Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Side 72

Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Side 72
fóðraður til há-marksvaxtar. Fóðrað er á rúlluheyi, fiskimjöli og byggi. Fóður er vigtað í lömbin og efna-greirit og leifar einnig. Meiningin var að sláturtímar yrðu tveir, en þar sem lömbin hafa ekki þyngst eins hratt og vonast var til var ákveðið að þeim yrði öllum slátrað á sama tíma við u.þ.b. 40 kg lífþunga. Erfiðlega hefur gengið að fá blessuð lömbin til að éta fiskimjölið og þá sérstaklega þann til-raunaflokk sem ætlaður er stærsti fiskimjölsskammturinn. Fyrir slátrun verða gimbrar vigtaðar (eftir 24 tíma svelti) og ullarvöxtur mældur, einnig verða gimbrar ómmældar á spjaldi (vöðvi og fita) og síðu (fita). Við slátrun verða allir líkamshlutar vigtaðir og skrokkur mældur í bak og fyrir. Hópfóðrun hjá bændum í Borgarfirði Hér er um að ræða framhald á verkefni Sveins Hallgrímssonar "Síslátrun vorlamba". Nema að þessu sinni skrá tveir bændur, Ásbjöm Sigurgeirsson á Ásbjamarstöðum og Jóhann Oddsson á Steinum niður upplýsingar um fóðumotkun lambanna sem slátrað verður í vetur. Þeir vigta fóðrið í lömbin vikulega og taka heysýni. Lömbin vom vigtuð og stiguð í upphafi og vigtuð síðan hálfsmánaðarlega þaðan í frá og að lokum vigtuð og stiguð fyrir slátmn. Þeir munu einnig reyna að meta vinnu við fóðmn og hirðingu þessara lamba. Auk þessara tveggja em 8 aðrir bændur í verkefninu. Lömb þeirra vom vigtuð í upphafi til-raunar og síðan stiguð og vigtuð fyrir slátmn. Þeim var boðið upp á að skrá frekari upp-Iýsingar og að senda inn tvö heysýni. Eftirfarandi bændur em þátttakendur í þessu verkefni: Ásbjöm Sigurgeirsson, Ásbjamarstöðum Jóhann Oddsson, Steinum Jón Þór Jónasson, Hjarðarholti Skúli Kristjónsson, Svignaskarði Ámi Ingvarsson, Skarði Finnbogi Leifsson, Hítardal Ármann Bjamason, Kjalvararstöðum Halldór Sigurðsson, Þorvaldsstöðum Ólafur Guðmundsson, Sámsstöðum Kristján Axelsson, Bakkakoti Eiríkur Á. Brynjólfsson, Brúarlandi Nú þegar hefur tvisvar verið slátrað, 15.desember og 3. febrúar. í fyrra sinnið var 56 gimbr-um fargað frá 7 bæjum. Meðallíf- og fallþungi þeirra var um 34,5 kg og 14,8 kg, 9 lömb fóm í stjömu en restin í DIA. Kjötið var sett á markað í Reykjavík og seldist það allt upp. f seinni förgun fóm 35 lömb (gimbrar og geldingar) frá 3 bæjum og voru lömbin að meðaltali rétt rúm 39 kg á fæti og reyndist meðalfallþunginn vera 15,6 kg og fóm þau öll í DIA. Megnið af kjötinu fór í Kringluna í verslun Hagkaups en einnig var eitthvað selt hér heima í héraði. 65

x

Rit Búvísindadeildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.