Fréttablaðið - 19.12.2020, Side 93

Fréttablaðið - 19.12.2020, Side 93
Bókin um Grýlu er sjálfstætt framhald bókar sem ég gaf út í fyrra og heitir Sagan af því hvers vegna jóla-sveinarnir hættu að vera vondir. Grýla kom þar fyrir sem stjórnsöm, örg og frek. Þess vegna fannst mér ég verða að komast að því af hverju hún varð eins og hún varð – eitt- hvað hlaut að hafa gerst,“ segir Kristín Heimisdóttir sálfræðingur um nýja bók sína: Sagan af því þegar Grýla var ung og hvers vegna hún varð illskeytt og vond. Sjálf kveðst Kristín hafa alist upp við Grýlusögur. „Mér var, eins og mörgum íslenskum börnum, hótað því að Grýla kæmi ef við værum ekki þæg og góð, þannig að ég bar óttablandna virðingu fyrir henni. Þótti hún alltaf áhugaverð og bók með kápumynd af henni með pokann sinn var hálfgerð biblía á heim- ilinu.“ Kristín býr á Þórshöfn og starfar sem sálfræðingur hjá Virk. „Ég hef búið hér frá árinu 2004, kom þá úr Reykjavík en er uppalin á Akureyri og Dalvík, kynnt- ist svo manni á Þórshöfn og elti ástina. En var ákveðin í að láta ekki búsetuna stoppa mig í að sinna faginu og hef haft nóg að gera í fjarþjónustu. Í haust var ég að kenna sálfræði við Þekkingarnet Þingeyinga, það var skemmtilegt.“ Svo eru það ritstörfin. Kristín segist óhikað nota gömul íslensk orð í sínar sögur enda fjalli þær um þjóðlegt efni. „Ég vil að við verndum tungumálið okkar og því þarf að vera auðugt málfar á barnabókum. Svo var ég svo heppin að komast í samband við bráðflinkan myndskreyti á Ítalíu sem heitir Cecilia Latella. Við höfum samskipti á ensku gegnum tölvupóst. Hún var í útgöngu- banni í Napólí þegar hún teiknaði í þessa bók, algerlega innilokuð með Grýlu!“ Kristín tekur fram að Grýlubókin sé fyrst og fremst skemmtileg. „Bókin ber líka þann boðskap að allir geti breytt hegðun sinni og bætt framkomuna, jafn- vel Grýla, sem á endanum viðurkennir að hafa hagað sér eins og fíf l í 300 ár.“ gun@frettabladid.is Elskuleg eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, Guðrún Lára Hraunfjörð fædd í Reykjavík 23. júlí 1938, Sjávargötu 7, Álftanesi, lést í faðmi fjölskyldu sinnar þann 5. desember síðastliðinn. Að eigin ósk hefur bálför farið fram í kyrrþey. Við þökkum auðsýnda samúð og hlýju í okkar garð á þessum erfiða tíma. Blessuð sé minning hennar. Gunnar Eyjólfsson frá Lambavatni og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Kristín Guðmundsdóttir Lynggötu 3, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold, Garðabæ, miðvikudaginn 16. desember. Útförin fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 22. desember kl. 13. Vegna aðstæðna munu eingöngu nánustu aðstandendur vera viðstaddir, streymi verður á Facebook-síðunni, Útför-Kristín Guðmundsdóttir William Þór Dison Eðvarð Þór Williamsson Sigurbjörg Sigurðardóttir Stefanía Sif Williamsdóttir Óskar Þór Gunnarsson William Þór, Snædís Líf, Nökkvi Þór, Hrannar Þór, Elísa Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, Gunnhildar Júlíu Júlíusdóttur Vesturgötu 43, Akranesi. Guð blessi ykkur öll. Smári Hannesson Ásdís Elín Smáradóttir Birgir Örn Hansen Gunnhildur Priyani Hansen Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Júlíu Kristínar Adolfsdóttur Furubyggð 16, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans fyrir hlýju og góða umönnun. Kolbeinn Guðmannsson Sigurbjörn Ragnarsson Hlín Gunnarsdóttir Gunnsteinn Adolf Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Yngvason lést á Landspítalanum, sunnudaginn 13. desember. Útförin fór fram í Fossvogskirkju þann 18. desember. Súsanna Sveinsdóttir Kosicki Sigurður Yngvi Sveinsson Guðveig Elísdóttir Anton Sveinsson Jody Towson Sveinn Júlían Sveinsson Kristín Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, Margaretar Ross Scheving Thorsteinsson hjúkrunarfræðings. Gunnar Bent Scheving Thorsteinsson Carole Ann Scheving Thorsteinsson Guðrún M. Scheving Thorsteinsson Ósk S. Scheving Thorsteinsson Þorsteinn Scheving Thorsteinsson Ástríður Scheving Thorsteinsson Karl Trausti Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. Hugheilar þakkir til allra sem sýndu fjölskyldunni hlýhug og samkennd við andlát okkar ástkæra Pálmars Vígmundssonar Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, áður Árholti. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust Pálmar í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Jónasdóttir Ingi Ragnar Pálmarsson Guðrún Ólafsdóttir Vígmundur Pálmarsson Anna Hansdóttir Sigrún Pálmarsdóttir Þröstur Þorgeirsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, tengdafaðir, afi og bróðir, Ólafur Þór Jónsson pípulagningameistari, lést á heimili sínu þann 10. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þann 28. desember kl. 13.00. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Útförinni verður streymt á slóðinni facebook.com/groups/390725862179919 Guðrún Guðmundsdóttir Arndís Helga Ólafsdóttir Gunnbjörn Viðar Sigfússon Magnús Einar Ólafsson Helga María Guðmundsdóttir Jón Berg Halldórsson Helga Sigurgeirsdóttir barnabörn, systkin og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Öldu Vilhjálmsdóttur Bárustíg 1, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra á Sauðárkróki fyrir alúð og umhyggju. Vilhjálmur Egilsson Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir Ásta Egilsdóttir Lárus Sighvatsson Bjarni Egilsson Elín Petra Guðbrandsdóttir Árni Egilsson Þórdís Sif Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Þórgunnar Rögnvaldsdóttur Ægisgötu 1, Ólafsfirði. Ármann Þórðarson Rögnvaldur Ingólfsson Jörgína Ólafsdóttir Auður Guðrún Ármannsdóttir Sveinn E. Jakobsson Þórður Ármannsson Ester Jónasdóttir Sigrún Eva Ármannsdóttir Andri Dan Róbertsson barnabörn og barnabarnabörn. Notar gömul íslensk orð Kristín Heimisdóttir fléttar saman sálfræði og ævintýrablæ í nýrri bók sem bregður ljósi á bakgrunn Grýlu og skýrir hví hún varð jafn illskeytt og fornar sögur herma. „Mér var, eins og mörgum íslenskum börnum, hótað því að Grýla kæmi ef við værum ekki þæg og góð,” segir Kristín. Mynd/aðsend Það pirraði Kristínu að lesa fyrir börnin sín um jólasveina sem birtast sem ill- menni í gömlum sögum en eru á seinni árum orðnir góðir. T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 61L A U G A R D A G U R 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.