Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 44
212 LÆKNAblaðið 2020/106
Þegar ég byrjaði sérnám í Bandaríkjunum var
margt sem kom mér á óvart þótt það ætti svo
að heita að ég hefði staðist „ameríska prófið“.
Eitt af því var lögmál Suttons. Það fólst í því
að finna rannsókn sem greindi sjúkdóm alveg
örugglega. Hluti af lögmálinu var að forðast
aðrar rannsóknir sem tóku ekki af öll tvímæli
en kostuðu oft mikla peninga. Ég man ég spurði
hvaða læknir hefði fundið upp þetta frábæra
lögmál. Spurningin vakti kátínu. Það kom í ljós
að lögmálið var kennt við frægan bankaræn-
ingja, Willie Sutton.
Sutton fæddist 1901. Skólagangan var stutt
og hann lauk ekki grunnskóla. Venjuleg vinna
hentaði honum ekki og það var talið að hann
hefði unnið fyrir launum í samtals 18 mánuði
á ævinni. Hann byrjaði að brjótast inn 9 ára
gamall og á fullorðinsárum stundaði hann
eingöngu bankarán. Í starfi sínu notaði hann
byssur af ýmsu tagi enda lét hann þess getið að
í bankaráni dygði ekki bara persónuleiki eða
persónutöfrar. Hann gætti þess þó vandlega að
hafa byssurnar ekki hlaðnar.
Það var til þess tekið hvað Sutton var prúður
og kurteis við iðju sína. Jafnvel sagt að hann
ætti til að hætta við ránið ef kona hljóðaði upp
yfir sig eða barn færi að gráta. Hann var fyrst
fangelsaður árið 1926 og talið að hann hefði eytt
33 árum bak við lás og slá. Hann keðjureykti
og var kominn með svæsna lungnaþembu og
æðakölkun í fótum þegar honum var loks sleppt
úr fangelsi aðfangadag jóla 1969.
Seinustu árin bjó Sutton hjá systur sinni á
Flórída og lét lítið fyrir sér fara og dauðdagi
hans þegar hann var 79 ára gamall var friðsæll.
Talið var að hann hefði stolið um tveimur millj-
ónum dollara á 40 ára ferli. Það er dálagleg upp-
hæð sem ég treysti mér ekki að meta á núvirði.
En hvernig í ósköpunum tengist þessi ræn-
ingi Suttons-lögmálinu? Sagt var að blaðamaður
hefði eitt sinn spurt hann af hverju hann rændi
bara banka. Willie svaraði að bragði: „That ś
where the
money is.“
Bandarískur hjartalæknir, William Dock
(1898-1990), sá samlíkinguna í þessu og að leita
svars við sjúkdómsgreiningu þar sem það væri
örugglega að finna.1 Willie gaf út ævisögu sína
á efri árum2 og neitar þar að hafa sagt þetta, en
lögmálið var svo tengt honum að það breytti
engu og það heldur ennþá nafni hans á lofti.
1. Ryland D. Sutton´s or Dock´s law? NEJM 1980; 302: 972.
2. Sutton W, Linn E. Where the money was: the memoirs of a bank
robber. Viking Press 1976.
Lögmál Suttons
Stjórn Öldungadeildar
Kristófer Þorleifsson formaður
Jóhannes M. Gunnarsson ritari
Guðmundur Viggósson gjaldkeri
Halldóra Ólafsdóttir
Margrét Georgsdóttir
Öldungaráð
Hörður Alfreðsson
Magnús B. Einarson
Reynir Þorsteinsson
Snorri Ingimarsson
Þórarinn E. Sveinsson
Umsjón síðu
Magnús Jóhannsson
Willie Sutton.
William Dock.
Ö L D U N G A D E I L D
Tryggvi
Ásmundsson
tryggvi.asmundsson@gmail.com