Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 12

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 12
180 LÆKNAblaðið 2020/106 R A N N S Ó K N aðarhætti.5,25,26 Það getur verið flókið að leggja mat á hreyfivenjur fólks svo vel sé og því er oft nákvæmara að mæla þrek til að meta þann þátt heilsu.27 Sex mínútna gönguprófið (6MWT) hefur verið gagnreynt til að meta þrek án hámarksákefðar fyrir heilbrigða28 og fólk með krabbamein.29 Persónuleiki D er samansafn persónueinkenna sem skiptast í tvo undirflokka, annars vegar tilhneigingar til neikvæðrar líðan- ar og hins vegar félagslegar hömlur.30 Rannsóknir á persónuleika D hafa sýnt fram á verri upplifun á heilsu og lakari horfur fólks sem greinist með ýmsa sjúkdóma.30,31 Þar á meðal hefur fólk með krabbamein og persónuleika D reynst vera við verri heilsu32 og lifa við skertari lífsgæði33 en þeir sem mælast ekki með þennan persónuleika, en greinast með sama sjúkdóm. Rannsóknarspurningar eru tvær: Í fyrsta lagi að mæla þrek, holdafar og heilsutengd lífsgæði hjá fólki sem hefur lokið við læknismeðferð vegna krabbameina undanfarin 10 ár, og í öðru lagi að athuga hvort þrek hafi fylgni við holdafar og heilsutengd lífsgæði einnig hjá fólki sem hefur lokið við læknismeðferð vegna krabbameina. Fyrri rannsóknartilgáta okkar var að heilsufars- þættir eins og þrek, holdafar, og heilsutengd lífsgæði hjá fólki sem hefur gengið í gegnum og lokið við krabbameinsmeðferð séu ekki í aðalatriðum frábrugðnir því sem gengur og gerist hjá almenn- ingi. Seinni rannsóknartilgátan okkar var að þrek hafi marktæka fylgni við heilsufarsþætti eins og holdafar og heilsutengd lífsgæði hjá einstaklingum sem hafa lokið við krabbameinsmeðferð. Efniviður og aðferðir Þátttakendur Óskað var eftir sjálfboðaliðum til þátttöku í gegnum póstlista Ljóssins, endurhæfingarmiðstöðvar fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Fjöldapóstur var send- ur út og fólk gat boðið sig fram til þátttöku. Eins var fjallað um rannsóknina í blaðagrein og buðu nokkrir sjálfboðaliðar sig fram í kjölfar þeirrar umfjöllunar. Skilyrði fyrir þátttöku: Þátttakendur máttu vera af báðum kynj- um, 18 ára eða eldri. Þeir þurftu að hafa lokið við læknismeðferð vegna krabbameins minnst einum mánuði og mest 10 árum fyr- ir þátttöku. Mikilvægt var að allir þátttakendur þurftu einnig að vera álitnir læknaðir af krabbameininu eða í sjúkdómshléi frá því og því ekki með virkan sjúkdóm svo vitað væri. Konur sem voru enn í andhormónameðferð vegna brjóstakrabbameina máttu taka þátt, ef allri annarri meðferð var lokið. Fólki sem hafði lokið við læknismeðferð sem var upprunalega ætluð gegn krabbameinum en er einnig notuð gegn öðrum sjúkdómum, til dæmis lifrarbólgu eða gigtarsjúkdómum, var ekki boðin þátttaka ef það hafði ekki greinst með krabbamein og fengið meðferðina vegna þess. Vís- indasiðanefnd samþykkti framkvæmd rannsóknarinnar (VSN 13-090) og rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar (tilvísun S6316/2013). Framkvæmd Mælingar fóru fram 2013 í húsnæði Styrks – sjúkraþjálfunar. Sjálf- boðaliðar höfðu samband við rannsakanda til að skrá sig til þátt- töku. Fyrir komu voru þátttakendur hvattir til að borða hvorki mat né neyta koffíns í að minnsta kosti eina klukkustund fyrir rann- sóknina. Þeir voru einnig hvattir til að mæta í léttum fatnaði, til dæmis íþróttafötum og íþróttaskóm. Þátttakendur byrjuðu á því að lesa upplýsingar um rannsóknina og þátttöku í henni. Hvort þeir tóku þátt eða hættu við þátttöku, hafði á engan hátt áhrif á þá þjónustu eða þær upplýsingar sem þeir áttu rétt á. Enginn þátt- takandi hætti við þátttöku eftir skráningu. Eftir að hafa skrifað undir upplýst samþykki svöruðu þátttakendur spurningalistum um heilsutengd lífsgæði (SF-36v2 og EQ-5D-3L), ásamt spurninga- lista um persónueinkenni (DS14). Eftir að þátttakendur höfðu setið í að minnsta kosti 10 mínútur við að svara spurningum var blóð- þrýstingur mældur tvisvar til þrisvar sinnum. Næst var fyrri um- ferðin af þrekmælingu með 6MWT framkvæmd án upphitunar. Þar á eftir voru hæð og þyngd skráð og LÞS reiknaður. Svo voru framkvæmd jafnvægispróf og spurt spurninga sem tengdust jafn- vægi, en ekki verður fjallað um hér. Síðan var gerð fjögurra punkta fitumæling með húðfellingaklípu og ummál mittis og mjaðma mælt. Eftir það svöruðu þátttakendur spurningum um lífsstíl, heilsufar, krabbameinsgreiningu sína og meðferð vegna hennar. Hvorki verður fjallað um lífsstíl né sjúkdóma aðra en krabbamein sem þátttakendur voru að kljást við í þessari grein þrátt fyrir að það hafi verið hluti af heildarrannsókninni. Að lokum var seinni umferðin af 6MWT framkvæmd, um 45-60 mínútum eftir að fyrri umferðinni hafði verið lokið. Að þátttöku lokinni gátu þeir sem óskuðu þess fengið niðurstöður úr holdafars- og þrekmælingum. Spurningalistar Heilsutengd lífsgæði: Notaðir voru spurningalistarnir SF-36v2 og EQ-5D-3L til að meta heilsutengd lífsgæði. Þeir spurningalist- ar hafa verið þýddir og staðfærðir fyrir íslenskt þýði og notaðir af heilbrigðisstofnunum hér á landi. SF-36v2 gefur tvo lífsgæða- stuðla, annan fyrir líkamleg lífsgæði (PCS) og hinn fyrir geðræn lífsgæði (MCS), ásamt 8 undirflokkum. EQ-5D-3L metur 5 þætti líkamlegra og geðrænna lífsgæða, ásamt því að notast við sjón- rænan kvarða sem gefur alhliða mat á eigin heilsu. Persónuleiki D: Spurningalistinn DS14 metur hvort viðkom- andi sé með persónuleika D með því að mæla tilhneigingu til neikvæðrar líðanar og félagslegar hömlur. Til þess að teljast vera með persónuleika D, þarf þátttakandi að skora 10 stig eða hærra í báðum undirflokkunum. DS14 spurningalistinn hefur verið þýdd- ur og staðfærður fyrir íslenskt þýði og notaður við rannsóknir hér á landi. Hreyfivenjur: Einnig var spurt um hreyfivenjur, þar var byggt á íslenskri útgáfu af Nordic monitoring of diet, physical activity and overweight frá árinu 2011, menntun, atvinnu; krabbamein, krabbameinsmeðferð; aðra sjúkdóma og að lokum voru gerðar mælingar á líkamlegu jafnvægi og skynjun. Ekki verður farið yfir niðurstöður úr þeim spurningum og mælingum í þessari grein. Mælingar Blóðþrýstingur var mældur með OMRON M2 blóðþrýstingsmæli. Hver einstaklingur var mældur tvisvar til þrisvar sinnum. Ef blóð- þrýstingur mældist ítrekað yfir 145 mmHg í systólískum þrýstingi og/eða yfir 95 mmHg í díastólískum þrýstingi, var það frábending fyrir þátttöku, eða ef hjartsláttartíðni í hvíld mældist ítrekað yfir 100 slögum á mínútu, að því undanskildu að samþykki fengist frá lækni til að ljúka þátttöku annan dag. Þrek var metið með 6MWT sem var framkvæmt á 30 m löng- um gangi merktum með eins metra millibili og farið að ráðum American Thoracic Society.28 Þátttakendur áttu að ganga eins hratt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.