Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 70
Þeir sem hafa áhyggjur af þyngdinni um jólin geta gert ýmislegt til að forðast ofþyngd án þess að sleppa góð- gætinu. Best er að einbeita sér að því jákvæða sem hægt er að gera. Hefðbundinn jólamatur eins og feit pörusteik eða feitt hangikjöt getur verið þungur og hitaeininga- ríkur matur. Kalkúnn er hins vegar frábær matur sem jafnframt er hitaeiningasnauður. Sömuleiðis jólaskinka og roast beef. Lax, graf- lax og síld eru hollir forréttir. Ef maður vill borða minna er um að gera að hafa meira af girnilegu grænmeti og ávöxtum á jólaborð- inu. Þar má nefna ferskt heimagert rauðkál, rósakál eða gott eplasalat. Klementínur eru einnig góðar í salöt og appelsínur má nota með önd. Algengt er að fólk hvíli sig, lesi góðar bækur og hafi það kósí um jólin. Staðreyndin er sú að hægt er að leyfa sér meira góðgæti ef maður tekur góðan göngutúr daglega, kannski bara í hálftíma. Með því að vera líkamlega virkur brennir maður matnum hraðar og verður síður óþægilega saddur. Rösk hreyfing hefur góð áhrif á meltingarkerfið. Með því að byrja daginn á hollum og næringarríkum morgunverði er minni hætta á að sprengja sig í kvöldmatnum. Taktu tíma í að borða. Ekki spara þig fyrir jólasteikina því þá getur þér liðið verr í maganum eftir þungan mat. Ef þú ætlar að létta þig notaðu þá minni diska til að plata augað. Það getur komið í veg fyrir ofát. Drekktu mikið af vatni eftir saltan mat. Ágætt er að muna að jólabjór og léttvín er fitandi. Jólasmákökur og tertur eru á borðum á jólum. Það er gott að grípa sér eina piparköku eða vanilluhring. En þeir sem vilja grenna sig ættu að fara varlega í að úða í sig sætindum. Ef hungrið kallar er best að fá sér hnetur eða möndlur til að seðja það. Þótt jólin séu vissulega matargleði þá eru þau fyrst og fremst samvera með fjölskyldu. Uppskrift að kalkún fyrir átta manns 1 kalkúnn, um það bil 5 kíló 3 dl vatn 200 g smjör 2 hvítlauksrif, stór Ferskt timían Sítróna 1 laukur Þegar kalkúnninn hefur þiðnað, hafi hann verið frosinn, er inn- maturinn tekinn frá og notaður í sósu. Leggið kalkúninn í stóran pott með 10% saltlegi yfir nótt. Þerrið hann síðan með eldhús- pappír. Setjið í stórt eldfast form og leggið vængina undir fuglinn. Dreifið smjöri, hvítlauk og timían undir skinnið á fuglinum hér og þar. Skerið sítrónuna í fjóra parta ásamt lauknum og setjið inn í fuglinn. Setjið vatnið í botninn á eld- fasta mótinu. Setjið hitamæli í þykkasta hlutann á bringunni og steikið fuglinn á 120 gráðum þar til mælirinn sýnir 64°C. Ausið bráðnu smjöri yfir fuglinn af og til á eldunartímanum. Takið fuglinn út og látið standa undir álpappír í 20-25 mínútur. Hækkið í ofninum á meðan upp í 210°C. Setjið kalkúninn aftur inn í ofninn og fáið lit á skinnið. Miðað er við eldun hálftíma á hvert kíló sé miðað við 150°C heitan ofn. Fulleldaður kalkúnn á að sýna kjarnhita 71°C. Staðreyndin er sú að hægt er að leyfa sér meira góðgæti ef maður tekur góðan göngutúr daglega, kannski bara í hálftíma. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Kalkúnn fyrir færri aukakíló Það eru ekki ný vísindi að desember er fituríkur mánuður hjá flestum. Þótt þessi aðventa sé ólík öllum öðrum sem við þekkjum þá láta flestir eitthvað virkilega gott eftir sér á þessum árstíma. Kalkúnn getur verið betri kostur en feitt svínakjöt ef fólk vill ekki bæta á sig kílóum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Gauta Eiríksson þekkja lík-lega f lestir sem manninn á bak við YouTube-rásina sem heitir eftir honum, þar sem hann birtir stórskemmtileg og fræðandi kennslu- og orðskýr- ingamyndbönd í náttúrufræði og stærðfræði, kennslumyndbönd í ljósmyndun, myndbönd frá mismunandi stöðum á Íslandi og ýmislegt f leira. Í ár er hann höfundur glæsilegrar spurninga- bókar um fótbolta sem kemur út á vegum forlagsins Óðinsauga. „Þetta er ekki fyrsta spurninga- bókin sem ég gef út og alls ekki fyrstu spurningarnar sem ég hef samið,“ segir Gauti, sem starfar sem kennari í Álftanesskóla. „Ég hef samið spurningar mjög lengi og haldið spurningakeppni fyrir nemendur í Álftanesskóla í hátt í 13 ár.“ Þess má geta að þó nokkrir einstaklingar sem hafa tekið þátt í spurningakeppni fram- haldsskólanna, Gettu betur, eiga margt að þakka Gauta. „Árið sem MH sigraði í keppninni komu til dæmis tveir af þremur kepp- endum sigurliðsins frá mér.“ Ekki fyrsta spurningabókin Gauti er gífurlegur áhugamaður um fótbolta og fylgist sérstaklega með enska boltanum „Mitt lið er Liverpool og hefur verið í hátt í 40 ár allt frá því Kenny Dalglish, Ian Ross og Bruce Grobbelaar voru og hétu. Annars fylgist ég líka með því sem gerist í f leiri deildum og meistaradeildinni, þó svo ég horfi nú kannski ekki á hvern einasta leik.“ Fyrsta spurningabók Gauta kom út árið 2018 á vegum Óðinsauga. „Sú spurningabók var um fótbolta og samdi ég hana með öðrum höfundi sem hafði áður gefið út svipaðar bækur á vegum forlagsins. Sama ár gaf ég út Stóru spurningabókina hjá Óðinsauga, sem kom út í stóru og veglegu broti. Bókin var tvö ár í vinnslu með 3.000 spurningum um allt og ekkert og líka fótbolta. Næsta bók sem ég gaf út var um enska boltann þar sem ég gerði upp nýyfirstaðið tímabil.“ Hvað veist þú? Hvað veistu um fótbolta? kom út í byrjun nóvember og er frábrugðin Enska boltanum að því leyti að hún fjallar vissulega um fótbolta, en á almennari hátt. „Spurningarnar eru ekki háðar útgáfutíma og skiptast í auðveldar, miðlungs og erfiðar spurningar. Þá eru sérkaflar innan bókarinnar þar sem eingöngu er spurt um nýafstaðin tímabil enska boltans og Evrópuboltans.“ Bókin er veglega myndskreytt sem að sögn Gauta er sjaldgæft þegar kemur að spurningabókum. „Það eru bæði fallegar ljósmyndir í bókinni og einnig myndaspurn- ingar. Þetta er tilvalin jóla- eða tækifærisgjöf fyrir hvern þann sem hefur áhuga á fótbolta. Það má eyða löngum stundum einn með sjálfum sér að prófa eigin þekkingu. En það er líka stórskemmtilegt að koma nokkur saman og skiptast á að spreyta sig á spurningunum í bókinni.“ Í hvaða landi fer úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í knatt- spyrnu karla fram árið 2022? Hvaða lið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu ber viðurnefnið Toon Army? Hvaða lið varð enskur meistari í knattspyrnu karla leiktíðina 2019 til 2020? Ekki sú síðasta Gauti segist halda úti spurninga- banka með tugþúsundum spurn- inga. „Þetta eru um 900 blaðsíður í Word. Það þarf klárlega að setja sig í ákveðinn gír þegar kemur að því að semja spurningar og að baki liggur gífurleg heimildavinna. Ég bý því að gjöfulum banka þegar ég þarf á að halda. Svo þegar kemur að útgáfu þarf ávallt að sannreyna það að svarið í bókinni sé það eina rétta. Það kemur líka á daginn að það reynist oft langerfiðast að semja auðveldu spurningarnar.“ Gauti er hvergi nærri hættur og vonast til þess að gefa út enn fleiri spurningabækur. „Ég held að sjálf- sögðu áfram að punkta niður fleiri spurningar til þess að viðhalda spurningabankanum mínum þegar ég þarf að grípa í hann.“ Svör: 1. Í Katar, 2. Newcastle, 3. Liverpool. Fótboltaspurningar fyrir unga sem aldna Hvað veistu um fótbolta? er stórskemmtileg spurningabók fyrir fótboltaáhugafólk á öllum aldri. Höfundurinn Gauti Eiríksson er einn iðnasti spurningahöfundur landsins og þó víðar væri leitað. Gauti Eiríksson hefur safnað spurningum í áraraðir og gefur nú út stór- skemmtilega spurningabók um fótbolta sem á eftir að gleðja marga áhugamenn um fótbolta. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR. Bókin er stórskemmtileg og tilvalin fyrir áhugamenn um fótbolta á öllum aldri. MYND/AÐSEND 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.