Fjölrit RALA - 15.10.2000, Side 25

Fjölrit RALA - 15.10.2000, Side 25
Samkvæmt mælingum Holden o.fl. (1991) var selen í bandarísku franskbrauði að meðaltali 29 gg/lOOg. Að meðaltali mældist mest í franskbrauði í Boston (46 gg Se/lOOg) en minnst í Los Angeles (17 gg Se/lOOg). Eins og sjá má í 5. töflu hefur væntanlega verið notað amerískt hveiti í íslensku brauðin þegar sýnataka fór fram. Hráefni í íslensk brauð koma ýmisst frá Evrópu eða Ameríku og því getur selen í þeim verið mjög breytilegt. Joð Niðurstöður joðmælinga eru í 4. töflu. Joð hafði ekki verið mælt áður í íslenskum landbúnaðarafurðum öðrum en mjólkurvörum. Mikið joð í eggjum vekur sérstaka athygli. Mjólkurvörur voru almennt joðríkar eins og við má búast. Fastir ostar og mysuostar reyndust mjög joðríkir. Gera má ráð fyrir að mjólkurduft sé enn joðríkara og vísbendingu um notkun þess má sjá í niðurstöðum fyrir ýmsar unnar kjötvörur og kex. Lambalifur var sérlega joðrík og þá vekur ekki síður athygli að lifrarkæfa er enn joðríkari en lambalifur. Þetta bendir sterklega til þess að mjög mikið joð sé í íslenskri svínalifur. Þá er meira joð í svínakjöti og kjúklingum en nautakjöti og lambakjöti. Fiskimjöl er notað í fóður svína, kjúklinga og varphæna og því er líklegt að joð í fiskimjölinu komi fram í þessum afurðum. Sjávarafurðir eru besta joðuppsprettan. Fiskur getur innihaldið 30-300 pg joð/lOOg og því er umtalsvert magn af joði í fiskimjöli þótt eitthvað tapist við framleiðslu þess. 6. tafla. Niðurstöður mælinga á joði í íslenskri neyslumjólk. Uppruni Tími sýnatöku pgjoð/lOOg Heimild Reykjavík Jan. til maí 1963 21,6(12,1-33,0) n=8 Alexander o.fl. 1963 Suðurland 20.03.1991 11 n=l Guðjón Atli Auðunsson, Rf Eviafjörður 20.03.1991 22 n=l Guðjón Atli Auðunsson, Rf Eyjafjörður Sept. 1991 8,5 n=l Úttekt á íslenskri mjólk 1991 Austurland Sept. 1991 3,4 n=l Úttekt á íslenskri mjólk 1991 Suðurland Nóv. 1995 12,7 n= 1 (10 hlutasýni) Þessi rannsókn Vesturland Nóv. 1995 9,7 n=l (10 hlutasýni) Þessi rannsókn Joð í mjólk Joð í neyslumjólk var 9,7-12,7 pg/100g. Eldri mæliniðurstöður eru sýndar í 6. töflu en þar koma fram breytileg gildi og þau elstu eru hæst. Árið 1963 mældist styrkur joðs í íslenskri mjólk þrefalt hærri en í skoskri mjólk (Alexander o.fl. 1964) og var það skýrt með notkun fiskimjöls á Islandi. Eðlileg gildi fýrir joð í mjólk eru 0,5-30 pg/lOOg og meðaltöl eru yfirleitt undir 10 pg/lOOg (Inemational Dairy Federation 1982). íslenka mjólkin er því innan þeirra marka sem talin eru eðlileg. Notkun fiskimjöls í fóður íslenskra mjólkurkúa hefur verið breytileg á síðustu áratugum og því hefur joð í neyslumjólkinni einnig verið breytilegt. Hafa þarf í huga að veruleg árstíðasveifla getur verið fyrir joð í mjólk þar sem fóðrið er breytilegt og því er ekki víst að takmarkaður fjöldi mælinga sem gerður hefur verið á íslenskri mjólk gefi fullnægjandi mynd. 23

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.