Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 16
Evrópusambandið
samþykkti aukafjárveitingu
til COVAX upp á 500
milljónir evra.
Ljóðabókin Vonin
er tilfinningabomba!
Öll sölulaun af bókinni renna óskipt til hjartadeildar Landspítalans
Allur ágóði a
f sölu bókar
innar Vonin
rennur til h
jartadeildar
Landspítala.
Anna Lára M
öller
Vonin
Anna Lára M
öller
A
nna L
ára M
öller Vonin
Kapa-01.indd
All Pages
08/09/2020
10:37:50
COVID-19 COVAX, verkefni Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) til að dreifa COVID-19
bóluefni til fátækari ríkja heimsins,
er hætt við að tefjast mikið. Þetta
kemur fram í skjölum WHO sem
fréttastofan Reuters hefur undir
höndum.
Takmarkið er að dreifa tveimur
milljörðum skammta af bóluefni,
að mestu leyti til landa Afríku, Asíu
og latnesku Ameríku, fyrir lok árs
2021. Í skjölunum kemur fram að
sum ríki gætu verið án bóluefnis til
ársins 2024.
„Það væri óábyrgt að meta ekki
áhættuna í svona risavöxnu og
f lóknu verkefni og gera áætlanir
og tæki til að lágmarka hana,“ segir
í yfirlýsingu frá Gavi, samtökum
ríkisstjórna, lyfjafyrirtækja og
góðgerðasamtaka sem standa að
COVAX ásamt WHO, þegar innt var
eftir svörum um skjölin.
Helsta ástæðan fyrir áhyggjunum
er fjármögnunin. Þrátt fyrir vilja-
yfirlýsingar vestrænna ríkja, sem
munu að stærstum hluta standa
undir fjármögnuninni, hefur illa
gengið að tryggja fjármagnið.
Á þriðjudag tilkynnti hins vegar
Evrópusambandið að lagðar yrðu
500 milljónir evra, 78 milljarðar
króna, til viðbótar inn í verkefnið,
ofan á þær 850 milljónir evra sem
þegar hafa verið lagðar til. Í yfir-
lýsingu sambandsins kom fram
að fjárstuðningurinn myndi duga
fyrir einum milljarði skammta af
bóluefnum til fátækari og í meðal-
lagi auðugra ríkja.
Kínverjar gengu til liðs við
COVAX í október en ekki er vitað
hversu miklu fjármagni þeir munu
veita til verkefnisins. Evrópusam-
bandið er því nú stærsti fjárstyrkt-
araðilinn og Bretland og Japan
koma þar á eftir. Hvorki Rússland
né Bandaríkin hafa gengið til liðs
við COVAX. Samstarfið gengur gegn
hugmyndafræði Donalds Trump
forseta, Ameríku fyrst, en vonast er
til þess að Bandaríkin gangi til liðs
við það eftir að Joe Biden tekur við
embætti þann 20. janúar.
Annað sem áhyggjur WHO bein-
ast að er framboðið af bóluefni.
Lyfjafyrirtæki á borð við Pfizer og
Moderna eru nú í óðaönn að fram-
leiða bóluefni en WHO stefnir á
að reiða sig á ódýrari bóluefni, til
dæmis frá Kína. Kínverjar segj-
ast geta framleitt tvo milljarða
skammta á einu ári. Fari svo að
hnökrar komi á framleiðsluna er
hætt við því að stuðningur við
fátækari ríki verði ekki efst á for-
gangslistanum.
Þriðja atriðið er flækjustig samn-
inga og stjórnmála. Það er, að hversu
miklu leyti skrifræði og átök vefjast
fyrir framkvæmd dreifingarinnar.
WHO hyggst koma upp COVAX
stöðvum víðs vegar um þau lönd
sem þiggja aðstoðina. Meðal þeirra
landa eru til dæmis Norður-Kórea
sem er með mjög strangar reglur
um útlendinga, Úkraína þar sem
aðskilnaðarsinnar stýra stórum
hluta landsins og Jemen þar sem
eru vopnuð átök. Útlit er því fyrir
að dreifingin takist ekki sem skyldi
alls staðar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Fátækari ríki gætu þurft að
bíða í þrjú ár eftir bóluefni
Evrópusambandið ákvað í vikunni að bæta umtalsverðu fé við stuðninginn við COVAX, dreifingarverk-
efni COVID-19 bóluefnis til fátækari ríkja. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur áhyggjur af fjármögn-
un verkefnisins, framboði á bóluefni og hættunni á því að geta ekki komið öllum dreifistöðvum á fót.
