kartöflur (Gullauga), soðnar Kartöflur með hýði voru soðnar í 30 mín. Þyngd kartaflna og vatns var u.þ.b. 1:1. 12

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.