Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Page 81
Meðferð heys við þurrkun á veili
Sumarið 1993 voru rannsökuð áhrif múgtætis (knosara) á þurrkunarhraða heys á
velli. Tilraunir um þetta efni voru gerðar í tengslum við prófanir sláttutækja hjá
Bútæknideild Rala (sjá búvélaprófun nr. 636 og 638, 1993). Múgtætir er jafnan
byggður á slátturþyrlu. Tætir hann og hreytir úr heyinu nýslegnu svo það fellur í
léttan streng eða garð sem golan á greiðari leið um en hefðbundinn múga. Enn er
uppgjör tilraunanna skammt á veg komið, Auðsætt er þó að þessi meðferð
heysins örvar þurrkun þess. Eftirfarandi mynd sýnir niðurstöður einnar tilraunar
með múgtætingu (knosun). Tilraunin er gerð á túni með blönduðum gróðri, sem
slegið var 2. júlí 1993. Þurrkur var í slakara lagi því sólfar var mjög takmarkað.
j£
<#
<6
9»
œ
sz
J
C
£
3
3
„a.
■ Heföb.sl.-
□ Tætt-
■ Hefðb.sl.
0 Tsett
s.strax sn.e.4 klst
Tími fyrsta snuninge með heyþyrlu
2. mynd. Áhrif múgtætingar (knosunar) á þurrkunartíma heysá velli.
Tölumar í súlum tákna þurrkstig heysins við hirðingu (þe. %).
Samkvæmt eldir rannsóknum innlendum má búast við að múgtætingunni fylgi
lítið eitt meira efnatap en hinni hefðbundnu aðferð. Það tap þarf því að vega á
móti ábatanum af styttri þurrkunartíma heysins á vellinum.
Súgþurrkuð taða og rúlluhey handa mjólkurkúm
Tilraunirs er framhald verkefnis sem hófst sumarið 1992, sjá hér framar. Sumarið
1993 var fóðurs aflað á tveimur túnspildum í sæmilegri og góðri rækt sem að
mestu voru sprottnar vallarfoxgrasi og vallarsveifgrasi. Bomir em saman tveir
liðir:
a) forþurrkað hey, verkað í rúllum
b) forþurrkað hey, súgþurrkað
74