Fréttablaðið - 30.12.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 7 3 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0
útsalan
er hafin
Bólusetningardagurinn fyrsti var víða um land í gær en þá hófust bólusetningar gegn COVID-19. Þeir fyrstu til að verða bólusettir voru úr forgangshópum. Um er að ræða
starfsfólk í framlínu baráttunnar gegn faraldrinum og íbúa sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa. Bólusetningum verður fram haldið í
dag. Styttast fer í næstu sendingu bóluefnisins og þess varla langt að bíða að tekið verði til við að bólusetja þá sem eru neðar á forgangslista yfirvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
+PLÚS
VIÐSKIPTI „Það er mín skoðun að
það sé engan veginn raunhæft að
reka tvö flugfélög frá Íslandi sem eru
með Keflavíkurflugvöll sem tengi
miðstöð,“ segir Bogi Nils Bogason,
forstjóri Icelandair Group.
„Þetta hefur verið reynt tvisvar
áður,“ útskýrir Bogi í viðtali við
Markaðinn, „fyrst með Iceland
Express og síðar WOW air. Við
sjáum þetta aðeins á stórum alþjóð
legum flugvöllum.“
Bogi er maður ársins í íslensku
viðskiptalífi að mati dómnefndar
Markaðarins fyrir að hafa leitt Ice
landair, kerfislega mikilvægt fyrir
tæki, í gegnum vel heppnaða endur
skipulagningu og hlutafjárútboð
við gríðarlega erfiðar aðstæður.
Forsvarsmenn Play Air, nýs lág
gjaldaflugfélags sem boðaði komu
sína á markaðinn fyrir meira en ári,
hafa sagst vera tilbúnir að hefja flug
rekstur um leið og tækifæri gefst til
og langtímafjármögnun er í höfn.
Aðspurður segist Bogi ekki vera
hræddur við samkeppni en bendir á
að heimamarkaðurinn sé mikilvæg
ur og hjá okkur telji hann einungis
360 þúsund manns. „Þess vegna tel
ég ekki raunhæft að reka héðan tvö
f lugfélög til lengri tíma sem starf
rækja tengibanka.“
Í viðtalinu segir Bogi að það hafi
verið „mjög sérstakt að fara af stað í
útboð í september hjá stærsta og lík
lega mikilvægasta félagi landsins og
vita í raun ekkert um afstöðu helstu
hluthafanna nema PAR Capital sem
ætlaði ekki að taka þátt. Við vorum
því í algjörri óvissu.“
Tveir af fjórum stærstu lífeyris
sjóðum landsins, Birta og LIVE, voru
á meðal þeirra sjóða sem fjárfestu
ekki í útboðinu. Bogi viðurkennir
að „ við hefðum líkast til haft miklar
efasemdir um niðurstöðu útboðsins
vitandi að þessir tveir sjóðir ætluðu
sér ekki að taka þátt.“
Hann vonast til að núgildandi
sóttvarnareglum við landamærin
verði breytt fyrir til dæmis 1. mars.
„Þá held ég að ferðamannasumarið
geti orðið ágætt. En ef fyrirkomu
lagið verður óbreytt fram í maí eða
júní þá tel ég ljóst að sumarið sé í
raun farið.“ – hae / sjá Markaðinn
Óraunhæft að vera með tvö flugfélög
Forstjóri Icelandair, maður ársins í íslensku viðskiptalífi að mati dómnefndar Markaðarins, segir fullreynt að reka tvö innlend
flugfélög með tengimiðstöð á Íslandi. Fóru af stað í hlutafjárútboð án vissu um hvort lífeyrissjóðir eða aðrir hluthafar tækju þátt.
Bogi Nils Boga-
son, forstjóri
Icelandair Group