Rit Búvísindadeildar - 01.07.1992, Blaðsíða 55
Óttar Geirsson
Búnaðarfélagi ísiands
107 Reykjavík
Notkun búfjáráburðar á íslandi
Inngangur
Ljóst er að menn hafa notað búQáráburð til að auka frjósemi jarðvegs
miklu lengur en liðið er frá því að þeir gerðu sér grein fyrir því í hverju gagnsemi
áburðarins er fólgin. Má t.d. benda á frásögn Njálu af Njáli á Bergþórshvoli, sem
ók skarni á hóla. Á dögum söguritara var þetta athæfi talið hafa verið nýjung á
dögum Njáls, en hefur augsýnilega verið alþekkt þá er sagan var rituð, en það er
talið hafa verið á 13. öld. En á 18. og 19. öld eru menn að koma með ýmsar
kenningar um það á hverju plöntur lifi (Thaer, Liebig) og það er raunar ekki fyrr
en á þeirri 19. sem menn eru komnir að þeirri niðurstöðu sem við fylgjum aö
mestu enn í dag.
Breytt viðhorf til búfjáráburðar
Ef skoðuð er þróun í notkun búfjáráburðar, og þar með áherslur í
leiðbeiningum um noktun hans, hér á landi á þessari öld, má greina þrjú stig:
I. Áhersla lögð á að nýta búfjáráburð til áburðar en ekki til eldsneytis eins
og algengt var, og varðveita næringarefni í honum við geymslu. Þá er lögð áhersla
á að geyma áburðinn í haughúsum en ekki úti í haug og í jarðræktarlög kemur
ákvæði um styrk á þeim forsendum . Búfjáráburður var oftast eini áburðurinn
sem notaður var á hverja túnspildu en tilbúinn áburður notaður sér á aðrar.
II. Lítil áhersla lögð á nýtingu búfjáráburðar og talið best "að losna við
hann" í flög, en á þeim tíma var nýrækt hvað mest hér á landi og því alltaf nóg
til af flögum. Tækninýjungar, bæði tæki og byggingar, sem athygli vöktu voru þær
sem minnkuðu vinnu við að losna við áburðinn úr húsunum óháð því hvort þær
stuðluðu að betri nýtingu næringarefna í honum eða ekki.
Ef búfjáráburður var borinn á tún var fullur skammtur af tilbúnum áburði
borinn á með honum.
III. Vaxandi áhugi á að nýta áburðarefni í búbjáráburöi til að draga úr
aðföngum búsins. Tekið er tillit til þess í áburðaráætlunum hvort búfjáráburður
er notaður eða ekki og dregið úr tilbúnum áburði þar sem svo er, m.ö.o.
búfjáráburður notaður með viðbót af tilbúnum áburði.
49