Fréttablaðið - 30.12.2020, Síða 37

Fréttablaðið - 30.12.2020, Síða 37
Margir stunda það að skruna mikið gegnum samfélags-miðla og fréttasíður, en sú venja getur auðveldlega skapað kvíða og ýtt undir vanlíðan. Þessir staðir eru alla jafna yfirfullir af slæmum fréttum og öðru áhyggju- efni og á þessu ári hefur það verið verra en nokkru sinni. Margir upp- lifa það samt að stunda þetta lang- tímum saman eða endurtaka þessa hegðun, jafnvel á áráttukenndan hátt. Þessi skaðlega hegðun er svo algeng að á ensku er komið sérstakt orð yfir hana, „doomscrolling“, sem mætti þýða sem dómsdags- skrun á íslensku. En þó að margir falli í þessa gryfju eru til leiðir upp úr henni. Á þessu ári hafa skapast kjörað- stæður til að láta dómsdagsskrun ná tökum á sér. Endalausar fréttir af faraldrinum og öðrum erfiðum málum í bland við samkomubönn sem hafa haldið fólki heima og við tölvur, hafa valdið því að margir hafa drukkið í sig slæmar fréttir af miklum krafti. En þessi venja fer illa með geðheilsuna, segja sérfræðingar. Rétt eins og slæmt mataræði veldur slæmri líkam- legri heilsu, er það óhollt fyrir hugann að innbyrða of mikið af neikvæðni. Vítahringur neikvæðni Sálfræðingurinn Dr. Amelia Aldao varaði við því í viðtali við frétta- vefinn NPR að dómsdagsskrun festi fólk í vítahring neikvæðni, sem valdi kvíða. „Hugar okkar eru hannaðir til að vera á varðbergi gagnvart ógn,“ segir hún. „Þeim mun meiri tíma sem við eyðum í að skruna, því meira finnum við þessar hættur og því meira sem við látum óttann við þær ná tökum á okkur, þeim mun kvíðnari verðum við.“ Þetta neikvæða efni getur svo valdið því að við sjáum heiminn í neikvæðu ljósi, bætir hún við. „Þá horfir þú í kringum þig og allt virðist svart og allt veldur þér kvíða. Þannig að þú leitar aftur í fréttirnar til að fá meiri upplýs- ingar,“ segir Aldao. Þannig viðhelst vítahringurinn. Leiðir upp úr gryfjunni Aldao rekur sálfræðistofu sem sér- hæfir sig í hugrænni atferlismeð- ferð og hefur hjálpað sjúklingum sínum að minnka dómsdagsskrun. Hún er með góð ráð. Settu tímatakmörk: Aldao segir að hún vinni mestmegnis með skjólstæðingum sem upplifa kvíða og að hún hafi reynt mikið að takmarka skrunið. Hún gerir það einfaldlega með því að segja fólki að setja sér tímatakmörk. Fólk vill vita hvað er að gerast í heiminum, þannig að lausnin er ekki að hætta að fara á netið, heldur að finna mörk. Verið meðvituð: Þegar farið er á fréttasíður eða samfélagsmiðla, eða bara í hvert sinn sem síminn er tekinn upp er gott að minna sig á af hverju þú ert þar, að hverju þú ert að leita og hvaða upplýsingar þú vilt finna. Svo þarf reglulega að spyrja sig: Hef ég fundið það sem mig vantaði? Skiptið neikvæðum venjum út fyrir jákvæðar: Það er líka mikilvægt að finna aðra hluti sem geta komið í staðinn fyrir óholla hegðun. Það er um að gera að fara t.d. í gönguferðir, hafa samband við vini sína, senda eitthvað fyndið til félaganna eða stunda skemmtileg áhugamál. Lykillinn er að eyða tíma sínum í hluti sem valda vellíðan og fylla lífið af jákvæðum tilfinningum og upp- lifunum. 10 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA Höfum hemil á neikvæðninni Það getur verið óhollt andlegri heilsu og skapað vítahring neikvæðni að velta sér of mikið upp úr slæmum fréttum, sem hefur verið nóg af á árinu. En það eru til ráð til að forðast slíka hegðun. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Ljósið sinnir endurhæfingu og stuðningi við þá sem greinast með krabbamein og aðstand- endur þeirra og þar er að finna verðmæta sérþekkingu. Til að gefa skjólstæðingum og fagfólki á landsbyggðinni aukið aðgengi að þessari þekkingu er búið að setja á fót tveggja ára tilraunaverkefni sem heitir Landsbyggðardeild Ljóssins, en það snýst um að nota fjarfundarbúnað til að koma fræðslu og þjónustu til skila. „Við bjóðum upp á þríþætta endurhæfingu; sálræna, félags- lega og líkamlega. Sálræni og félagslegi hlutinn er oft settur undir sálfélagslegan hatt og svo er líkamlegi hlutinn sér. Auðvitað skarast þetta, en meginmark- miðið er að viðhalda og bæta færni,“ segir Haukur Guðmunds- son sjúkraþjálfari. „Iðjuþjálfar og sálfræðingar eru meðal þeirra sem sinna sálfélagslega hlut- anum, sem snýst um daglegt líf og valdeflingu fólks og svo sinna sjúkraþjálfarar og íþrótta- fræðingar líkamlega hlutanum, sem snýst um að byggja upp líkamann, styrkja fólk í krabba- meinsmeðferð og vinna gegn aukaverkunum hennar.