Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 93
Bókin um Grýlu er sjálfstætt framhald bókar sem ég gaf út í fyrra og heitir Sagan af því hvers vegna jóla-sveinarnir hættu að vera vondir. Grýla kom þar fyrir
sem stjórnsöm, örg og frek. Þess vegna
fannst mér ég verða að komast að því af
hverju hún varð eins og hún varð – eitt-
hvað hlaut að hafa gerst,“ segir Kristín
Heimisdóttir sálfræðingur um nýja bók
sína: Sagan af því þegar Grýla var ung og
hvers vegna hún varð illskeytt og vond.
Sjálf kveðst Kristín hafa alist upp við
Grýlusögur. „Mér var, eins og mörgum
íslenskum börnum, hótað því að Grýla
kæmi ef við værum ekki þæg og góð,
þannig að ég bar óttablandna virðingu
fyrir henni. Þótti hún alltaf áhugaverð
og bók með kápumynd af henni með
pokann sinn var hálfgerð biblía á heim-
ilinu.“
Kristín býr á Þórshöfn og starfar sem
sálfræðingur hjá Virk. „Ég hef búið hér
frá árinu 2004, kom þá úr Reykjavík en
er uppalin á Akureyri og Dalvík, kynnt-
ist svo manni á Þórshöfn og elti ástina.
En var ákveðin í að láta ekki búsetuna
stoppa mig í að sinna faginu og hef haft
nóg að gera í fjarþjónustu. Í haust var
ég að kenna sálfræði við Þekkingarnet
Þingeyinga, það var skemmtilegt.“
Svo eru það ritstörfin. Kristín segist
óhikað nota gömul íslensk orð í sínar
sögur enda fjalli þær um þjóðlegt efni.
„Ég vil að við verndum tungumálið
okkar og því þarf að vera auðugt málfar
á barnabókum. Svo var ég svo heppin
að komast í samband við bráðflinkan
myndskreyti á Ítalíu sem heitir Cecilia
Latella. Við höfum samskipti á ensku
gegnum tölvupóst. Hún var í útgöngu-
banni í Napólí þegar hún teiknaði í
þessa bók, algerlega innilokuð með
Grýlu!“
Kristín tekur fram að Grýlubókin sé
fyrst og fremst skemmtileg. „Bókin ber
líka þann boðskap að allir geti breytt
hegðun sinni og bætt framkomuna, jafn-
vel Grýla, sem á endanum viðurkennir
að hafa hagað sér eins og fíf l í 300 ár.“
gun@frettabladid.is
Elskuleg eiginkona mín, mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Guðrún Lára Hraunfjörð
fædd í Reykjavík 23. júlí 1938,
Sjávargötu 7, Álftanesi,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar þann
5. desember síðastliðinn. Að eigin ósk hefur
bálför farið fram í kyrrþey. Við þökkum auðsýnda samúð
og hlýju í okkar garð á þessum erfiða tíma.
Blessuð sé minning hennar.
Gunnar Eyjólfsson frá Lambavatni og fjölskylda.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristín Guðmundsdóttir
Lynggötu 3, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold,
Garðabæ, miðvikudaginn 16. desember.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
þriðjudaginn 22. desember kl. 13. Vegna aðstæðna munu
eingöngu nánustu aðstandendur vera viðstaddir, streymi
verður á Facebook-síðunni, Útför-Kristín Guðmundsdóttir
William Þór Dison
Eðvarð Þór Williamsson Sigurbjörg Sigurðardóttir
Stefanía Sif Williamsdóttir Óskar Þór Gunnarsson
William Þór, Snædís Líf, Nökkvi Þór, Hrannar Þór, Elísa
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
Gunnhildar Júlíu Júlíusdóttur
Vesturgötu 43, Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Smári Hannesson
Ásdís Elín Smáradóttir Birgir Örn Hansen
Gunnhildur Priyani Hansen
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Júlíu Kristínar Adolfsdóttur
Furubyggð 16,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans
fyrir hlýju og góða umönnun.
Kolbeinn Guðmannsson
Sigurbjörn Ragnarsson Hlín Gunnarsdóttir
Gunnsteinn Adolf Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sveinn Yngvason
lést á Landspítalanum, sunnudaginn
13. desember. Útförin fór fram í
Fossvogskirkju þann 18. desember.
Súsanna Sveinsdóttir Kosicki
Sigurður Yngvi Sveinsson Guðveig Elísdóttir
Anton Sveinsson Jody Towson
Sveinn Júlían Sveinsson Kristín Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamömmu,
ömmu og langömmu,
Margaretar Ross Scheving
Thorsteinsson
hjúkrunarfræðings.
Gunnar Bent Scheving Thorsteinsson
Carole Ann Scheving Thorsteinsson
Guðrún M. Scheving Thorsteinsson
Ósk S. Scheving Thorsteinsson
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson
Ástríður Scheving Thorsteinsson Karl Trausti Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu
fjölskyldunni hlýhug og samkennd við
andlát okkar ástkæra
Pálmars Vígmundssonar
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
áður Árholti.
Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust
Pálmar í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll.
Ragnheiður Jónasdóttir
Ingi Ragnar Pálmarsson Guðrún Ólafsdóttir
Vígmundur Pálmarsson Anna Hansdóttir
Sigrún Pálmarsdóttir Þröstur Þorgeirsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Ólafur Þór Jónsson
pípulagningameistari,
lést á heimili sínu þann 10. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þann 28. desember kl. 13.00.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir. Útförinni verður streymt á slóðinni
facebook.com/groups/390725862179919
Guðrún Guðmundsdóttir
Arndís Helga Ólafsdóttir Gunnbjörn Viðar Sigfússon
Magnús Einar Ólafsson Helga María Guðmundsdóttir
Jón Berg Halldórsson Helga Sigurgeirsdóttir
barnabörn, systkin og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Öldu Vilhjálmsdóttur
Bárustíg 1, Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra á Sauðárkróki
fyrir alúð og umhyggju.
Vilhjálmur Egilsson Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir
Ásta Egilsdóttir Lárus Sighvatsson
Bjarni Egilsson Elín Petra Guðbrandsdóttir
Árni Egilsson Þórdís Sif Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Þórgunnar Rögnvaldsdóttur
Ægisgötu 1,
Ólafsfirði.
Ármann Þórðarson
Rögnvaldur Ingólfsson Jörgína Ólafsdóttir
Auður Guðrún Ármannsdóttir Sveinn E. Jakobsson
Þórður Ármannsson Ester Jónasdóttir
Sigrún Eva Ármannsdóttir Andri Dan Róbertsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Notar gömul íslensk orð
Kristín Heimisdóttir fléttar saman sálfræði og ævintýrablæ í nýrri bók sem bregður
ljósi á bakgrunn Grýlu og skýrir hví hún varð jafn illskeytt og fornar sögur herma.
„Mér var, eins
og mörgum
íslenskum
börnum,
hótað því að
Grýla kæmi
ef við værum
ekki þæg og
góð,” segir
Kristín.
Mynd/aðsend
Það pirraði Kristínu að lesa fyrir börnin
sín um jólasveina sem birtast sem ill-
menni í gömlum sögum en eru á seinni
árum orðnir góðir.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 61L A U G A R D A G U R 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0