Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 9

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 9
LÆKNAblaðið 2020/106 177 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Margrét Ólafía Tómasdóttir heimilislæknir við heilsu- gæsluna Efstaleiti og lektor í heimilislækningum við læknadeild HÍ Margrét situr í ritstjórn Læknablaðsins margretolafia@gmail.com Í auga stormsins Þegar þessi grein er skrifuð, 22. mars 2020, eru liðnir 23 dagar frá fyrsta greinda COVID-19-smitinu hér á landi. Rétt rúmar þrjár vikur. Þegar ég hugsa til baka finnst mér það næstum ótrúlegt, það virðist svo miklu lengra. Á þessum stutta tíma hefur orðið gjörbreyting á öllu umhverfi og fyrirkomulagi vinnu minnar sem heimilislæknir. Sjálfsagt hafa orðið miklar breytingar hjá okk- ur öllum en þar sem heimilislæknar, sem og heilsugæslan í heild sinni, er framvarðasveit heil- brigðiskerfisins skipti máli að bregðast við hratt, vel og fumlaust. Við ógn sem þessa erum við fyrstir inn og síðastir út. Við stöndum í auga stormsins. Við- brögð við almannavá sem þessari eru einn af kjarna- þáttum sérgreinar okkar og byggir stolt stéttarinnar á því að standa þétt saman, bregðast hratt við og sinna verkinu sem best verður á kosið. Þannig hefur heilsugæslan tekið hröðum breytingum undanfarnar vikur. Strax í upphafi vik- unnar eftir fyrsta smit, 2. mars, tók heilsugæslan upp vitjanaþjónustu vegna COVID-einkenna á dagvinnutíma. Þann 3. mars, fjórum dögum eftir fyrsta smit, hóf heilsugæslan sýnatökur fyrir utan allar heilsugæslustöðvar þar sem sýni úr fólki í áhættuhópi var tekið gegnum bílgluggann. Sama dag hafði Læknavaktin tekið í notkun sérútbúinn bíl fyrir COVID-sýnatökur til viðbótar við venjulegan vaktbíl Læknavaktarinnar. Viku seinna var öllum skjólstæðingum sem áttu bókaðan tíma boðið að fá símaviðtal í stað komu á stofu til að draga úr smithættu inni á heilsugæslu- stöðvum þar sem stór hluti skjólstæðinga eru við- kvæmir fyrir. Ritarar hafa þannig hringt í hvern ein- asta bókaðan skjólstæðing og boðið þeim að breyta tímanum. Vaktþjónustu var breytt úr opinni mót- töku í fyrirfram bókaða tíma. Þann 19. mars var móttöku Læknavaktarinnar skipt í tvennt, fólk með hita og öndunarfæraein- kenni annars vegar og fólk sem mætir af öðrum sök- um hins vegar, til að bæta smitvarnir bæði lækna og skjólstæðinga. 22. mars hóf heilsugæslan sýnatökur um helgar og í næstu viku er áætlað að heilsugæslan sinni almennri vitjanaþjónustu einnig á dagvinnu- tíma til að létta álagi af Læknavaktinni. Þá verður þriðji vitjanabíll Læknavaktarinnar tekinn í notkun. Á hverjum degi kemur inn fjöldi pósta um breytingar á vinnutilhögun – allt frá uppbyggingu vaktþjónustunnar, ungbarna- og mæðravernd og móttöku áhættuhópa niður í hvernig við getum skipt okkur í kaffitíma. Síðastliðna viku skiptist starfslið hverrar heilsugæslu í tvennt og vinnur helmingur- inn í símaviðtölum heiman frá sér, viku í senn, til að draga úr hættu á að einstaka stöðvar lokist. Símtalafjöldi til heilsugæslunnar og Lækna- vaktarinnar hefur margfaldast og ritarar taka við skráningum og upplýsingagjöf um sóttkví og ein- angrun. Allt þetta bætist ofan á hefðbundna vinnu okkar sem ekki má tapast niður þrátt fyrir önnur aðkallandi verkefni. Síðustu vikur hefur oft komið upp í huga mér það sem ég hef heyrt ítrekað síðan ég byrjaði í lækna- deild: Heilbrigðiskerfið er eins og olíuskip, það tekur langan tíma að beygja út af fyrri stefnu. Ég held það hljóti hér með að vera afsannað. Ég sé ekki betur en einmitt núna hafi heilbrigð- iskerfið gjörbylt starfsemi sinni á mettíma. Þegar ákvarðanir hafa verið teknar eru þær tilkynntar strax og breytingar framkvæmdar um leið. Sem dæmi má nefna útvíkkun á sýnatökum óháð áhættusvæðum í Evrópu sem tilkynntar voru á blaðamannafundi kl. 14. Strax á síðdegisvakt þremur tímum síðar hafði verið brugðist við. Eftir hádegi síðastliðinn föstudag var ákveðið að hefja sýnatökur um helgar. Á sunnudegi var starfslið frá Heilsugæslunni í Efra-Breiðholti mætt í bílakjall- arann í Hörpunni og tók um 100 sýni. Breytingar hafa verið gerðar ótrúlega fumlaust og án mót- mæla þar sem allir hafa unnið sem einn maður til að takast á við núverandi ástandi. Gamalgróinn rígur milli undirsérgreina hefur horfið og teymisvinna heilbrigðisstétta hefur tekið á sig allt annan blæ, þar sem hver léttir undir með öðrum og allir hjálpast að við að breyta og bæta þjónustuna eins og hægt er. Þrátt fyrir yfirþyrmandi álag og áreiti hefur andinn milli starfsmanna á minni heilsugæslu sjald- an verið betri. Það hefur verið stagast á því í fréttum undan- farið að nú lifum við fordæmislausa tíma. Það má vera satt. En ég held við ættum frekar að líta á þá sem fordæmisgefandi tíma. Fordæmisgefandi fyrir hversu vel við getum unnið saman sem ein heild, fyrir hversu hratt og vel við getum breytt, bætt og aðlagað vinnu okkar að því sem upp kemur – og um- fram allt hversu öflug við raunverulega erum þegar á reynir. In the eye of the storm Margrét Ólafía Tómasdóttir MD, PhD, Family Physician at the General Health Care of the Capital Area and Assistant Professor in Family Medicine at the University of Iceland. Hið fornkveðna: Heilbrigðiskerfið er eins og olíuskip, það tekur langan tíma að beygja út af fyrri stefnu. Ég held það hljóti hér með að vera afsannað. DOI: 10.17992/lbl.2020.04.574
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.