Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 65
Ef eftirlitsstofnanir finna hjá sér löngun til að lina tökin, en leyfa í staðinn dýnamík og tilraunir í auknum mæli, mun það leysa úr læðingi grósku á hárréttum tíma. Orri Hauksson, forstjóri Símans. 29.12.2020 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 30. desember 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Þorsteinn Friðrik Halldórsson SKOÐUN Kórónukreppan, og allt sem hún hefur í för með sér, krefur samfélagið um sjálfs- skoðun á mörgum sviðum. Skyndi- lega er áríðandi að taka á málum sem annars hefðu fengið að vera óáreitt um einhverja hríð. Þetta á sérstaklega við um mótun á fram- tíðarsýn fyrir lífeyriskerfið. Á þessu ári má telja að minnsta kosti þrjú stór mál sem vekja okkur til umhugsunar um stærð og umgjörð lífeyriskerfisins. Fyrst má nefna hlutafjárútboð Icelandair Group en fjármögnun flugfélagsins var algjörlega háð aðkomu lífeyris- sjóða þrátt fyrir óvænta og ánægju- lega umframspurn frá almennum fjárfestum. Í umræðu um aðkomu lífeyrissjóðanna var meðal annars vísað til þess að árangursrík fjár- mögnun Icelandair hefði jákvæð áhrif á eignasöfn sjóðanna til lengri tíma litið. Hagsmunir sjóðfélaga hvers og eins lífeyrissjóðs væru þannig samtvinnaðir þjóðarhags- munum. Heldur þessi röksemd vatni? Því er ekki auðsvarað. Sama gildir um áhugaleysi lífeyr- issjóða á skuldabréfum ríkissjóðs sem er sagt hafa átt þátt í að þrýsta ávöxtunarkröfu bréfanna upp á við. Því hefur verið haldið fram að hagkvæm fjármögnun ríkissjóðs á næstu árum, sem er meðal annars háð eftirspurn lífeyrissjóða, hafi jákvæð áhrif á eignasöfn þeirra þegar fram í sækir. Kann að vera, en þarna er heldur langt seilst. Þriðja málið eru tilmæli Seðla- banka Íslands til lífeyrissjóða um að þeir gerðu hlé á erlendum fjár- festingum sínum til að „viðhalda þjóðhagslegum stöðugleika“ á sama tíma og erlendar hlutabréfavísitölur voru á miklu flugi. Lífeyrissjóðum er skylt að taka sjálfstæðar ákvarðanir með hags- muni sjóðfélaga sinna í fyrirrúmi. Þannig á heilbrigt lífeyriskerfi að vera. Aftur á móti eru sjóðirnir orðnir svo umfangsmiklir að niður- stöður í málum þar sem miklir þjóðarhagsmunir eru í húfi velta í raun, eins og dæmin hér að ofan sýna, á samstilltu átaki lífeyrissjóða sem er þó óheimilt að eiga víðtækt samráð. Þetta minnir um margt á f lókið leikjafræðivandamál. Með öðrum orðum er stærðin til trafala. Lífeyrissjóðirnir, sem „hafa nánast einokun á skyldu- sparnaði íslenskra launþega“ eins og fjármálaráðherra komst að orði, eru ómissandi í stórum fjármögn- unarverkefnum. Mörkin milli hagsmuna sjóðfélaga og víðtækari hagsmuna verða óskýr og umræðan um fjárfestingarákvarðanir getur orðið pólitísk. Þessi staða er ekki til þess fallin að viðhalda því trausti sem fólk ber til kerfisins og stjórnendur sjóð- anna hafa staðið undir. Dreifðari ákvarðanataka í fjármálakerfinu, í því skyni að stuðla að heilbrigðara umhverfi fyrir fjármögnun, er mál sem þarf að setja á dagskrá á árinu 2021. Dreifstýring á dagskrá 2021 Tólf ára gamalt met var slegið í fjölda viðskipta á hlutabréfamarkaði á einni viku í viku 50, 7.-11. desember. Vikan á eftir var sú sjöunda stærsta frá 2008.  Þetta kemur fram í gögnum sem Markaðurinn bað Kauphöllina að taka saman. „Ég held að þetta sé forsmekkurinn af því sem koma skal,“ segir Magnús Harðarson, for- stjóri Kauphallarinnar. Hann gerir ráð fyrir því að almenningur muni halda áfram að fjárfesta í hlutabréfum á nýju ári og að erlendir fjárfestar komi þegar líður á vorið. Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair á umræddu tímabili í desember eða í 68 pró- sentum tilvika í viku 50 og 52 prósentum tilvika vikuna á eftir. Fjöldi viðskipta í fyrri vikunni var 3.427 og 1.962 í seinni vikunni. Aldrei hafa verið meiri viðskipti í Kauphöll- inni í einum mánuði með nokkurt félag. Magnús segir spila inn í mikil viðskipti að á sama tíma og almenningur sé að fjárfesta í auknum mæli í hlutabréfum bárust jákvæð tíðindi af bóluefni gegn COVID-19. – hvj Metfjöldi viðskipta í desember Magnús Harðar- son, forstjóri Kauphallarinnar LJÓSABLAÐIÐ 2020 ÁRLEGT TÍMARIT LJÓSSINS ER NÚ KOMIÐ ÚT! Við bjóðum þjóðinni allri að skyggnast bakvið tjöldin hjá Ljósinu, kynnast fólkinu, starfinu og gleðinni sem ríkir á Langholtsveginum. Skannaðu QR merkið með myndavélinni í símanum til að lesa Ljósablaðið 2020 eða smelltu þér á www.ljosid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.