Fréttablaðið - 19.12.2020, Síða 57

Fréttablaðið - 19.12.2020, Síða 57
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Vegagerðin auglýsir fjögur störf laus til umsóknar Áhugasamir eru beðnir um að sækja um störfin á www.vegagerdin.is Forstöðumaður hönnunardeildar Vegagerðin leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf forstöðumanns hönnunardeildar. Áhersla er lögð á að forstöðumaður hafi þekkingu á hlutverki og starfsemi Vegagerðarinnar, búi m.a. yfir þekkingu og reynslu af hönnun samgöngumannvirkja, stjórnun, áætlanagerð og góðri færni í mannlegum samskiptum. Hönnunardeild hefur yfirumsjón með hönnunarstjórnun og hönnun vega, jarðganga, brúa og annarra vatnavirkja fyrir nýbyggingar og viðhald ásamt gerð verk- og útboðslýsinga. Einnig jarðtæknilega og umferðartæknilega hönnun, mat á umhverfisáhrifum, umferðaröryggismat og umsjón með umferðaröryggisrýni. Deildin hefur jafnframt umsjón með aðkeyptri hönnun frá verkfræðistofum. Hönnunardeild er með starfsemi í Reykjavík og á Akureyri. Menntunar- og hæfniskröfur: → Háskólapróf í verk- eða tæknifræði, meistarapróf æskilegt → Reynsla af stjórnun og mannaforráðum → Marktæk reynsla af stýringu hönnunarverkefna. → Þekking og reynsla af hönnun samgöngumannvirkja. → Reynsla af áætlanagerð og verkefnastjórnun. → Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. → Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður → Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu. → Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. → Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús V. Jóhannsson, framkvæmda- stjóri mannvirkjasviðs - mvj@vegagerdin.is og í síma 522-1005. Forstöðumaður Stafrænir innviðir og ferlaþróun Vegagerðin leitar að framsýnum og metnaðarfullum einstaklingi í nýtt starf forstöðumanns stafrænna innviða og ferlaþróunar. Forstöðumaður ber ábyrgð á og hefur umsjón með gæðakerfi Vegagerðarinnar í samráði við forstjóra með áherslu á stafrænar lausnir og ferlaþróun í samstarfi við sérfræðinga og stjórnendur. Auk þess að veita sviðum ráðgjöf við ferlaþróun Vegagerðarinnar. Vinnan á sér stað þvert á starfsemi Vegagerðarinnar. Starfið tilheyrir skrifstofu forstjóra og starfstöðin er í Reykjavík. Menntunar- og hæfniskröfur → Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldspróf æskilegt. → Marktæk reynsla af stafrænni tækni. → Reynsla af innleiðingu nýs verklags og ferla. → Reynsla af stjórnun og verkefnastjórnun. → Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. → Frumkvæði, skipulagshæfni og faglegur metnaður. → Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu. → Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. Nánari upplýsingar um starfið veita Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri (bergthora.thorkelsdottir@vegagerdin.is) eða Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri (sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is) og í síma 522-1000. Deildarstjóri tæknideildar á Suðursvæði Vegagerðin auglýsir eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi til að sinna starfi deildarstjóra tæknideildar á Suðursvæði. Um er að ræða fullt starf og starfsstöðin er á Selfossi. Starfssvið Leitað er eftir verk- eða tæknifræðingi sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á sínu fagsviði. Áætlanagerð og tæknilegan undirbúning vegna nýframkvæmda og viðhaldsverka, umferðaröryggisverkefni og umsýsla vegna umsókna um nýja héraðsvegi ásamt umsjón með nýframkvæmdum. Menntunar- og hæfniskröfur → Verkfræðingur eða tæknifræðingur → Reynsla af ámóta störfum er kostur → Reynsla af verkefnastjórnun er kostur → Góð hæfni í mannlegum samskiptum → Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu → Frumkvæði og faglegur metnaður → Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi → Góð tölvukunnátta → Góð íslenskukunnátta → Kunnátta í ensku og einhverju Norðurlandamáli Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanur Bjarnason svæðisstjóri Suðursvæðis (svanur.g.bjarnason@vegagerdin.is ) og í síma 522 1000. Forstöðumaður stoðdeildar á mannvirkjasviði Vegagerðin leitar að metnaðarfullum einstaklingi í nýtt starf forstöðumanns stoðdeildar á mannvirkjasviði. Áhersla er lögð á að forstöðumaður hafi þekkingu á hlutverki og starfsemi Vegagerðarinnar, búi m.a. yfir þekkingu og reynslu á sviði mannvirkjagerðar, stjórnunar og góðri færni í mannlegum samskiptum. Stoðdeild er ný deild á Mannvirkjasviði. Deildin annast rannsóknir á jarðefnum, efnisleit, námurannsóknir, jarðvegskannanir, jarðvegslýsingar og rekstur rannsóknarstofu. Hefur umsjón með gerð reglna og leiðbeininga um efnisgæði og framkvæmdir og gerð útboðs- og verklýsinga. Einnig eru þar rekin tæki til gagnaöflunar og mælinga ásamt framkvæmd og úrvinnslu mælinga. Starf forstöðumanns er með starfsstöð í Reykjavík. Menntunar- og hæfniskröfur → Háskólapróf í verk-, tækni-, eða jarðfræði, meistarapróf æskilegt. → Reynsla af stjórnun kostur. → Reynsla af gerð reglna og leiðbeininga. → Þekking og reynsla á sviði mannvirkjagerðar. → Frumkvæði, skipulagshæfni og faglegur metnaður. → Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu. → Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. → Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús V. Jóhannsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs, mvj@vegagerdin.is í síma 522-1005. Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni á áhugaverðum vinnustað. Vegagerðin leggur áherslu á góðan starfsanda, góð starfsskilyrði og jafnræði kynjanna. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2021. Um 100% störf er að ræða. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um störfin verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar má finna á www.starfatorg.is og www.vegagerdin.is Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.