Fréttablaðið - 30.12.2020, Síða 49
Jón Páll Sigmars-
son, sterkasti
maður í heimi, var
átrúnaðargoðið mitt í
æsku. Ég vissi að ég væri
sterk og vinur minn
manaði mig til að taka
þátt í keppninni um
Sterkustu konu Íslands.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
22 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA
Sem krakki hafði ég miklar áhyggjur af bumbunni á mér og fannst hún of stór, þótt ég
sæi síðar á myndum að bumban
á mér var ekkert stór. Svokallað
eplavaxtarlag með bumbum er
algengt í móðurfjölskyldunni
og ég var alltaf á innsoginu við
að halda maganum inni. Ég var
þéttholda, sveitasterk og vöðvuð,
en hef með tímanum lært að
klæða magann af mér og er farin
að taka hann í sátt. Ég veit að ég
verð aldrei tággrönn og mig langar
ekki heldur til þess, en ég vil líta
vel út og vera í það góðu formi að
ég geti alltaf farið í fjallgöngur og
átök án þess að vera að springa. Ég
stefni líka að því að verða rosalega
hraust gamalmenni,“ segir Anna
Björk Hjaltadóttir, verkefnastjóri,
heilsumarkþjálfi og sveitastelpa
frá bænum Fossnesi í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi.
Anna Björk var orðin 120 kílóa
sófakartafla þegar vatt hún kvæði
sínu í kross og léttist um fimmtán
kíló árið 2009.
„Árið á eftir stóð ég í stað en
árið 2011 náði ég af mér öðrum 25
kílóum þegar vinnufélagi minn á
Reyðarfirði sá hvað ég var dugleg
að hreyfa mig en að árangurinn
stóð á sér. Hann er sjúkraþjálfari
að mennt og sagðist vilja hjálpa
mér að létta mig. Hann tæki ekkert
fyrir það annað en skuldbindingu
frá mér um að standa mig og ef ég
svikist um eða gæfist upp myndi
hann hætta. Hann tók mataræði
mitt í gegn, ráðlagði mér borða kol-
vetni fyrri part dagsins og lét mig
halda matardagbók sem hann fór
yfir í viku hverri,“ útskýrir Anna
Björk, sem fann fljótt mikinn
árangur þegar hún fór auk þess
eftir stífu æfingaprógrammi vinar
síns.
„Jón Páll Sigmarsson var átrún-
aðargoðið mitt í æsku. Ég vissi
að ég væri sterk og vinur minn,
sjúkraþjálfarinn, manaði mig til að
taka þátt í keppninni um Sterk-
ustu konu Íslands. Ég fann mig
strax í aflraunaæfingum og keppti
þrisvar sinnum í Sterkustu konu
Íslands þar sem ég endaði í 2. sæti
árið 2016 og í fyrsta sæti í keppni
Hjalta Úrsusar, Stálkonunni, sama
ár,“ segir Anna, sem síðan hefur
stundað ólympskar lyftingar.
„Í kófinu hef ég ekki komið inn á
líkamsræktarstöð og stunda þess í
stað göngur og hreyfingu utan-
húss. Það hentar mér ofsalega vel.
Ég er meira að segja farin að hlaupa
aftur, eftir að hafa misst áhugann á
langhlaupum þegar ég hljóp hálft
maraþon 2012, en nú er mark-
miðið að hlaupa aldrei lengra en
10 kílómetra í einu og hlaupa mér
einungis til ánægju úti og fá ferskt
loft í lungun.“
Sjálfsskoðun skilar árangri
Eftir að hafa náð árangri í baráttu
við aukakílóin og tekið þátt í
aflraunakeppnum fann Anna
Björk löngun til að læra meira um
næringu og áhrif hennar á heilsu
og líðan.
„Ég lærði heilsumarkþjálfun við
Institute for Integrative Nutrition í
New York þar sem ég fékk fræðslu
um alls konar mataræði og mikil-
vægi einstaklingsmiðaðrar nálg-
unar ásamt aðferðum við mark-
þjálfun. Með þeirri þekkingu get
ég hjálpað fólki að skapa þess eigin
persónulegu leið til heilbrigðis
sem hentar hverjum og einum ein-
staka líkama, lífsstíl, áhugasviði
og markmiðum,“ segir Anna Björk,
sem eftir útskrift starfaði fyrsta
kastið við heilsumarkþjálfun.
„Markmiðið hjá mér var ekki að
starfa sem heilsumarkþjálfi í fram-
tíðinni heldur að læra um áhrif
matar á eigin líkama og heilsu.
Ég prófaði að starfa sem heilsu-
markþjálfi en fann mig ekki í því
starfi, en er þó alltaf til í að deila
því sem ég hef lært á eigin skinni.
Í skólanum lærði ég að matur er
meðalið. Matur hefur mismunandi
áhrif á líkamann og maður getur
komið veg fyrir og læknað marg-
víslega kvilla með mat, rétt eins og
maður getur komið sér í kvillana
með röngum mat, sem eru lífsstíls-
sjúkdómar.“
Besta veganestið úr náminu í
New York segir Anna Björk vera að
hlusta á líkamann.
