Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 86
Segja má að matseld og bakstur sé veigamikill þáttur í líf i Berglindar sem heldur úti vefsíðunni Gotterí og gersemar. Þó að hún segist vera mikið jóla­ barn er hún ekki mjög fastheldin á hefðir í kringum þennan árstíma. „Ég elska aðventuna, jólaljós, jóla­ skraut, kerti og kósí í desember. Ég er ekki svakalega föst í hefðum en mér finnst bakstur og góðar sam­ verustundir mikilvægustu jólahefð­ irnar. Við gefum okkur meiri tíma til að spila, baka og elda saman á þessum tíma og erum alltaf að vinna með eitt nýtt jólapúsl um hver jól,“ segir Berglind. Möndlugrautur í hádeginu „Amma Guðrún fór alltaf með okkur systurnar að sjá þegar kveikt var á Oslóartrénu þegar við vorum litlar og mér finnst gaman að gera það ef veður og aðstæður leyfa. Nú til dags er það líka Novasvellið sem hefur verið að toga okkur niður í bæ í jóla­ stemninguna. Einnig finnst mér við alltaf þurfa að gera piparkökur og skreyta með glassúr og ef tími gefst til er æðislegt að útbúa laufabrauð. Tengdamamma býður síðan öllum börnunum sínum og fjölskyldum í möndlugraut í hádeginu á aðfanga­ dag og mér finnst það kósístund og dásamlegt að hitta alla áður en hver heldur til sinna heima að halda jólin hátíðleg,“ útskýrir Berglind. Tvíréttað á aðfangadag Það er ekki annað hægt en spyrja matgæðinginn út í jólamatinn en Berglind segir hamborgarhrygg hafa átt vinninginn undanfarin ár. „Ég eldaði reyndar rjúpur í fyrsta skipti fyrir tveimur árum þegar systir mín var með okkur á aðfanga­ dag og endurtók leikinn í fyrra. Ég hugsa því að það verði tvíréttað héðan í frá þar sem maðurinn minn elskar rjúpurnar. Það er í raun sama meðlæti sem gengur með þeim og hamborgarhryggnum nema við gerum tvær mismunandi sósur.“ Bókaútgefandi á haus fyrir jólin Berglind segir allan gang á því hvenær jólaundirbúningur hefst á heimilinu. „Í ár var jólatréð full­ skreytt 8. nóvember á meðan það gæti verið það á Þorláksmessu á næsta ári,“ segir hún og hlær. „Jólaundirbúningurinn hefst bara þegar við höfum tíma til hverju sinni. Núna í ár er ég auðvitað á haus sem bókahöfundur, útgef­ andi, lagerstarfsmaður og sendill samhliða blogginu, en er engu að síður að keppast við að gleyma ekki því sem skiptir máli, skulum sjá hvernig það á eftir að ganga,“ segir Berglind bjartsýn að lokum en hún gaf sjálf út á dögunum bókina Saumaklúbburinn sem inniheldur 140 uppskriftir. Bókin seldist upp í síðasta mánuði og er nýkomin aftur og fáanleg á gotteri.is. Hátíðleg vanillukaka með kókosblæ n 1 x Betty Crocker Vanilla Cake Mix n 3 egg n 100 ml ljós matarolía n 100 ml vatn n 100 ml kókosrjómi n 100 g kókosmjöl Hitið ofninn í 160°C og penslið 3 x 15 cm kökuform vel með matarolíu. Hrærið saman eggjum, matar­ olíu, vatni og kókosrjóma í hræri­ vélarskálinni. Bætið kökuduftinu saman við og hrærið á meðalhraða í nokkrar mínútur, skafið niður á milli. Bætið að lokum kókosmjölinu í deigið og blandið létt. Skiptið deiginu jafnt á milli form­ anna og bakið þar til prjónn kemur hreinn út (um 25 mínútur). Vanillu- og kókoskrem n 80 g smjör við stofuhita n 100 g rjómaostur við stofuhita n 1 kg flórsykur n 100 ml kókosrjómi n 2 tsk. vanillusykur Hrærið saman smjör og rjómaost þar til það er létt og ljóst. Bætið öðrum hráefnum saman við á víxl og skafið niður á milli. Þeytið þar til létt og ljóst krem hefur myndast. Skraut og samsetning n Gróft kókosmjöl n 8 stk. hvítar Lindor-kúlur Smyrjið rúmlega 1 cm af kremi á milli botnanna og hjúpið kökuna með þunnu lagi af kremi, kælið þar til kremið fer að taka sig (um 30 mínútur). Smyrjið þá næstu umferð af kremi á alla kökuna til að þekja hana vel og sléttið vel úr toppnum og hliðunum. Takið fulla lúku í senn af kókos­ mjöli og rennið upp hliðarnar frá botni og upp að toppi. Gott er að gera þetta yfir bökun­ arskúffu til þess að umfram kókos­ mjöl geti hrunið niður í skúffuna. Þegar hliðarnar eru vel þaktar kókosmjöli má set ja k rem í sprautupoka með stórum stjörnu­ stút (til dæmis 2D frá Wilton) og sprauta 8 toppa allan hringinn efst á kökunni. Að lokum má setja Lindor­kúlu á hvern smjörkremstopp og geyma síðan kökuna í kæli. Jólabollakökur með kanilkeim Um 15-17 stykki n 120 g smjör við stofuhita n 100 g púðursykur n 2 egg n 120 ml nýmjólk n 150 ml hlynsíróp n 1 tsk. vanilludropar n 220 g hveiti n 1 tsk. lyftiduft n ½ tsk. matarsódi n ½ tsk. salt n 2 tsk. kanill n ½ tsk. engifer n ½ tsk. negull Hitið ofninn í 175°C. Þeytið smjör og púðursykur þar til það er létt og ljóst. Bætið eggjunum saman við, einu í einu og skafið niður á milli. Blandið restinni af þurrefnunum saman í aðra skál. Næst má setja mjólk og síróp saman við smjörblönduna og loks þurrefnin í nokkrum skömmtum. Skafið vel niður á milli og hrærið þar til deigið verður slétt og fínt. Skiptið því niður í bollaköku­ formin, fyllið um 2/3 af hverju formi. Bakið í 18­20 mínútur og kælið áður en kremið er sett á. Rjómaostakrem n 190 g rjómaostur við stofuhita n 75 g smjör við stofuhita n 590 g flórsykur n 2 tsk. vanillusykur n 2 tsk. hlynsíróp Þeytið saman smjör og rjómaost þar til það er létt og ljóst. Bætið þá öðrum hráefnum saman við í nokkrum skömmtum, skafið vel niður á milli og hrærið þar til fallegt og slétt krem hefur myndast. Setjið kremið í sprautupoka með stórum stjörnustút (til dæmis 1M frá Wilton) og sprautið vel af kremi í spíral á hverja köku, skreytið með kökuskrauti áður en kremið storkn­ ar að utan. Bakstur mikilvæg hefð á jólunum Berglind Hreiðarsdóttir er mikið jólabarn og segir bakstur og góð- ar samverustundir vera mikilvægustu jólahefðirnar. Við fengum Berglindi til að baka fyrir lesendur og er útkoman sérlega girnileg. Jólabollakökurnar hennar Berglindar með kanilkeim og rjómaostakremi slá í gegn í hvaða jólakaffiboði sem er. Hátíðleg vanillukaka með kókosblæ og hvítum Lindor-kúlum að hætti Berglindar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Glæsilegt jólatré Berglindar fór upp fyrir rúmum mánuði. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R54 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.