Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 78
Helga er vön að bjóða fól k i heim u m hátíðirnar og vill hún helst hafa sem f lesta í kringum sig. Þó að lítið fari
fyrir jóla- og aðventuboðum þetta
árið samþykkti Helga að undirbúa
jólaborð fyrir sína nánustu og sýna
lesendum Fréttablaðsins hvernig
jólin verða heima hjá henni á Fjöln-
isveginum.
„Mér finnst gaman að draga fram
skraut sem ég hef notað í áraraðir
og blanda inn á milli með nýrra
skrauti, að auki hafa börnin glatt
mig í gegnum tíðina með heima-
tilbúnu skrauti sem fær að sjálf-
sögðu að njóta sín. Góð ilmkerti
eru ómissandi eins og reyndar alla
aðra daga en jólailmur fær að njóta
sín á þessum tíma árs og ilmurinn
af hýasintum finnst mér yndislegur
og jólalegur.“
Helga segist ekki skreyta um of og
halda sig mikið við greni, dempaða
liti og gullbrassað. „Það er með jóla-
skrautið eins og aðra hluti á heim-
ilinu, ég reyni að hafa rauðan þráð
í skreytingunum og halda mig við
svipaða liti og útlit.“
Jólin eru uppáhaldstími Helgu og
er hana farið að lengja eftir þeim í
byrjun nóvember. „Því vil ég eðli-
lega lengja jólahátíðina eins mikið
og ég get og mér finnst tilvalið að
byrja að skreyta og setja upp seríur
þegar dagar eru farnir að styttast.
Aðdragandi jólanna er svo fallegur.“
Helga heldur nokkuð fast í
hefðir og segir samveru með sínum
nánustu og tilhlökkun barnanna
standa upp úr yfir hátíðirnar. „Það
er líka gaman að búa til nýjar og
skemmtilegar hefðir sem gaman
getur verið að halda í. Þegar við
f luttum heim frá Kanada fyrir um
þremur árum tókum við með okkur
heim skemmtilega hefð um kanad-
íska jólaálfinn, Elf on a shelf.
Kanadísku jólaálfarnir fara á stjá í
byrjun desember, þeir eru aðstoðar-
menn og -konur jólasveinsins og
fylgjast vel með hegðun barnanna
yfir daginn. Jólatöfrar álfanna felast
í því að þegar heimilisfólkið fer að
sofa þá ferðast jólaálfarnir alla leið
til Norðurpólsins og færa jólasvein-
inum fréttir af börnunum og hjálpa
jólasveininum í annasömum undir-
búningi jólanna. Áður en heimilis-
fólkið vaknar fljúga álfarnir til baka
frá pólnum og fela sig á ótrúlegustu
stöðum og það er gríðarleg spenna
að vakna á morgnana og leita að
þeim. Jólaálfarnir öðlast töfra sína
með ást barnanna á þeim og það er
algjört skilyrði að það má alls ekki
snerta þá því þá geta þeir misst
töframáttinn og geta ekki f logið til
Norðurpólsins á nóttunni til þess
að færa jólasveininum fréttir.“
Aðdragandi jólanna svo fallegur
Helga Árnadóttir sem er annálaður fagurkeri segist alltaf hafa verið mikið jólabarn og elskað aðventuna en það
hafi aukist eftir að hún sjálf eignaðist börn. Hún hefur sérlega gaman af því að búa til nýjar hefðir með þeim.
Helga er mikið jólabarn og nýtur þess að skapa nýjar hefðir með börnum
sínum auk þess sem hún heldur í þær gömlu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Helgu finnst gaman að dekka upp borð og ver stórum
hluta aðfangadags í að gera borðstofuborðið fallegt.
Fallega servíettuhringana keypti Helga í Montréal.
Kransana í gluggunum útbjó Helga sjálf með nýju og notuðu; fallegu flaueli
frá mömmu sinni, nýjum borðum og greni og svo skrauti úr jólakassanum.
Matarstellið er Gianni Versace og vínglösin eru frá
Ralph Lauren en Helga keypti þau fyrir langalöngu.
Helga setur tréð snemma upp og því hentar vel að vera með gervitré.
Skrautinu hefur hún safnað í gegnum tíðina en kaupir eitt nýtt ár hvert.
Helga leggur mikið upp úr notalegri jólastemningu.
Arnar Gauti
Sverrisson
arnargauti@sirarnargauti.is
Björk Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
ÉG REYNI AÐ HAFA RAUÐ-
AN ÞRÁÐ Í SKREYTING-
UNUM OG HALDA MIG VIÐ
SVIPAÐA LITI OG ÚTLIT.
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð