Rit Búvísindadeildar - 01.07.1992, Page 60
Hér er gert ráö fyrir að 40 hkg af heyi innihaldi um 73 kg af köfnunarefni,
60 kg af kalí og 8 kg af fosfór. Ætla má aö nýtanleg næriiigarefni fyrir plöntur
sem falla til eftir eina kú í fjósi yfir árið, séu hins vegar um 22 kg af köfnunarefni,
26 kg af kalí og 7,7 kg af fosfór, miðað við lélega nýtingu á bútjáráburði.
(Magnús Óskarsson og Matthías Eggertsson, 1991). Því verður ætíð að koma til
nokkur notkun á tilbúnum áburði til að ekki sé um rányrkju að ræða á landinu.
Það er þó sjálfsagt að nýta þann búfjáráburð sem til fellur eins og kostur er því
hollur mun heimafenginn baggi. En hve mikið sparar slíkt búskaparlag miðað við
að eingöngu sé notaður tilbúinn áburður? Þessarri spurningu og fleirum henni
tengdum, verður reynt að svara hér á eftir.
Verðmæíi íslensks búfjáráburðar
Árlega fellur til töluvert magn af búfjáráburði hér á landi, en íslendingar hafa
löngum verið ríkir af sauðum og hrossum. Mikið af áburðinum fellur þó beint á
úthaga og á það einkum við um fyrrnefndar búfjártegundir en aðrar tegundir hafa
lengri innistöðutíma eða ganga að verulegu leyti á ræktuðu landi. Hér var sá
kostur tekinn að reyna að áætla þann áburð sem fellur á innistöðutíma og reyna
síðan að áætla nýtanlegt efnamagn út frá fáanlegum stuðlum um það efni. Tafla
1 sýnir áætlað heildarverðmæti búíjáráburðar á íslandi árið 1990.
1. tafla. Verðmæti búíjáráburðar 1990.
Fjöldi áburður Alls N'ÝTANLEG EFNI KG2)
Búfjártegund 1990" kg/ári/grip2) tonn N P K
Kýr 32246 11000 354706 709412 212824 851294
Nautgr. 42643 3600 153515 152515 92109 368436
Kindur 548508 400 219403 877613 333493 1097016
Hross 71693 1800 32262 64524 32262 80655
Svín 3116 4000 12464 31160 15580 28044
Hæna 214936 40 8597 42987 34390
42987
Refur 4800 15 72 800 216 256
Minkur 42000 10 420 4667 1260 1493
Alls 781439 1884677 722133 2470181
VERÐ HREINNA EFNA/kg 3) 65,1 100,25 37,57
Verðmæti búfjáráb. alls 122.692.484 72.393.829 92.804.703
Verðmæti kúamykju og sauðataðs 113.309.128 64.002.141 87.040.144
1) Forðagæsluskýrslur Bunaðarfélags íslands
2) Óttar Geirsson (1991)
3) Uppgefið FOB-verö frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, mars 1992
54