Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Side 77
súgþurrkaða heyið var 6-8%. Súgþurrkaða taðan reyndist ögn lystugri og varð
mismunur á heyáti kúnna marktækur á báðum mæliskeiðum (P<0,01). Hins vegar
reyndist hvorki koma fram marktækur mismunur á nyt kúnna né kostum
mjólkurinnar. Tilraunin er endurtekin framleiðsluárið 1993-1994.
Ileilt og skorið rúlluhey handa sauðfé.
Sumarið 1992 var aflað heys í tilraun til samanburðar á eftirfarandi aðferðuin við
verkun heys handa sauðfé (sjá Tilr.sk. 1992, bls 24):
a. forþurrkað hey, óskorið, verkað í rúllum
b. forþurrkað hey, skorið, verkað í rúllum
Heyið er af sömu spildum, sem skipt var til helminga er að hirðingu kom, þannig
aða úr öðrum hvorum garði var heyið skorið við bindingu en látið óskorið úr
hinum. Notuð var bindivél af gerðinni Welger RP 200 (sjá búvélaprófun nr. 627
1992). Baggar voru að venju sveipaðir sexföldum plasthjúpi og geymdir í
óyfirbreiddir stæðu utan dýra.
Gerð var fóðurnartilraun með heyið á 2x60 ám vetrarlangt. Fram yfir fengitíð (til
19. des.) og frá 17. mars og fram úr fengu æmar tilraunaheyið eins og þær gátu
etið en tímabilið á milli var þeim haldið vel við, lengst af á góðu engjaheyi úr
rúllum, þar sem báðir hópar fengu sömu dagsgjöf. Frá hýsingu (16. nóv.) og fram
til 19. des. var helmingi hvors heyhóps (a og b) gefið fiskimjöl, alls 2,3 kg/á.
Eftirfaiandi tafla sýnir nokkrar tölur um niðurstöður tilraunarinnar.
2. tafla. Úr niðurtöðum tilraunar með verkun á heilu og skomu heyi í nUlum handa sauðfé.
Heilt Skorið
Þurrefiiisát, kg/á á dag
16. nóv.-18. des. án fiskimjöls 1,50 1,50
16. nóv.-18. des. með fiskimjöli 1,51 1,51
19. des.-5. feb. 1,22 1,24
6. feb.-16. mars 0,77* 0,77*
17. mars - 9. maí 1,44 1,41
Þurrefnisát vetrarlangt, kg/á 264** 263**
Frjósemi áinna, fœdd lömb m.v. 100 œr:
- aðeins hey 180 163
- hey og flskimjöl (2,3 kg/á) 200 183
*= sama hey íyrir báða flokka á þessu tímabili
**= þar af 30 kg þe á sauðburði
Undir þessum lið viðfangsefna hófst einnig athugun á verkun og nýtingu heys
sem er tætt fyrir þjöppun í rúllubagga. Athugunin er gerð í tengslum við prófun
70