Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 27

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2020/106 195 F R É T T A S Í Ð A N Bakvarðasveitin vex og vex Alls 680 mynduðu bakvarðasveit heilbrigðiskerfisins 25. mars síðastliðinn. Lækna- og hjúkrunarfræðinemum var þann dag boðið að taka þátt í bakvarðasveit heilbrigðis- starfsfólks vegna COVID-19-faraldursins. Alma Möller landlæknir sagði þau þurfa að skrá á hvaða ári þau væru og hvaða reynslu þau hefðu. „Síð- an er það stofnananna að úthluta þeim verkefnum við hæfi,“ sagði hún. „Þar þarf að meta hvort eigi að sækja um tímabundið lækningaleyfi fyrir læknanemana.“ Þetta kom fram á daglegum fundi Almannavarna og Embættis landlæknis. Læknar afgreiði ekki lyf umfram þörf „Við hvetjum lækna og apótek að afgreiða ekki lyf umfram það sem áður hefur verið gert,“ segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfja stofnunar, nú í uppgangi kórónufaraldursins COVID-19. Stofnunin hafi tryggt samvinnu við dreifingaraðila á heildsölu- og smásölustigi til að sporna við lyfjaskorti. „Við fylgjumst mjög grannt með stöðu mála á hverjum degi,“ segir hún og höfðar einnig til almennings að sýna samfélagslega ábyrgð og hamstra ekki lyf. Hún segir það tilhneigingu hjá fólki að hamstra lyf rétt eins og mat. „Ef allir láta sem allt sé eðlilegt verða engin vandkvæði. Við erum að fá lyf inn í landið og lyf fara ekki héðan út. En ef fólk hamstrar fjúka allar áætlanir út um gluggann.“ Aðeins helmingur skurðstofa á Landspít- ala við Hringbraut hafa verið í notkun frá 17. mars og enn færri af skurðstofum í Fossvogi. Lokun skurðstofa spítalans er liður í að bregðast við óvissuástandinu vegna COVID-19-faraldursins. Aðgerðir hafa verið gerðar langt fram á kvöld og um helgar til að stytta biðlista fyrir lokan- irnar. „Helsta ástæðan er sú að teymum skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga hefur verið skipt í tvennt þannig að hóp- arnir vinna sinn daginn hvor. Með þessu er verið að minnka líkur á því starfsemin lamist, komi upp sýking hjá starfsfólki,“ segir Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir og prófessor, í samtali við Læknablaðið. Afar brýnt sé að afstýra því að vandinn verði eins og á sjúkrahús- um á Norður-Ítalíu. „Gjörgæslur á spítölum á Norður-Ítalíu eru algjörlega sprungnar og pakkaðar af sjúklingum með COVID-19-sýkingar sem þurfa meðferð í öndunarvél. Þeir hafa þurft að breyta skurðstofum og göngu- deildum í gjörgæslurými og eru í miklum vandræðum með bráðaaðgerðir á sjúkling- um sem ekki eru COVID-19-smitaðir,“ seg- ir hann. „Það viljum við ekki að gerist hér og því mikilvægt að vera við öllu búinn.“ Hann bendir á að hugsanlega þurfi að loka enn fleiri skurðstofum, leggist fleiri sjúklingar smitaðir af COVID-19 inn á spítalann. „Ástandið nú án frekari lokana er svipað og við sumarlokanir skurðstofa,“ segir hann og tekur fram að allar bráða- aðgerðir séu framkvæmdar sem og þær sem þoli ekki mikla bið, eins og vegna krabbameina. „Þetta er mikið óvissuástand og enginn veit hvernig málin þróast og hvar við erum nákvæmlega á hverjum tíma í kúf COVID-veirunnar, en mér finnst margt hafa gengið vel hingað til hér á landi,“ sagði hann viku fyrir mánaðamót. Tómas telur ekki enn ástæðu til þess að færa skurðaðgerðir til nágranna- sjúkrahúsa. „En slík staða gæti komið upp síðar ef mikið berst af COVID-19-sjúkling- um inn á Landspítala.“ Hann hefur áhyggjur af starfsfólki en hátt í 200 þeirra séu í sóttkví. „Það er því afar brýnt að lækna- og hjúkrunarnemar séu áfram í klínísku námi á spítalanum, því kraftar þeirra gætu nýst síðar í far- aldrinum,“ segir hann og að sjónarmiðið vegi þyngra en að af þeim stafi aukin smithætta. Skorið á laugardegi. Tómas Guðbjartsson, Kristín Hlín Pétursdóttir, Ástríður Jóhannesdóttir, Arn- fríður Gísladóttir, Elín Bergmundsdóttir, Tómas Magnason, Jóhanna Jónsdóttir og Þórhildur Þór- isdóttir. Mynd/aðsend Skurðstofurnar skornar niður um meira en helming Meira en helmingi skurðstofa á Landspítala hefur verið lokað vegna COVID-19-faraldursins. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir segir að flestar valaðgerðir séu nú út af borðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.