Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 96
Listaverkið
Lísaloppa og Róbert voru
að skreyta jólatréið og
skemmtu sér konunglega
við það. Hlóðu á það öllu
því fallega sem þeim
langaði til „Þetta nnst
mér nú allt of skreytt
jólatré,“ sagði Kata. „Ég
meina, hvað eru eiginlega
margar rauðar kúlur á
þessu tré? Eða kerti?“
Konráð byrjaði að telja
og varð að viðurkenna
að þær væru ansi margar
kúlurnar og kertin.
„Að ekki sé minnst á
brosandi stjörnurnar,“
bætti Kata við.
„Svona, svona,“ sagði
Lísaloppa. „Hvar er
jólaandinn Kata mín.
Þú þar ekki alltaf að
hafa allt á hornum þér.
Reyndu frekar að njóta
jólanna.“ Kata horfði
smástund þögul á tréð.
„Já, kannski, en þið verðið
að viðurkenna að þið
vitið ekkert hvað þið
eruð búin að setja
margar rauðar kúlur
á tréð.“ Það urðu
þau að viðurkenna.
Þær voru jú
orðnar ansi
margar.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
434
Getur þú
talið allar ra
uðu
jólakúlurna
r,
kertin og br
osandi
stjörnurnar
?
?
?
? ?
?
Lausn á gátunni
Á trénu eru 28 rauðar kúlur, 5 brosandi stjörnur og 17 kerti.
?
Matthildur Saga er sex ára og þegar
þetta viðtal birtist þá er hún akk-
úrat að byrja í jólafríi. Ég ætla samt
að hefja það á að spyrja hana aðeins
um skólann.
Matthildur, hvað heitir skólinn
þinn? Álftamýrarskóli.
Hvað finnst þér mest gaman að
læra þar? Mér finnst skemmtilegast
í stærðfræði. Sérstaklega jólastærð-
fræði.
Ég hef aldrei heyrt um hana.
Hvernig er hún? Jólastærðfræði
er þegar maður gerir jólaleg stærð-
fræðidæmi og kennari gerir jóla-
hefti.
Já, svoleiðis. En æfir þú eitthvað...
á hljóðfæri, íþróttir eða annað? Ég
æfi fimleika hjá Ármanni.
Hvað er skemmtilegast við fim-
leikana? Að læra eitthvað nýtt eins
og að sveifla sér á tvíslá.
Snúum okkur að jólunum. Hvert
er uppáhalds jólalagið þitt? Uppá-
halds jólalagið mitt er Þú komst
með jólin til mín.
Hver er uppáhalds jólasveinn-
inn þinn? Það eru tveir. Stúfur því
að hann er lítill og Kertasníkir því
að ég held að hann gefi mér oftast
bók í skóinn.
Hvaða bók finnst þér best? Bókin
sem ég er að lesa núna. Hún heitir
Stúfur hættir að vera jólasveinn.
Það hlýtur nú að vera skrítin bók?
Já, hinir jólasveinarnir voru svo
stressaðir að hann Stúfur vildi ekki
vera með þeim í liði.
Úbbs. En hvernig leikur þú þér
helst þegar þú ert heima? Ég er oft
að teikna og lita.
Eru gæludýr heima hjá þér? Nei, en
kannski fáum við hund eftir fjögur
ár. Hundar eru uppáhalds dýrin
mín.
Hefur þú einhvern tíma farið upp
í sveit? Já, ég hef farið á Snæfellsnes.
Þar eru margir selir. Snæfellsnes er
uppáhaldssveitin mín. Svo á ég
uppáhaldsstað í útlöndum sem ég
hef aldrei komið á. Það er Ameríka.
Ég er nefnilega bæði íslenskur og
bandarískur ríkisborgari en ég
hef aldrei komið til Ameríku. Mig
langar samt að fara þangað, sérstak-
lega til Washington DC og að fara í
heimsókn til frændfólks míns í Kali-
forníu.
En hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Fimleikastjarna.
Til hvers hlakkar þú mest um
jólin? Bara að vera með fjölskyld-
unni á hátíðinni.
Jólastærðfræðin
skemmtilegust í skólanum
Matthildur er að byrja í jólafríi og hlakkar til jóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Ég er nefnilega bæði
íslenskur og banda-
rískur ríkisborgari en ég hef
aldrei komið til Ameríku.
Þessa mynd fengum við frá Natanas Leskys. Þarna
er sólin lágt á lofti eins hún er í skammdeginu.
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R64 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR