Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 57
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir
einstaklingar eru hvattir til að sækja um óháð kyni.
Vegagerðin auglýsir
fjögur störf laus til umsóknar
Áhugasamir eru beðnir um að sækja um störfin á www.vegagerdin.is
Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf forstöðumanns
hönnunardeildar. Áhersla er lögð á að forstöðumaður hafi þekkingu á
hlutverki og starfsemi Vegagerðarinnar, búi m.a. yfir þekkingu og reynslu
af hönnun samgöngumannvirkja, stjórnun, áætlanagerð og góðri færni í
mannlegum samskiptum.
Hönnunardeild hefur yfirumsjón með hönnunarstjórnun og hönnun vega,
jarðganga, brúa og annarra vatnavirkja fyrir nýbyggingar og viðhald ásamt
gerð verk- og útboðslýsinga. Einnig jarðtæknilega og umferðartæknilega
hönnun, mat á umhverfisáhrifum, umferðaröryggismat og umsjón með
umferðaröryggisrýni. Deildin hefur jafnframt umsjón með aðkeyptri hönnun
frá verkfræðistofum. Hönnunardeild er með starfsemi í Reykjavík og á
Akureyri.
Menntunar- og hæfniskröfur:
→ Háskólapróf í verk- eða tæknifræði, meistarapróf æskilegt
→ Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
→ Marktæk reynsla af stýringu hönnunarverkefna.
→ Þekking og reynsla af hönnun samgöngumannvirkja.
→ Reynsla af áætlanagerð og verkefnastjórnun.
→ Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
→ Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir
hverju sinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús V. Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri mannvirkjasviðs - mvj@vegagerdin.is og í síma 522-1005.
Forstöðumaður
Stafrænir innviðir og ferlaþróun
Vegagerðin leitar að framsýnum og metnaðarfullum einstaklingi í nýtt
starf forstöðumanns stafrænna innviða og ferlaþróunar.
Forstöðumaður ber ábyrgð á og hefur umsjón með gæðakerfi
Vegagerðarinnar í samráði við forstjóra með áherslu á stafrænar lausnir
og ferlaþróun í samstarfi við sérfræðinga og stjórnendur. Auk þess að
veita sviðum ráðgjöf við ferlaþróun Vegagerðarinnar. Vinnan á sér stað
þvert á starfsemi Vegagerðarinnar. Starfið tilheyrir skrifstofu forstjóra og
starfstöðin er í Reykjavík.
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldspróf æskilegt.
→ Marktæk reynsla af stafrænni tækni.
→ Reynsla af innleiðingu nýs verklags og ferla.
→ Reynsla af stjórnun og verkefnastjórnun.
→ Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
→ Frumkvæði, skipulagshæfni og faglegur metnaður.
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri
(bergthora.thorkelsdottir@vegagerdin.is) eða Sigurbjörg J. Narby
Helgadóttir mannauðsstjóri (sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is) og í
síma 522-1000.
Deildarstjóri tæknideildar
á Suðursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi til að sinna starfi
deildarstjóra tæknideildar á Suðursvæði. Um er að ræða fullt starf og
starfsstöðin er á Selfossi.
Starfssvið
Leitað er eftir verk- eða tæknifræðingi sem hefur áhuga á að takast á við
krefjandi verkefni á sínu fagsviði. Áætlanagerð og tæknilegan undirbúning
vegna nýframkvæmda og viðhaldsverka, umferðaröryggisverkefni
og umsýsla vegna umsókna um nýja héraðsvegi ásamt umsjón með
nýframkvæmdum.
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Verkfræðingur eða tæknifræðingur
→ Reynsla af ámóta störfum er kostur
→ Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
→ Góð hæfni í mannlegum samskiptum
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
→ Frumkvæði og faglegur metnaður
→ Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
→ Góð tölvukunnátta
→ Góð íslenskukunnátta
→ Kunnátta í ensku og einhverju Norðurlandamáli
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanur Bjarnason svæðisstjóri
Suðursvæðis (svanur.g.bjarnason@vegagerdin.is ) og í síma 522 1000.
Forstöðumaður
stoðdeildar á mannvirkjasviði
Vegagerðin leitar að metnaðarfullum einstaklingi í nýtt starf
forstöðumanns stoðdeildar á mannvirkjasviði.
Áhersla er lögð á að forstöðumaður hafi þekkingu á hlutverki og
starfsemi Vegagerðarinnar, búi m.a. yfir þekkingu og reynslu á sviði
mannvirkjagerðar, stjórnunar og góðri færni í mannlegum samskiptum.
Stoðdeild er ný deild á Mannvirkjasviði. Deildin annast rannsóknir á
jarðefnum, efnisleit, námurannsóknir, jarðvegskannanir, jarðvegslýsingar
og rekstur rannsóknarstofu. Hefur umsjón með gerð reglna og leiðbeininga
um efnisgæði og framkvæmdir og gerð útboðs- og verklýsinga. Einnig
eru þar rekin tæki til gagnaöflunar og mælinga ásamt framkvæmd og
úrvinnslu mælinga.
Starf forstöðumanns er með starfsstöð í Reykjavík.
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Háskólapróf í verk-, tækni-, eða jarðfræði, meistarapróf æskilegt.
→ Reynsla af stjórnun kostur.
→ Reynsla af gerð reglna og leiðbeininga.
→ Þekking og reynsla á sviði mannvirkjagerðar.
→ Frumkvæði, skipulagshæfni og faglegur metnaður.
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús V. Jóhannsson,
framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs, mvj@vegagerdin.is í síma 522-1005.
Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni á áhugaverðum vinnustað.
Vegagerðin leggur áherslu á góðan starfsanda, góð starfsskilyrði og
jafnræði kynjanna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna
starfinu.
Umsóknarfrestur er til og
með 6. janúar 2021.
Um 100% störf er að ræða.
Tekið skal fram að umsóknir
geta gilt í sex mánuði frá
því að umsóknarfrestur
rennur út.
Öllum umsóknum um
störfin verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Nánari upplýsingar má finna
á www.starfatorg.is og
www.vegagerdin.is
Laun eru greidd samkvæmt
kjarasamningi ríkisins og
viðkomandi stéttarfélags.