Rit Búvísindadeildar - 01.07.1992, Síða 121
Bjöm Helgi Barkarson
Ólöf Björg Einarsdóttir
Búvísindadeild
Skaðlegar gastegundir í haughúsum
»
» Viö loftfirrða gerjun í haughúsum gengur niðurbrot fremur hægt og hitastig hækkar lítið.
* Helstu afurðir eru lífrænar sýrur, vínandi og gastegundir. Flestar gastegundanna eru illa lyktandi
* og sumar eitraðar. Þær geta valdið gripum og mönnum heilsufarslegu tjóni og jafnvel dauða.
Hættulegastar eru metan, koldíoxið, ammoníak og brennisteinsvetni.
Metan
Mengunarmörk eru ekki til. Er lyktarlaus, litiaus og eldfim lofttegund. Ryður súrefni burt
og veldur þannig óbeint hrööum hjartslætti, djúpum andardrætti og svima.
Koldioxið
Mengunarmörk við 5000 ppm. Yfirleitt lit- og lyktarlaus. Veldur höfuöverk, auknum
hjartslætti, öndunarerfiðleikum og svima. Styrkur yfir 10% C02 er lífshættulegur. Best er ferskt
loft við eitrun, ekki skal drekka neitt .meðvitundarlausan sjúkling skal setja í læsta hliðarlegu og
fara beint með á sjúkrahús.
Ammoníak
Mengunarmörk við 25 ppm. Litlaus lofttegund með skarpa stingandi lykt. Innöndun
veldur sviða og jafnvel hætta á losti, meðvitundarleysi og skemmdum á öndunarfærum viö mikið
magn. Hætta á vökvasöfnun í lungum eftirá. Viö eitrun er best ferskt loft og sitjandi stelling,
skola nef og munnhol með vatni og beinustu leið á sjúkrahús.
Brennisteinsvetni
Mengunarmörk við 10 ppm. Eldfim lofttegund er lamar lyktarskyn við 30-40 ppm. Mest
hætta fyrst eftir að hrært er upp í mykju. Veldur sviða í nefi og koki, meðvitundarleysi við háan
styrk og hætta á krampa, öndunarlömun og varanlegum taugaskemmdum. Ferskt loft er best við
eitrun og sitjandi stelling. Hugsanlega öndunaraðstoð og strax á sjúkrahús.
V arúðarráðstafanir
Það losnar um gastegundirnar þegar hrært er uppí mykjunni. Brennisteinsvetni er hættu-
9 legust og hafa bæöi menn og skepnur látist af hennar völdum.
k Best aö haughús sé lokaö og þétt til að gastegundirnar berist ekki uppí fjósið. Varast ber
w að fylla haughúsið um of og það skal losa það reglulega, því það er meiri hætta ef mykjan er
T' lengi að safnast fyrir. Hiti og vatnsíblöndun hafa örvandi áhrif á gasmyndun. Erlendis er því
notast við safntanka sem eru utandyra.
Loftræsta skal vel á meðan á iosun stendur en öruggast er að hleypa gripunum út. Vindur
kemur í veg fyrir söfnun eiiraðra lofttegunda á lygnum blettum. Hann getur einnig farið niður í
haughús og rutt eituðu loftegundunum með sér upp í fjósið. Enginn ætti að vera einn við losun
mykju né fara niður í haughúsið. Einnig er varasamt að halda sig nærri dreifaraopi við áfyllingu.
115