Fjölrit RALA - 15.10.2000, Qupperneq 54

Fjölrit RALA - 15.10.2000, Qupperneq 54
Koparskortur hefur þó einnig verið staðfestur í íslensku sauðfé sem ekki gengur í fjöru. Koparsúlfat hefur í einstaka tilfellum verið gefið. Samspil efna Þekkt er að jám, mólýbden, brennisteinn, sink og kadmín geta dregið úr nýtingu kopars hjá sauðfé (Lee o.fl. 1999). Athyglin hefur mest beinst að samspili mólybdens og kopars. Fái skepnan mikið mólybden getur það leitt til koparskorts. Samspil jáms og kopars hefur verið minna rannsakað en Grace og Lee (1990) töldu að jám í fóðri geti haft mikil áhrif á koparbúskap sauðfjár. Þeir gáfu sauðfé jámsúlfat og leiddi það til þess að styrkur kopars í lifur lækkaði umtalsvert. Aftur á móti mældist ekki breyting á kopar í lifur þegar jám var gefið í jarðvegi (Grace o.fl. 1996). I annarri tilraun var sýnt fram á að mólybdenríkur jarðvegur dró úr nýtingu kopars hjá sauðfé (Suttle o.fl. 1975). Grasbítar fá alltaf eitthvað af jarðvegi með því grasi sem bitið er og áfok jarðvegs verður til þess að auka við þann jarðveg sem skepnur fá. Með jarðvegi geta borist efni sem draga úr nýtingu kopars. Mikið jám er í íslenskum jarðvegi og er mögulegt að það dragi úr nýtingu kopars hjá sauðfé. Ekki er greinilegt samband milli jáms og kopars í íslensku lifmnum svo ekki verður um þetta fúllyrt. Lítið er vitað um mólybden við íslenskar aðstæður en vel er mögulegt að það hafi áhrif á nýtingu kopars í íslenskum lömbum. Koparbúskapur Jórturdýr hafa þá sérstöðu að geta bundið sérlega mikinn kopar í lifúr en jafnframt hafa þau lítinn hæfileika til að losa sig við koparinn og getur verið sérlega mikill kopar í lifúr fullorðinna dýra (Davis og Mertz 1987). Magn kopars í lifúr fer eftir dýrategund, aldri, kopar í fóðri og samspili kopars og annarra efna. Sauðfé bindur hlutfallslega meiri kopar í lifúr en nautgripir og getur styrkur kopars í lifúr sauðfjár orðið hár. Talsverður munur getur verið milli einstaklinga og er hann ekki allur vegna mismunandi magns kopars í fóðri heldur geta erfðir átt þátt í mismunandi losun kopars. Styrk kopars í lifúr er hægt að nota sem vísbendingu um koparbúskap dýrsins. Sauðfé er meðal dýrategunda sem hafa mestan kopar í lifúr og em venjuleg gildi talin vera á bilinu 30-120 mg/kg ferskvigt eða 100-400 mg/kg þurrefni (Davis og Mertz 1987). Talsverður hluti (60%) íslensku lifrarsýnanna innihélt minni kopar en sem svarar 30 mg/kg. Þetta er vísbending um það að koparinn nýtist illa vegna samspils við jám, mólybden eða önnur efni. Einnig getur verið að stór hluti koparsins í jarðveginum sé bundinn öðmm efnum eða lítill kopar sé fyrir hendi í beitilöndunum. Koparskortur hjá jórturdýmm er alvarlegt vandamál á Nýja-Sjálandi (Lee og Grace 1997) og er styrkur kopars í lifúr og blóði enn notaður sem viðmiðun. Davis og Mertz (1987) sögðu ffá rannsókn þar sem kopar í lifúr lamba með ljömskjögur var á bilinu 1-2 mg/kg ferskvigt eða 4-8 mg/kg þurrefni. Grace og Lee (1990) töldu að hætta væri á koparskorti ef kopar í lifúr sauðfjár færi undir 52

x

Fjölrit RALA

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.