“ „Starfið er mjög fjölbreytt og við bjóðum upp á mikið af fræðslu, handverk, félagslega virkni og sköpum vettvang fyrir jafningjastuðning,“ segir Unnur María Þorvarðardóttir, iðjuþjálfi og verkefnisstjóri Landsbyggðar- deildar Ljóssins. „Ljósið hefur Bæta aðgengi að sérþekkingu Til að bæta aðgengi skjólstæðinga og fagfólks á landsbyggðinni að sérþekkingu og þjónustu Ljóssins hefur verið sett á fót sérstök landsbyggðardeild sem færir þjónustuna í heimabyggð. Búið er að setja á fót tveggja ára tilraunaverk- efni sem heitir Landsbyggðar- deild Ljóssins. Það snýst um að nota fjarfundar- búnað til að koma fræðslu og þjónustu Ljóssins til skila til fagfólks og skjólstæðinga á landsbyggðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI alltaf haft einstaka stemningu og við viljum að þau sem búa á landsbyggðinni og geta ekki komið og nýtt þjónustuna okkar fái líka að njóta hennar.“ „Það er rosalega heimilislegt hjá okkur og hér ríkir mikil gleði,“ segir Haukur. „Fólk er yfirleitt hissa á því hvað starfið einkenn- ist almennt mikið af gleði, þó að fólki sé auðvitað velkomið að hafa aðrar tilfinningar.“ Einstök sérþekking „Það er styrkleiki okkar starfsemi að við getum sérhæft okkur í einni sjúkdómsgreiningu og byggt upp þekkingu á afmörkuðu sviði,“ segir Unnur. „Við náum að vinna markvisst með það sem tengist krabbameini, en það eru oft sértæk vandamál sem geta fylgt því og þessi sérþekk- ing gefur okkur sérstöðu,“ segir Haukur. „Við getum hjálpað fólki og frætt það um hvað er eðlilegt og við hverju má búast.“ „Eitt af markmiðum Lands- byggðardeildar Ljóssins er að deila reynslunni með öðru fagfólki. Það er f lott þjónusta í boði víða um land en okkur langar að létta undir með fagfólki á landsbyggðinni með því að gera því kleift að leita til okkar og nýta þekkinguna sem Ljósið hefur aflað síðastliðin 15 ár,“ segir Unnur. „Þannig að þjónustan er ekki bara fyrir skjólstæðinga og notendur, heldur líka fagfólk.“ Mikil þjónusta í boði „Við byrjuðum að undirbúa þetta verkefni í fyrra, en COVID gerði fjarfundarbúnað og netsamskipti eðlilegri og auðveldari fyrir fólk og það hefur flýtt fyrir og auðveldað ferlið,“ segir Haukur. „Við þurftum að umbreyta þjónustunni vegna sóttvarnaráðstafana og færa hana að stóru leyti í rafrænt form og sú reynsla hefur nýst í verkefninu.“ Einfalt er að komast í tengsl við Landsbyggðardeild Ljóssins. „Fólk getur haft samband við okkur með sérstökum hlekk á heimasíðunni okkar eða með því að hringja eða koma við hjá okkur,“ segir Unnur. „Þá fer ákveð- ið ferli í gang og viðkomandi fær viðtal hjá iðjuþjálfa og sjúkraþjálf- ara svo hægt sé að átta sig á endur- hæfingarþörfinni. Við tökum við öllum sem hafa endurhæfingar- þarfir vegna krabbameins, sama hvar fólk er statt í veikindunum, en það er kostur að byrja sem fyrst eftir greiningu. Við bjóðum upp á ólík sérhæfð námskeið, viðtöl hjá sálfræðing- um, markþjálfun, fjölskylduráð- gjöf, næringarráðgjöf, líkamsrækt og fleira, allt í gegnum fjarfundar- búnað,“ segir Unnur. „Við aðstoð- um fólk líka við að nýta þjónustu í heimabyggð, bæði með fræðslu og hvatningu. Við munum einnig þróa verkefnið eftir þörfum svo þjónustan henti skjólstæðingum sem best. Við byrjuðum í nóvember en verkefnið er enn í mótun,“ segir Unnur. „Við erum að útbúa kynn- ingarefni sem verður aðgengilegt á netinu til að fólk geti séð hvað er í boði og hvernig er hægt að nýta það. Við stefnum svo á að senda kynningarefni af stað eftir áramót, bæði til fagaðila og skjólstæðinga. Vonandi sannar verkefnið gildi sitt og nýtist sem flestum.“ Nánari upplýsingar um Lands- byggðardeild Ljóssins er að finna á vef Ljóssins, ljosid.is Á samfélagsmiðlum og fréttasíðum er urmull af slæmum fréttum og öðru áhyggjuefni sem getur skapað kvíða og fest fólk í vítahring neikvæðni. En það eru til góð ráð til að verjast þessum neikvæðu áhrifum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.