Fréttablaðið - 30.12.2020, Page 35
D-vítamín er eitt mikilvægasta vítamínið sem líkaminn þarfnast. Skortur á því
getur valdið ýmsum hvimleiðum
kvillum og í verstu tilfellum alvar-
legum heilsufarsvandamálum.
D-vítamín hjálpar okkur að vinna
kalk úr fæðunni til þess að fyrir-
byggja kalkskort. Beinþynning af
völdum kalkskorts er eitt algeng-
asta heilsufarsvandamálið hjá
öldruðum og má oftar en ekki rekja
beint til D-vítamínskorts. Því fyrr
sem við byrjum að taka inn D-víta-
mín að staðaldri, því betra.
D-vítamínskortur getur verið
lúmskur en afleiðingar til lengri
tíma geta verið tannskemmdir,
vöðvarýrnun, hárlos, beinverkir,
þreyta og slen og í kjölfarið þung-
lyndi.
Við fáum einfaldlega
ekki nóg
D-vítamín fáum við úr fæðu og úr
sólarljósinu en fjöldi rannsókna
sýnir fram á að nútímamaðurinn
fær ekki nóg af D-vítamíni úr
fæðunni. Og við sem búum á
norðlægum slóðum erum enn verr
sett því alla jafna fáum við of lítið
af sólarljósi, hvað þá í svartasta
skammdeginu. Því er algert lykilat-
riði að taka inn D-vítamín sem
bætiefni til þess að tryggja nægilegt
magn. Og munurinn leynir sér ekki
þegar líkaminn fær loksins nóg.
Orkublanda með D-vítamíni
og íslenskri burnirót
Orkublandan frá ICEHERBS inni-
heldur 2000 einingar af D-vítamíni
og hreina íslenska burnirót og kom
á markað í febrúar 2018. „Ég þróaði
þessa vöru með sjálfa mig í huga.
Mér fannst mikilvægt að tvinna
þessi innihaldsefni saman enda
hefur inntaka á bæði D-vítamíni og
burnirót reynst mér sjálfri gríðar-
lega vel í gegnum árin,“ segir Katrín
Amni Friðriksdóttir, framkvæmda-
stjóri og annar eigandi Náttúru-
smiðjunnar ehf., sem framleiðir
vörur undir vörumerkjunum ICE-
HERBS og ICEHERBS Skin.
„Ég verð sjálf ofboðslega þreytt á
veturna og myrkrið er mér gríðar-
lega erfitt. Ég hef alltaf verið svona
og á tímabili hélt ég að það væri ein-
faldlega eitthvað að mér á veturna.
Svo kom á daginn að mig vantaði
D-vítamín og smá búst í líkamann.
Skorturinn hafði mikil áhrif á lífs-
gæði mín. Það var erfitt að vakna á
morgnana og myrkrið hafði áhrif á
líkamsstarfsemina.
Orkublandan með D-vítamíni
og burnirót er sniðin fyrir þá sem
glíma við þetta sama skamm-
degisslen. Það er ótrúleg virkni í
Orkublöndunni enda fæ ég mikið af
góðum viðbrögðum frá neytendum
um hvað varan gerir þeim gott.
Flestallir finna mun á sér eftir að
hafa tekið Orkublönduna daglega
í 5-10 daga, og vaknar fólk mun
hressara.“
Hið norræna ginseng
Burnirótin er ein magnaðasta
lækningajurt sem vex á Íslandi og
eitt best geymda leyndarmál jurta-
ríkisins. Jurtin vex á norðlægum
slóðum og er afar þrautseig. Þá er
hún oft kölluð hið norræna gin-
seng en hún er þekkt fyrir einstök
áhrif sín á aukna orku, einbeitingu
og úthald. Áður fyrr var hún meira
að segja notuð til að auka frammi-
stöðu hermanna. Klínískar rann-
sóknir sýna einnig fram á að hún
hjálpar fólki að vinna gegn stressi
og álagi. Burnirótin er oft notuð til
að vinna gegn orkuleysi, sleni og
depurð og þannig vinnur hún vel
með D-vítamíninu. Innihaldsefni
sem Orkublandan frá ICEHERBS
samanstendur af eru algert dúndur
fyrir aukna orku, snerpu og úthald.
Í hverju hylki eru 2000 einingar af
D-vítamíni sem er viðmiðunargildi
fyrir efri mörk daglegrar meðal-
neyslu á D-vítamíni. Burnirótin
í Orkublöndunni er handtínd á
Íslandi, þurrkuð, verkuð og mulin.
Öll bætiefni ICEHERBS eru fram-
leidd á Blönduósi.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna í
neytendavæna vöru fyrir viðskipta-
vini. „Við hjá ICEHERBS leggjum
mikla áherslu á að framleiða hrein
og náttúruleg bætiefni sem byggja
á sjálfbærri nýtingu náttúruauð-
linda. Við kappkostum að vörurnar
nýtist viðskiptavinum okkar og að
virknin skili sér í réttum blöndum
og að eiginleikar efnanna viðhaldi
sér að fullu. Þá leggjum við áherslu
á að nota engin óþörf fylliefni.“
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum. Sjá nánar á
iceherbs.is.
Óþarfi að þjást í skammdeginu
Við þurfum ekki að sætta okkur við hið klassíska orkuleysi sem leggst yfir íslensku þjóðina í
skammdeginu eins og þung mara með tilheyrandi skammdegisþreytu, depurð og sleni.