„Ef mann grunar óþol fyrir mat
að taka hann út og sjá hvort líð-
anin batni. Ég reyni alltaf að hlusta
eftir einkennum eftir máltíðir og
ef mér líður illa af mat sleppi ég
honum alfarið eða borða hann
sjaldnar og í minna mæli, ef mér
þykir hann ómissandi og góður.
Sjálf borða ég annars allan mat,
bæði hollan og óhollan inn á milli,
en legg kapp á að borða fæðu sem
mér líður vel af.“
Anna segir heilsumarkþjálfun
setja fram spurningar sem krefjist
þess að fólk leiti inn á við og finni
lausnirnar sjálft.
„Heilsumarkþjálfun er mikil
sjálfsskoðun sem gerir út á að
hjálpa einstaklingnum að finna
hjá sjálfum sér hvað hann er
tilbúinn að gera til að breyta lífs-
stílnum. Ég hef líka lært á sjálfri
mér að rútína og vani er besta
aðferðin fyrir mig til að ná árangri,
og að bægja slæmum vana úr
rútínunni. Fyrir mig og mína lík-
amsgerð þarf ég stöðugt að passa
mig á mat en á síðustu árum hef ég
fundið hið gullna jafnvægi þar sem
ég get leyft mér að borða hvaða
mat sem er. Ég hef prófað ýmislegt,
eins og ketó, lágkolvetnamataræði
og danska kúrinn, en hef loks náð
jafnvægi og sátt. Ég held einföldum
kolvetnum í lágmarki og fæ mér til
dæmis frekar grænmeti á diskinn
en pasta. Ég fasta líka til hádegis,
það er sleppi morgunmatnum,
og hef síðan í haust farið í sjóböð
þrisvar í viku með vinkonum. Það
gerir mikið fyrir mig, bæði líkama
og sál, og mig langar mikið til að
halda því áfram.“
Súkkulaði meðal fyrir sálina
Í byrjun nýs árs, þegar margir
vilja bæta lífsstílinn, segir Anna
Björk gott að hafa í huga að það
sem einum henti vel hentar öðrum
síður.
„Öll erum við ólík og því er
mismunandi hvaða mataræði og
hreyfing hentar hverjum og einum,
og getur breyst með aldrinum. Ég
ráðlegg fólki að búa til nýja rútínu
sem er í það minnsta betri en gamla
rútínan og hlusta vel á hvað matur-
inn gerir fyrir líkamann. Það kemur
oft og iðulega á óvart. Þegar ég tók
út kolvetni fyrst uppgötvaði ég að
liðirnir voru ekki lengur bólgnir en
áður var ég stöðugt bólgin án þess
að taka eftir því. Allt er þetta rann-
sóknarvinna, þú og þinn líkami,
og að finna hvað hentar þér best og
hvenær.“
Matur sé meðalið en hver og einn
þurfi að finna hvert hans meðal sé.
„Súkkulaði er fínasta meðal fyrir
sálina og hægt að velja sér sykur-
laust sælgæti þegar nammiþörfin
verður öllu yfirsterkari. Mest um
vert er þó að borða það í hófi án
sektarkenndar og samviskubits.
Gott heilræði er að láta eiga sig að
kaupa sælgæti til heimilisins og
forðast þannig óþarfa freistingar,
en þó að leyfa sér að njóta af og til,
án þess að skamma sig og brjóta
niður.“
Undanfarin tvö ár hefur Anna
Björk verið á svipuðu mataræði,
en frá því í haust þegar hún hætti
að drekka kaffi daglega og fór að
stunda sjóböð hefur hún lést um
fjögur kíló án annarra breytinga.
„Kaffi hefur áhrif á nýrnahett-
urnar og ég velti fyrir mér hvort
það sé hormónatengt að léttast
við það að sleppa kaffinu, sem og
sjókælingin, göngutúrar og rólegra
æfingaálag. Mitt nýja rannsóknar-
verkefni fyrir minn líkama er að
fylgjast með áhrifum mataræðis á
hormónin mín. Mikið af æfinga-
prógrömmum og mataræði hefur
verið rannsakað út frá körlum en
ekki konum og því ekkert skrýtið
að konur bregðist öðruvísi við og
oft með minni árangri. Ekki er
nema áratugur síðan farið var að
leggja upp úr því hjá Lyfjastofnun
Bandaríkjanna að rannsaka þurfi
konur og viðbrögð þeirra við
lyfjum og lækningatækjum sér-
staklega, þar sem önnur svörun
gæti fengist hjá konum en körlum.
Öll lífsstílsbreyting og árangur er
því bæði einstaklings- og kynja-
bundin og snýst um að hlusta á og
vinna með eigin líkama.“
Matur er
meðalið
Veganesti Önnu Bjarkar Hjaltadóttur
heilsumarkþjálfa til betri lífsstíls er að
hlusta vel á eigin líkama þegar kemur
að mataræði og hreyfingu. Þannig
hafi hún náð sínum besta árangri.
Anna Björk hefur lést um fjögur kíló síðan hún hóf sjóböð í haust og hætti að drekka kaffi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI