Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 75
Leikir framundan:
Lengjudeild karla
ÍBV - Keflavík
Hásteinsvöllur lau. 12/9 kl. 14:00
Víkingur Ó. - Grindavík
Ólafsvíkurvöllur lau. 12/9 kl. 14:00
Keflavík - Fram
Nettóvöllurinn mið. 16/9 kl. 16:30
Grindavík - Leiknir R.
Grindavíkurvöllur mið. 16/9 kl. 16:30
Lengjudeild kvenna
Keflavík - Afturelding
Nettóvöllurinn lau. 12/9 kl. 13:00
2. deild karla
ÍR - Þróttur
Hertz-völlurinn mið. 9/9 kl. 17:15
Víðir - Selfoss
Nesfisk-völlurinn mið. 9/9 kl. 17:15
Njarðvík - Fjarðabyggð
Rafholtsvöllurinn mið. 9/9 kl. 17:15
Njarðvík - Kári
Rafholtsvöllurinn sun. 13/9 kl. 14:00
Þróttur - KF
Vogaídýfuvöllur sun. 13/9 kl. 16:00
2. deild kvenna
Sindri - Grindavík
Sindravellir lau. 12/9 kl. 14:00
Grindavík - HK
Grindavíkurvöllur þri. 15/9 kl. 17:00
3. deild karla
Reynir - Vængir Júpiters
BLUE-völlurinn lau. 12/9 kl. 14:00
Ægir - Reynir
Þorlákshafnarvöllur þri. 15/9 kl. 17:00
399
kr/kg
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
854
kr/pk
GOTT VERÐ alla daga
Kjúklingabringur
2.519
kr/kg
Epli
Rauð
Morgundögg frá Kaffitár
Malað, 400 gr
Keflavík í öðru sæti eftir sigur á Þór
Keflvíkingar eru í toppbaráttunni í Lengjudeild karla, þeir gerðu góða ferð til Akureyrar á
mánudaginn þar sem þeir mættu Þórsurum. Leikurinn var var mikilvægur fyrir Keflavík því
með sigri komust þeir í annað sæti deildarinnar, upp fyrir Leikni Reykjavík. Leiknum lyktaði
með 3:1 sigri Keflvíkinga og komu öll mörkin í fyrri hálfleik.
Það voru heimamenn sem byrjuðu leikinn betur og
skoruðu á 17. mínútu. Keflvíkingar jöfnuðu leikinn á 31.
mínútu þegar Rúnar Þór Sigurgeirsson tók góða auka-
spyrnu inn á teig Þórsara, boltinn barst til Joey Gibbs
sem afgreiddi hann í netið. 1:1.
Fimm mínútum síðar fengu Keflvíkingar hornspyrnu
sem Þórsarar náðu ekki að koma frá, boltinn barst til
Kian Williams sem átti góða sendingu á fjærstöng þar
sem Nacho Heras var einn og óvaldaður og skallaði
boltann í netið (36’).
Joey Gibbs var ekki hættur og bætti við lokamarkinu
rétt áður en flautað var til leikhlés eftir langa sendingu
Sindra fram völlinn. Þórsvörnin átti í erfiðleikum með
að koma boltanum frá og hár bolti barst til Gibbs sem
tók hann á kassann og lét svo vaða rétt fyrir utan víta-
teigsbogann. Boltinn söng í netinu, gullfallegt mark og
óverjandi fyrir markvörð Þórs. Staðan í hálfleik því 3:1.
Seinni hálfleikur var markalaus og Keflvíkingar voru
frekar líklegir til að bæta við en Þór að minnka muninn.
Með sigrinum komst Keflavík í annað sæti Lengju-
deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Fram og
einu stigi fyrir ofan Leikni Reykjavík. Keflavík á leik til
góða þar sem leik þeirra gegn Grindavík síðustu umferð
var frestað.
Þrettán spjalda leikur í Garðinum
Víðismenn tóku á móti Dalvík/Reynir á Nesfisk-vellinum í síðustu
umferð. leikurinn var afar mikilvægur báðum liðum en Víðir í situr
í þriðja neðsta sæti 2. deildar á meðan Dalvík/Reynir er í því næst-
neðsta.
Víðismenn náðu í tvígang forystu en gestirnir jöfnuðu á 30. mínútu
og aftur á 8. mínútu uppbótartíma.
Það leit út fyrir að Víðismenn væru að landa mikilvægum sigri en
þegar seinni hálfleikur var nánast liðinn fékk Dalvík/Reynir horn-
spyrnu og úr henni fór knötturinn í hönd leikmanns Víðis og því dæmd
vítaspyrna í þann mund sem leikurinn var að renna út. Gestirnir
jöfnuðu úr vítinu og grátlegt jafntefli niðurstaðan.
Njarðvíkingar nálgast toppinn
Njarðvíkingar mættu liði KF á útivelli í 2. deild karla og fóru með
sigur af hólmi. Njarðvíkingar hafa verið á góðri siglingu undanfarið
og vinna sig jafnt og þétt upp töfluna. Þeir eru nú í þriðja sæti, einu
stigi á eftir toppliðunum, Kórdrengjum og Selfossi, sem leika í dag.
Ivan Prskalo sem skoraði fyrsta mark Njarðvíkinga á 6. mínútu. KF
jafnaði leikinn á 29. mínútu en Prskalo kom Njarðvík aftur yfir á þeirri
35., tveimur mínútum síðar skoraði Bergþór Ingi Smarason þriðja mark
Njarðvíkinga og markahrókurinn Kenneth Hogg tryggði sigurinn með
marki á 78. mínútu. Lokatölur 4:2 fyrir Njarðvík.
Þróttur sigraði Völsung
Þróttarar mættu botnliði Völsungs á heimavelli sínum í 2. deild karla.
Það tók tíma fyrir Þróttara aðfinna leiðina að marki Völsunga en
þrátt fyrir markalausan fyrri hálfleik hafðist 3:0 sigur í lokin.
Með sigrinum eru Þróttarar enn nálægt toppi deildarinnar, sitja í
fjórða sæti aðeins þremur stigum frá Kórdrengjum og Selfossi sem
bæði eiga leiki í dag.
Mörk Þróttar skoruðu Alexander Helgason (57’ og 66’) og Hubert
Rafal Kotus (88’).
Reynismenn dottnir í annað sæti
Reynir Sandgerði mætti Hetti/Huginn á Egilsstöðum í síðustu um-
ferð. Höttur/Huginn sat í næstneðsta sæti 3. deildar karla fyrir leik
inn en Reynismenn, sem hafa setið á toppi deildarinnar í allt sumar,
sáu aldrei til sólar í leiknum og í fyrri hálfleik réðust úrslitin þegar
leikmenn heimamenn skoruðu tvö mörk gegn máttlitlum Reynis-
mönnum.
Reynismenn voru yfirspilaðir af heimamönnum og úrslit leiksins
urðu 2:0. Með tapinu hafa Reynismenn þá tapað þremur af síðustu
fjórum leikjum og dottið niður í annað sæti 3. deildar, tveimur stigum
á eftir KV.
Hólmar Örn Rúnarsson, þjálfari Víðis,
gengur niðurlútur af velli á meðan
spjaldaglaður dómari leiksins gefur
Guyon Philips að líta rauða spjaldið.
Ljósmynd: Facebook-síða knattspyrnudeildar Víðis
Konurnar
úr Keflavík
sigruðu á
Skaganum
Keflavík, sem situr í næstefsta sæti
Lengjudeildar kvenna, lék gegn
ÍA á Akranesi á sunnudag. ÍA er í
sjöunda sæti deildarinnar og áttu
Keflvíkingar í mestu vandræðum
með að brjóta niður varnarmúr
þeirra. Það hafðist þó skömmu
fyrir leikslok með marki Paula Isa-
bella Germino Watnick (86’).
Keflavík situr í öðru sæti, fjórum
stigum á eftir Tindastóli en á sjö
stig á Hauka sem eru í þriðja sæti.
Paula Watnick
skoraði markið
sem réði úrslitum
gegn ÍA.
vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 43