Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 47
Curaprox Tannvörurnar frá Curaprox hafa verið í þróun í hartnær 50 ár og eru viðurkenndar af tannlæknum og tannfræðingum um heim allan. Curaprox framleiðir tannbursta, tannkrem, tannþráð, munnskol, millitannabursta og aðrar tann- vörur í algjörum sérflokki. Þannig skapar fyrirtækið sér einstakan sess á markaði með háþróuðum tannvörum sem tryggja hámarks árangur við notkun, tannheilsu barna til bóta. Nýjasta viðbótin þeirra er snuð, sem hannað er af tannréttingasérfræðingum. Snuð Curaprox snuðið er hannað af tannréttingasérfræðingum og hefur frábæra kosti: n Róar barnið. n Kemur í veg fyrir tilfærslu tanna. n Styður við eðlilega þróun góms og kjálka. n Styður við eðlilega stöðu tungu sem eykur líkurnar á eðlilegum málþroska. n Tryggir ákjósanlega öndun. Snuðið fæst í 4 litum og 3 stærð- um. Litir: bleikt, rautt, blátt og appelsínugult. Stærðir: 3-7 kg, 7-10 kg og 10-14 kg. Naghringir Curaprox naghringurinn er blanda af nuddbursta, naghring og hringlu. Hann örvar góm og munn og vekur forvitni barnsins með sérhönnuðu útliti og hljóði. Hringirnir henta pirruðum gómum einstaklega vel. Mjúki burstinn á endanum undirbýr börnin fyrir tannburstun. Tannburstinn Curaprox Baby tannburstinn er sérstaklega hannaður fyrir ung- börn og börn upp að 4 ára aldri. Barnatannlæknar mæla með þessum tannbursta eftir að fyrsta tönnin birtist. Við notkun á tann- burstanum læra börnin að nota mjúka tannbursta strax frá upp- hafi, en tannburstinn hefur 4.260 CUREN® hár. Smágerður hausinn er hjúpaður mjúku gúmmí og særir því síður. Curaprox snuðin, snuðkeðjurnar og naghringirnir fást í Lyfjum & heilsu, Apótekaranum, Fífu barna- vöruverslun, Apóteki Garðabæjar og Reykjanesapóteki. Curaprox tannburstarnir fást í öllum helstu apótekum. Dóróthea segir að allir for-eldrar hugsi það sama þegar vörur eru valdar fyrir ungbarn: Að velja það besta og öruggasta. „Ellen Inga, dóttir mín, verður sex mánaða eftir nokkra daga. Áður en ég varð ófrísk vissi ég ekki að Curaprox-vörur væru til. Þegar ég fór að kynna mér þær sá ég að Curaprox hafði mun fleiri kosti en margar aðrar vörur, kosti sem ég kýs fyrir mitt barn. Maður kaupir snuð til að róa barnið en vill forðast að það valdi einhverj- um langtíma afleiðingum en það gæti verið skakkt bit, yfirbit eða skakkar tennur. Curaprox snuðin eru sérþróuð til að koma í veg fyrir að slíkt gerist,“ segir Dóróthea. „Maður getur leyft barninu að vera með snuð án þess að hafa áhyggjur af tönnum eða öðru,“ bætir hún við. „Mér finnst sömuleiðis frábært að snuðin miðast við þyngd barns- ins, ekki aldur. Börn geta nefnilega verið mismunandi þung miðað við aldur. Þetta er stór kostur. Silíkon- yfirborðið á snuðinu er mjúkt og sveigjanlegt. Litlar raufar í snuðinu sjálfu líkja eftir geirvörtu og það leggst því betur að munninum og börnin þurfa ekki mikinn ákafa til að sjúga. Þess vegna vilja börn oft taka þessi snuð frekar en mörg önnur. Ég hef heyrt frá vinkonum mínum að þær hafa prófað nokkur snuð sem börnin vilja ekki taka en það breyttist með Curaprox. Það hefur eitthvað með lögunina að gera,“ segir Dóróthea. „Auk þess eru snuðin flöt, leggjast því vel að munninum sem eykur líkur á eðlilegum málþroska þegar lengra líður. Það eru því alls konar kostir sem ég get nefnt varðandi Cura- prox vörurnar,“ bætir hún við. Snuðin eru seld bæði stök og tvö í pakka. Umbúðirnar eru fallegar og hægt að nota þær sem geymslu eða box til að sótthreinsa snuðin. „Þau koma í þremur stærðum. Svo er hægt að kaupa snudduband sem einfalt er að hengja á smekk- inn eða í fötin þannig að snuðið detti ekki í gólfið eða týnist sem er mjög þægilegt. Böndin eru í stíl við snuðin í fallegum litum. Auk þess vil ég nefna naghringina sem eru einstaklega skemmtileg hönnun. Dóttir mín er komin með pirring í góminn og er sólgin í hringinn, sérstaklega þegar ég hef geymt hann í kæli. Það er tann- bursti á naghringnum sem venur börn við tannburstun. Ég hika ekki við að mæla með Curaprox vörum.“ Ellen Inga er fyrsta barn Dórótheu og Ara. Þau vilja auð- vitað allt það besta fyrir barnið og voru með hana í ungbarnasundi rétt áður en viðtalið var tekið. „Við erum í fæðingarorlofi og það er nóg að gera með svona lítið barn,“ segir hún. Viljum bara það besta fyrir barnið Dóróthea Jóhannesdóttir og Ari Bragi Kárason eignuðust dóttur fyrir sex mánuðum. Þeim finnst skipta máli að barnið fái aðeins gæðavörur þegar kemur að snuðum, snuðkeðjum og naghringjum. Dóróthea Jóhannesdóttir með dóttur sína, Ellen Ingu, sem er alsæl með Curaprox snudduna sína. Dóróthea segist hafa skoðað allar vörur vandlega áður en hún valdi fyrir barnið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Snuðin frá Curaprox eru hönnuð af tann- réttingasér- fræðingum. Curaprox nag- hringurinn er blanda af nuddbursta, naghring og hringlu. Curaprox Baby tannburstinn er sérstak- lega hannaður fyrir ungbörn og börn upp að 4 ára aldri. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.