Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 47

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2020/106 215 Þórir Einarsson Long varði doktorsritgerð sína í læknavísindum við læknadeild Há- skóla Íslands 20. desember 2019. Ritgerðin heitir: Bráður nýrnaskaði – Nýgengi, áhættu- þættir, endurheimt nýrnastarfsemi og lifun. Andmælendur voru Kenneth Christopher, lektor við Brigham and Women ś Hospital, Harvard-háskóla, og Gunnar Tómasson, lektor við læknadeild Háskóla Íslands. Umsjónarkennari var Gísli H. Sigurðsson prófessor og leiðbein- andi Ólafur Skúli Indriðason sérfræðing- ur. Meðleiðbeinandi var Martin Ingi Sigurðsson prófessor. Aðrir í doktorsnefnd voru Runólfur Pálsson prófessor og Tómas Guðbjartsson prófessor. Ágrip af rannsókn Bráður nýrnaskaði (BNS) er algengt vandamál bæði innan og utan sjúkrahúsa og tengist hærri tíðni fylgikvilla og dánar- tíðni. Langvinnur nýrnasjúkdómur (LNS) er áhættuþáttur fyrir BNS sem jafnframt er áhættuþáttur fyrir þróun á LNS og versnun á sjúkdómnum. Endurheimt fyrri nýrnastarfsemi eftir BNS er talin sjálfstæður áhrifaþáttur fyrir horfur sjúk- lingsins en ekki hefur náðst samstaða um skilgreiningu á endurheimt fyrri nýrna- starfsemi eftir BNS. Í dag er væg hækkun á kreatíníni í sermi (SKr) um 26,5 μmól/L innan 48 klukkustunda hluti af grein- ingarskilmerkjum BNS en hins vegar er lítið vitað um einkenni og afdrif þess hóps sem greinist með BNS einungis vegna þessa hluta skilmerkjanna. Verkefnið undirstrikar að BNS er algengt vandamál, bæði í almennu sjúkrahúsþýði og í kjölfar skurðaðgerða. Það eru sjálfstæðir áhættuþættir fyrir BNS í kjölfar kviðarholsaðgerða sem auðveld- lega er hægt að meta fyrir aðgerð og nýta við áhættumat sjúklinga. BNS tengist verri skammtíma- og langtímalifun og þróun á LNS og versnun á undirliggjandi LNS. Að ná ekki endurheimt á fyrri nýrnastarf- semi er tengt verri eins árs lifun, þróun og versnun á LNS. Doktorsefnið Þórir Einarsson Long lauk bakkalárgráðu í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 og embættisprófi í læknisfræði frá sama skóla þremur árum síðar. Að loknu kandídatsári hóf hann sérnám í almenn- um lyflækningum við Landspítala þar sem hann starfar nú. Þórir hefur stundað rannsóknavinnu samhliða námi og starfi sem læknir frá 2012 og hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar, var meðal annars valinn ungur vísindamaður Landspítala 2019. Doktors- vörn frá HÍ Myndina tó k G un na r S ve rri ss on . Hvað segir doktorsefnið? Hvað ertu að lesa og/eða horfa á? Ég er að lesa Tíminn og vatnið, bókina hans Andra Snæs þessa dagana. Svo fylgist ég með þáttunum Ísalög á RÚV. Þemað hjá mér er greinilega hlýnun jarðar. Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10? Erfitt að segja því það sveiflast mikið yfir tíma. Myndi segja bara 7 en væri eflaust 9-10 án góðra leiðbeinenda ímynda ég mér. Hvað er framundan í starfi/námi? Ég starfa 50% sem almennur læknir á göngudeild og ráðgjöf nýrnalækninga Landspítala og svo er ég 50% í rannsóknum hjá verkefninu Blóðskimun til Bjargar með áherslu á nýrnahluta verkefnisins. Planið er að verða nýrnalæknir sem stundar rannsóknir í framtíðinni. Hvað yrði þitt fyrsta verk sem forstjóri Landspítala? Byrja á að ráða mér húshjálp en reyna síðan að finna mögulegar leiðir til að hækka laun hjúkr- unarfræðinga og sjúkraliða. Hvenær fórstu síðast til læknis? Held að það hafi verið 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.