Katrín Amni
Friðriksdóttir,
framkvæmda-
stjóri ICEHERBS
þróaði Orku-
blönduna með
sjálfa sig í huga,
enda hefur hún
góða reynslu
af notkun
D-vítamíns
og burnirótar
í baráttunni
við skamm-
degisþreytuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI.
Algengustu nýársheitin snúast um heilsurækt, að tileinka sér hollari lífsstíl,
grennast, styrkjast, borða hollar,
hætta að reykja og drekka minna.
Aðrir einsetja sér meiri ráðdeild
í fjármálum eða hreinlega að
njóta tilverunnar til fulls. Hér eru
nokkur áramótaheit til hvatningar
á nýju ári.
n Farðu oftar í göngutúra og
gakktu helst í 30 mínútur á
dag.
n Farðu fyrr í háttinn og líka
með makanum. Með meiri
og betri svefni eykst kynlífs-
löngun umtalsvert.
n Hrósaðu sjálfum þér oftar.
Það gerir þig hamingjusamari
og bætir svefninn.
n Borðaðu sítrusávexti oftar.
Þeir eru stútfullir af C-víta-
míni sem er gott fyrir húðina,
dregur úr hrukkumyndun og
húðþurrki.
n Losaðu um streitu með góð-
vild. Umhyggja fyrir sjálfum
þér lækkar blóðþrýsting og
svitamyndun sem eru ein-
kenni sem tengjast stressi.
n Borðaðu meira af bláberjum
og valhnetum. Bláber lækka
blóðsykur og blóðþrýsting og
minnka kviðfitu, og valhnetur
lækka slæmt kólesteról.
n Notaðu hádegispásuna í
vinnunni fyrir sjálfan þig í stað
þess að vinna áfram og borða
við skrifborðið.
n Gerðu eitthvað uppbyggilegt
og nýtt í frítímum, eins og að
prófa nýja uppskrift, fara á
myndlistarnámskeið eða leik-
sýningu.
n Farðu í gegnum fataskápinn
og gefðu gömul og góð föt til
góðgerðamála.
n Sótthreinsaðu símann oftar.
Farsímar bera með sér tíu
sinnum fleiri bakteríur en
flestar klósettsetur, ekki síst
ef farið er með þá í leiðangra á
klósettið.
n Lyftu lóðum til að byggja
upp vöðvamassa og aukinn
kraft, og tileinkaðu þér nýjar
æfingar.
n Drekktu meira vatn, ekki síst
ef það vantar upp á svefninn.
Þá þarf líkaminn aukinn
vökva.
n Gakktu upp stigann í stað
þess að taka lyftuna.
n Snæddu grænmeti oftar. Það
er gómsætt heilsufæði sem
hjálpar til við þyngdartap.
n Auktu við orðaforðann og
víkkaðu sjóndeildarhringinn
með því að hlusta á hljóð-
bækur ef þú hefur ekki tíma til
að lesa bækurnar sjálfur.
n Dreptu í sígarettunni og
fleygðu munntóbakssekkjun-
um. Tóbak er dauðans alvara
þegar kemur að vanheilsu og
ekki síst fyrir lungun.
n Lærðu jóga með makanum.
Það gerir ykkur afslappaðri
gagnvart líkömum hvors ann-
ars, eykur unað í samlífinu,
styrkir grindarbotnsvöðvana
og hefur áhrif á kynlöngun,
kynæsing og fullnægju.
n Spreyttu þig á nýjum rétti í
hverri viku til að borða fjöl-
breyttara fæði og öðlast nýjar
upplifanir.
n Gerðu sparnaðaráætlun sem
þú stendur við og uppskerð
aukin fjárráð til nauðsynja og
skemmtana.
n Dragðu úr áfengisneyslu.
Það þarf ekki vín til að hafa
gaman, auk þess sem minni
drykkja bætir skapið, svefninn
og húðina, styrkir ónæmis-
kerfið og sparar stórfé.
n Vertu þakklátari fyrir sjálfan
þig og það sem þú hefur. Það
eykur hamingju þína og vel-
líðan að hugsa um það góða
í lífi þínu og vera meðvitaður
um það sem þú hefur verið
blessaður með.
n Sæktu námskeið eða gerstu
meðlimur í klúbbi til að kynn-
ast nýju fólki sem deilir sömu
áhugamálum.
n Farðu oftar út í náttúruna.
Mannfólkið er ekki skapað
til þess að vera inni dagana
langa. Það styrkir ónæmis-
kerfi líkamans, gerir það
meira skapandi og hamingju-
samara.
n Njóttu litlu hlutanna í lífinu.
Að horfa á stjörnumergðina á
himinhvolfinu, ganga í grasi á
táslunum og klappa kisu sem
fer hjá.
n Notaðu hvert tækifæri til að
tjá ást þína og væntumþykju,
og hafðu vinsemd og hjálp-
semi að leiðarljósi.
n Haltu dagbók. Það hjálpar
við skipulagningu, að ná
settum markmiðum og betra
sambandi við tilfinningar og
langanir.
n Taktu þátt í sjálfboðastarfi.
Það gefur lífinu aukinn tilgang
ásamt því að auka sjálfstraust
og vellíðan.
Skorum okkur á hólm á nýja árinu
Árið 2021 heilsar með fögrum fyrirheitum á föstudag og mannfólkið heilsar því á móti með von
og bjartsýni í farangrinum. Margir strengja nýársheit af ýmu tagi, í átt til betra lífs og ríkari tilveru.
Framtíðin er óskrifað blað og gott veganesti að vanda hana vel. MYND/GETTY
8 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA