Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 92
Við byrjum eiginlega ekki há- tíðahald á aðfangadagskvöld fyrr en klukkan átta þegar við erum búin að mjólka kýrnar. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Magnúsdóttir Grænuhlíð 12, lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. desember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 23. desember kl. 11. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en streymt verður frá athöfninni. Sjá mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/ Gunnar Á. Harðarson Guðbjörg E. Benjamínsdóttir Steinunn Harðardóttir Guðrún Harðardóttir Árni Tryggvason og fjölskyldur. Elsku besti faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, Bjarni Kristjánsson fyrrverandi bóndi, Þorláksstöðum í Kjós, lést 13. desember á Landspítalanum. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju 22. desember kl. 13. Jarðsett verður í Reynivallakirkjugarði í Kjós. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir. Streymi frá athöfninni má finna á slóðinni: youtu.be/H7w-t_YGlT8 Kristján Bjarnason Jón Bjarnason Runólfur Bjarnason Þórunn Björk Jónsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Ágúst Bjarnason Christina Miller Inga Rún og Runólfur Kristófer Logi og Kolbrún Lind systkin og fjölskyldur. Okkar ástkæri Davíð V. Árnason til heimilis að dvalarheimilinu Brákarhlíð, Borgarnesi, lést þann 14. desember. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju þann 22. desember kl. 14. Fjölskyldan vill koma á framfæri kærum þökkum til starfsfólks dvalarheimilisins Brákarhlíðar fyrir alúðlega umhyggju og umönnun. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir útförina en athöfninni verður streymt á kvikborg.is Elín Davíðsdóttir Sigurbjörn J. Grétarsson Unnur Davíðsdóttir Guðjón Leifsson barnabörn og barnabarnabörn. Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Þökkum innilega samkennd og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Jóhanns Óskars Hólmgrímssonar fv. bónda í Vogi, Hvassaleiti 56, sem lést 31. október. Sigríður Jóhannsdóttir Jón Skúli Indriðason Hólmgrímur Jóhannsson Svanhvít Jóhannsdóttir Ragnar Axel Jóhannsson Olga Friðriksdóttir Ingvaldur Jóhannsson Ásdís Hallgrímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Guðrún Lilja Arnórsdóttir býr á Eiði í Grundarfirði, ásamt manni sínum Bjarna Snæbjörnssyni. Á þeirra landsvæði getur hvesst hressilega í suð- austanátt, en þegar ég slæ á þráðinn til hennar er hún nýkomin frá því að hengja rúmföt út á snúru því veðrið er svo gott. Ekki er um stórþvott að ræða því þau hjónin eru ein á bænum að hennar sögn. „Börnin tvö eru f login úr hreiðrinu, faðir minn er dáinn og mamma komin á dvalarheimili í Grund- arfirði. Þetta gerðist dálítið skarpt. Allt í einu vorum við Bjarni bara orðin tvö eftir,“ segir hún. „En maður aðlagar sig lífinu og þeim breytingum sem verða. Tíminn hefur þær í för með sér. Við höldum okkar striki með búskapinn og bættum meira að segja við okkur vinnu, því við opnuðum gistingu í nýlegu húsi sem foreldrar mínir höfðu búið í. Auð- vitað hefur verið hlé á gististarfseminni þetta árið og ég var ekkert að ergja mig yfir því, bara glöð að fá smá pásu.“ Eru dálítið mikil jólabörn Nú víkjum við talinu að jólahaldinu á Eiði og undirbúningi stórhátíðarinnar. Verða þau hjónin bara tvö um jólin líka? „Nei, dóttirin Lilja Björk ætlar að koma heim með sinn kærasta á aðfangadag, hún er hjúkrunarfræðingur og er að vinna í nýju hjúkrunarrými fyrir eldra fólk á Sléttuveginum. Sonurinn, Sigur- björn, er búinn að ná sér í kærustu frá Akureyri og hann ætlar að fylgja henni þangað.“ Guðrún Lilja segir þau Bjarna vera dálítið mikil jólabörn. „Við setjum upp fullt af ljósum hér heima, bökum mömmukökur og f leiri smákökur enda fáum við okkur alltaf heitt súkkulaði og smákökur á jóladagsmorgun þegar við komum heim úr fjósinu. Erum búin að gera það alla okkar búskapartíð. Það er fastur punktur. En við byrjum eiginlega ekki hátíðahald á aðfangadagskvöld fyrr en klukkan átta þegar við erum búin að mjólka kýrnar. Svo er alltaf falleg messa í sjónvarpinu klukkan tíu um kvöldið og við fylgjumst mjög oft með henni. Það er hefð sem ég erfði frá foreldrum mínum sem bjuggu hér, þau horfðu alltaf á þessa messu. Jólahaldið gekk svona fyrir sig hjá þeim líka, þau voru hér með stórt bú. Þetta fylgir því að sinna því lífi sem er hér í húsunum í kring. Nú er náttúrlega fengitími hjá ánum, jólarúnturinn hjá hrútunum, svo það er að ýmsu að huga.“ Gott að heimsækja mömmu Ekki hvarf lar að Guðrúnu Lilju að kvarta þó hún fái ekki jólafrí í vinnunni sinni. „Við erum bara óskaplega þakk- lát á þessum tíma að hafa vinnuna hér við hliðina á okkur. Auðvitað reynum við að passa okkur á veirunni og höfum áhyggjur af henni. En ég fór þó einu sinni til Reykjavíkur í haust og hitti krakkana. Var svo alveg heima í fimm daga á eftir og fór ekkert á Grundar- fjörð til mömmu þá vikuna. Ætlaði nú ekki að vera sú sem kæmi með COVID úr Reykjavík og f lytti það inn á hjúkr- unarheimili. Annars má ég heimsækja mömmu tvisvar í viku og mér finnst alveg óskaplega gott að geta farið til hennar, læt það alveg ganga fyrir.“ gun@frettabladid.is Fá sér heitt súkkulaði og kökur á jóladagsmorgun Bændur með skepnur á fóðrum liggja ekki með tærnar upp í loft um jólin og þeir sem eiga kýr þurfa að sinna mjöltum. Þetta þekkja hjónin á Eiði í Grundarfirði, Guðrún Lilja Arn- órsdóttir og Bjarni Snæbjörnsson. En þau eru þakklát fyrir að hafa vinnuna sína heima. Skyldu Bjarni og Guðrún Lilja vera að skoða kökuuppskriftir? Þau hafa tvo bakaraofna í eldhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R60 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.