Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2020/106 213
Dagur í lífi
sérnámslæknis
á svæfingu/gjörgæslu í
byrjun COVID-19-faraldurs
Sandra Gunnarsdóttir
6:30 Vekjaraklukkan hringir. „Snúsa“ einu sinni til tvisvar. Helli
upp á kaffi og fæ mér bolla. Legg af stað í vinnuna úr Vestur-
bænum um 7:10. Slepp blessunarlega við umferðina þar sem
mæting í vinnuna er 7:30.
7:30 Morgunfundur gjörgæslu- og svæfingalækna. Hér fækkar
fólki með hverjum deginum vegna einangrana og sóttkvíar
sökum SARS-CoV-2. Venjulegum fræðslufundum deildarlækna
hefur verið hætt tímabundið þar sem nauðsynlegt er að nýta
morgunfundinn til þess endurskipuleggja skurðstofuprógram
og vaktir. Förum yfir atburði næturinnar.
8:00 Spritta hendurnar líklega í fjórða skiptið frá því ég vaknaði.
Mæti á skurðstofuna. Fyrsta aðgerð er enduraðgerð á mjöðm.
Aðgerðin er gerð í mænudeyfingu og utanbastsdeyfingu.
9:30 Skoða listann yfir bráðaaðgerðir dagsins. Hringi í sjúklinga
sem eru staðsettir heima og fer til þeirra sem eru innlagðir á
spítalanum. Fer yfir heilsufar, fyrri svæfingar og önnur atriði
sem varða fyrirhugaða svæfingu/aðgerð. Legg upp svæfing-
aráætlun og útskýri fyrir viðkomandi hvernig hún muni fara
fram.
10:30 Fer á bæklunardeild að meta sjúkling sem á að fara í aðgerð
í kvöld vegna brots á mjöðm. Hann er aldraður og þarf að
komast í aðgerð sem fyrst. Skoða rannsóknarniðurstöður og
undirbý hann fyrir aðgerðina. Skrái svæfingaráætlun og skrái
inn viðeigandi lyf sem hann þarf að fá fyrir aðgerðina.
11:00 Svæfingahjúkrunarfræðingur frá skurðstofu 1 hringir.
Talsverð blæðing er í aðgerðinni og þörf á blóðgjöf. Sjúklingn-
um líður vel, hann er vakandi og dofinn neðan mittis vegna
mænudeyfingarinnar. Blóðgjöf er hafin. Lífsmörk eru stöðug
með aðstoð blóðþrýstingshækkandi lyfja og blóðhlutagjafa.
Aðgerðinni miðar vel.
12:00 Hádegismatur. Ég er ekki með nesti frekar en fyrri
daginn. Áramótaheitið mitt er ekki alveg að ganga upp. Sæki
mér mat í matsalinn og einn espressó á kaffibarnum.
13:00-15:00 Fer á milli stofa, svæfi og vek. Íhlaupaverkefni hér
og þar. Við erum fáliðuð á skurðstofunni vegna starfsmanna í
sóttkví. Það er því talsvert um hlaup.
15:00 Skoða skurðstofuprógramm morgundagsins, fer yfir svæf-
ingaráætlanir fyrir hverja aðgerð og ber undir sérfræðing.
15:30 Vinnudegi lokið. Sendi línu á deildarlækna svæfingar-
deildarinnar um nýjustu fréttir vegna COVID-19-faraldursins,
vaktabreytingar og plan morgundagsins sem getur breyst ört.
16:30 Tók með mér íþróttaföt til þess að fara í hóptíma í Sport-
húsinu. Er komin hálfa leið en sný við og tek heimaæfingu
í staðinn. Ástæðan er hræðsla við að smitast og smita fleiri
starfsmenn eða sjúklinga Landspítalans. Velti fyrir mér hvort
ég sé með óþarfa áhyggjur. Ekki er komið samkomubann
þegar þetta er ritað en samkvæmt yfirvöldum verður það lík-
lega raunin á næstunni.
17:00 Tek 40 mínútna heimaæfingu í stofunni. Skelli mér í
sturtu. Hringi í kærastann sem er staddur erlendis vegna
vinnu. Hann getur ekki svarað þar sem hann er á bíða á
línunni hjá Icelandair til þess að flýta fluginu sínu heim því
vinnunni var frestað vegna COVID-19. Hann er númer 85 í
röðinni. ...
18:30 Fæ mér afganga í kvöldmat. Tek Face-Time símtal við vin-
konu sem er stödd í Víetnam. Hún spyr um ástandið heima
og veltir fyrir sér að koma fyrr heim úr ferðalaginu. Hún
kvíðir tilhugsuninni að fara í sóttkví þegar heim er komið.
19:00 Horfi á fréttirnar. COVID-19 í brennidepli eins og síðustu
daga. Þórólfur sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir
eru í Kastljósinu og standa sig með prýði sem og áður. Það er
erfitt að ímynda sér álagið hjá þeim þessa dagana.
20:00 Ég hitti fjórar vinkonur í prjónaklúbbi sem allar eru
læknar. Við sleppum því að faðmast sem við myndum vana-
lega gera. Ég faðma í staðinn heimilishundinn Sölku sem
er fimm mánaða risavaxinn bangsi og agalega ánægð með
athyglina. Ég er ekki sérlega flink með prjónana. Hingað til
hafa þó verið prjónaðar tvær afbragðs tuskur.
21:30 Fæ símtal frá sérnámslækni. Hann er að bætast í hóp
deildarlækna sem eru í sóttkví og er skráður á næturvaktina
daginn eftir.
22:00 Komin heim aftur. Les pistil frá gjörgæsluhjúkrunar-
fræðingi og -lækni á Ítalíu um ástandið þar vegna COVID-19
og reyni síðan að sofna.
23:00 Er andvaka vegna ofangreindrar lesningar. Næturvakt
næsta dags er ómönnuð svo kannski er ágætt að sofa lítið
í nótt til þess að byrja að snúa sólarhringnum við. Stilli
vekjaraklukkuna á 6:30 og slekk á lampanum.