WHO reiðir sig á ódýrari bóluefni en þau sem Pfizer og Moderna framleiða. Til dæmis frá Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GÓÐGERÐARMÁL „Íslendingar eru
stórhjartaðir og standa með minni-
máttar, sérstaklega fyrir jólin. Ljós
og friður er því miður ekki jólasiður
alls staðar,“ segir Sigurður Mikael
Jónsson, verkefnastjóri hjá UNICEF
á Íslandi. Þar stefnir í metsöluár í
Sönnum gjöfum þar sem fólk kaupir
hin ýmsu hjálpargögn handa nauð-
stöddum börnum um allan heim.
„Þetta er ótrúlega vinsælt og sífellt
f leiri sem stinga þessum gjafabréf-
um með í jólapakkana. Sumir klára
bara jólagjafainnkaupin á sannar-
gjafir.is,“ segir Sigurður og segir
að þegar árið verði gert upp muni
Íslendingar hafa keypt neyðargögn
fyrir tugi milljóna og bjargað fjöl-
mörgum lífum. – bþ
Metsöluár hjá
UNICEF
STJÓRNSÝSLA Lélegar brunavarnir
og ástand hússins eru helstu ástæð-
ur þess að bruninn á Bræðraborgar-
stíg var jafn skæður og raunin varð.
Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæð-
is- og mannvirkjastofnunar. Þrír
íbúar hússins létust í brunanum og
tveir slösuðust alvarlega. Einn hefur
verið ákærður fyrir íkveikju, mann-
dráp og tilraun til manndráps.
Niðurstaða stofnunarinnar er
óháð því hvort kviknað hafi í af
mannavöldum eða ekki. Um var að
ræða yfir hundrað ára gamalt for-
skalað timburhús sem ekki var vel
úr garði gert með tilliti til bruna-
varna. Upphaf legar teikningar
liggja ekki fyrir, og nýjustu teikn-
ingarnar tuttugu ára gamlar. Bruna-
varnir sem sáust á þeim teikningum
voru ekki lengur til staðar.
Þá hafði inngangi á annarri hæð
hússins á einhverjum tímapunkti
verið lokað með þeim afleiðingum
að í stað tveggja flóttaleiða úr íbúð-
inni var bara ein flóttaleið.
Í skýrslunni kemur fram að vett-
vangur hafi ekki verið fullmann-
aður af hálfu slökkviliðsins fyrr en
seinni dælubíllinn kom á staðinn 11
mínútum og 50 sekúndum eftir að
útkallið barst, þar sem bíllinn var
að sinna öðru alvarlegu útkalli. Það
er umfram það 10 mínútna viðmið
sem kveðið er á um fyrir umrætt
útkallssvæði í reglugerð. Skýrslu-
höfundar komst að þeirri niður-
stöðu að fullmannaður vettvangur
strax 7 mínútum eftir útkall hefði
ekki breytt því hvernig fór. – uö
Brunavarnir brugðust
Þrír létust í brunanum í júní síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JAPAN Rúmlega þúsund einstakl-
ingar voru neyddir til þess að sofa
í bílum sínum á fimmtudaginn á
hraðbraut sem tengir höfuðborgina
Tókýó við Niigata. Fyrstu bílarnir
festust aðfaranótt fimmtudags og
fór að bætast í röðina á fimmtu-
daginn. Um tíma var röðin tæplega
sautján kílómetra löng.
Stjórnvöld í Japan sendu við-
bragðsteymi af stað á fimmtu-
daginn með eldsneyti, teppi og mat
fyrir einstaklinga sem voru fastir
inni í bílum. Um leið voru fjölmarg-
ir að vinna í því að grafa út bíla með
aðstoð vinnuvéla. – kpt
Þúsund Japanir
festust í snjó
Erfiðlega hefur gengið að losa bíla
úr snjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð