Læknablaðið - Apr 2020, Page 9
LÆKNAblaðið 2020/106 177
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Margrét Ólafía
Tómasdóttir
heimilislæknir við heilsu-
gæsluna Efstaleiti og lektor
í heimilislækningum við
læknadeild HÍ
Margrét situr í ritstjórn
Læknablaðsins
margretolafia@gmail.com
Í auga stormsins
Þegar þessi grein er skrifuð, 22. mars 2020, eru liðnir
23 dagar frá fyrsta greinda COVID-19-smitinu hér
á landi. Rétt rúmar þrjár vikur. Þegar ég hugsa til
baka finnst mér það næstum ótrúlegt, það virðist
svo miklu lengra. Á þessum stutta tíma hefur orðið
gjörbreyting á öllu umhverfi og fyrirkomulagi vinnu
minnar sem heimilislæknir.
Sjálfsagt hafa orðið miklar breytingar hjá okk-
ur öllum en þar sem heimilislæknar, sem og
heilsugæslan í heild sinni, er framvarðasveit heil-
brigðiskerfisins skipti máli að bregðast við hratt, vel
og fumlaust. Við ógn sem þessa erum við fyrstir inn
og síðastir út. Við stöndum í auga stormsins. Við-
brögð við almannavá sem þessari eru einn af kjarna-
þáttum sérgreinar okkar og byggir stolt stéttarinnar
á því að standa þétt saman, bregðast hratt við og
sinna verkinu sem best verður á kosið.
Þannig hefur heilsugæslan tekið hröðum
breytingum undanfarnar vikur. Strax í upphafi vik-
unnar eftir fyrsta smit, 2. mars, tók heilsugæslan
upp vitjanaþjónustu vegna COVID-einkenna á
dagvinnutíma. Þann 3. mars, fjórum dögum eftir
fyrsta smit, hóf heilsugæslan sýnatökur fyrir utan
allar heilsugæslustöðvar þar sem sýni úr fólki í
áhættuhópi var tekið gegnum bílgluggann. Sama
dag hafði Læknavaktin tekið í notkun sérútbúinn bíl
fyrir COVID-sýnatökur til viðbótar við venjulegan
vaktbíl Læknavaktarinnar.
Viku seinna var öllum skjólstæðingum sem áttu
bókaðan tíma boðið að fá símaviðtal í stað komu á
stofu til að draga úr smithættu inni á heilsugæslu-
stöðvum þar sem stór hluti skjólstæðinga eru við-
kvæmir fyrir. Ritarar hafa þannig hringt í hvern ein-
asta bókaðan skjólstæðing og boðið þeim að breyta
tímanum. Vaktþjónustu var breytt úr opinni mót-
töku í fyrirfram bókaða tíma.
Þann 19. mars var móttöku Læknavaktarinnar
skipt í tvennt, fólk með hita og öndunarfæraein-
kenni annars vegar og fólk sem mætir af öðrum sök-
um hins vegar, til að bæta smitvarnir bæði lækna og
skjólstæðinga. 22. mars hóf heilsugæslan sýnatökur
um helgar og í næstu viku er áætlað að heilsugæslan
sinni almennri vitjanaþjónustu einnig á dagvinnu-
tíma til að létta álagi af Læknavaktinni. Þá verður
þriðji vitjanabíll Læknavaktarinnar tekinn í notkun.
Á hverjum degi kemur inn fjöldi pósta um
breytingar á vinnutilhögun – allt frá uppbyggingu
vaktþjónustunnar, ungbarna- og mæðravernd og
móttöku áhættuhópa niður í hvernig við getum skipt
okkur í kaffitíma. Síðastliðna viku skiptist starfslið
hverrar heilsugæslu í tvennt og vinnur helmingur-
inn í símaviðtölum heiman frá sér, viku í senn, til að
draga úr hættu á að einstaka stöðvar lokist.
Símtalafjöldi til heilsugæslunnar og Lækna-
vaktarinnar hefur margfaldast og ritarar taka við
skráningum og upplýsingagjöf um sóttkví og ein-
angrun. Allt þetta bætist ofan á hefðbundna vinnu
okkar sem ekki má tapast niður þrátt fyrir önnur
aðkallandi verkefni.
Síðustu vikur hefur oft komið upp í huga mér það
sem ég hef heyrt ítrekað síðan ég byrjaði í lækna-
deild:
Heilbrigðiskerfið er eins og olíuskip, það tekur langan
tíma að beygja út af fyrri stefnu.
Ég held það hljóti hér með að vera afsannað.
Ég sé ekki betur en einmitt núna hafi heilbrigð-
iskerfið gjörbylt starfsemi sinni á mettíma. Þegar
ákvarðanir hafa verið teknar eru þær tilkynntar strax
og breytingar framkvæmdar um leið. Sem dæmi má
nefna útvíkkun á sýnatökum óháð áhættusvæðum í
Evrópu sem tilkynntar voru á blaðamannafundi kl.
14. Strax á síðdegisvakt þremur tímum síðar hafði
verið brugðist við. Eftir hádegi síðastliðinn föstudag
var ákveðið að hefja sýnatökur
um helgar. Á sunnudegi var
starfslið frá Heilsugæslunni í
Efra-Breiðholti mætt í bílakjall-
arann í Hörpunni og tók um
100 sýni.
Breytingar hafa verið gerðar
ótrúlega fumlaust og án mót-
mæla þar sem allir hafa unnið sem einn maður til að
takast á við núverandi ástandi. Gamalgróinn rígur
milli undirsérgreina hefur horfið og teymisvinna
heilbrigðisstétta hefur tekið á sig allt annan blæ, þar
sem hver léttir undir með öðrum og allir hjálpast að
við að breyta og bæta þjónustuna eins og hægt er.
Þrátt fyrir yfirþyrmandi álag og áreiti hefur
andinn milli starfsmanna á minni heilsugæslu sjald-
an verið betri.
Það hefur verið stagast á því í fréttum undan-
farið að nú lifum við fordæmislausa tíma. Það má
vera satt. En ég held við ættum frekar að líta á þá
sem fordæmisgefandi tíma. Fordæmisgefandi fyrir
hversu vel við getum unnið saman sem ein heild,
fyrir hversu hratt og vel við getum breytt, bætt og
aðlagað vinnu okkar að því sem upp kemur – og um-
fram allt hversu öflug við raunverulega erum þegar
á reynir.
In the eye of the storm
Margrét Ólafía Tómasdóttir
MD, PhD, Family Physician
at the General Health Care
of the Capital Area and
Assistant Professor in Family
Medicine at the University of
Iceland.
Hið fornkveðna: Heilbrigðiskerfið er eins og
olíuskip, það tekur langan tíma að beygja
út af fyrri stefnu. Ég held það hljóti hér með
að vera afsannað.
DOI: 10.17992/lbl.2020.04.574