Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 14

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 14
182 LÆKNAblaðið 2020/106 R A N N S Ó K N Heilsufarsmælingar og persónuleiki D Tafla II sýnir meðaltal og staðalfrávik á aldri, holdafari, þreki og samfelldum niðurstöðum úr spurningalistum um heilsutengd lífsgæði. Þrátt fyrir mun á fjölda kvenna og karla var marktækur munur á þeim breytum sem þykja eðlilegar á milli kynja, það er þyngd, mittismáli og fituprósentu. Tafla III sýnir fjölda þátttakenda innan og utan æskilegra við- miða um holdafar. Tafla III sýnir einnig hversu margir þátttak- endur skoruðu yfir 10 í öðrum hvorum undirþætti persónuleika D og hversu margir voru með persónuleika D. Enginn þátttakandi var undir kjörþyngd (LÞS <18,5 kg/m2) og því er ekki gert ráð fyr- ir þeim möguleika í töflunni. Meðaltal LÞS þátttakenda var yfir kjörþyngd (LÞS >25,0 kg/m2) hjá báðum kynjum. Yfir 70% kvenna var með mittisummál yfir viðmiðunarmörkum og rúmlega helm- ingur karla var með hlutfall milli ummáls mittis og mjaðma yfir viðmiðunarmörkum. Um helmingur þátttakenda var með hlut- fall líkamsfitu af heildarþyngd yfir viðmiðunarmörkum. Tæp- lega 14% þátttakenda mældust með persónuleika D, þrátt fyrir að 27,5% og 35,0% mældust með 10 stig í öðrum hvorum undirflokki persónuleika D. Tengsl þreks, holdafars og heilsutengdra lífsgæða Töflur IV, V og VI sýna fylgnistuðla milli þreks, holdafars og heilsutengdra lífsgæða. Tafla IV sýnir að marktæk fylgni fannst á niðurstöðum úr 6MWT við alla þætti holdafars, ásamt marktækri fylgni milli allra mælinga á holdafari innbyrðis sín á milli. Tafla V sýnir að 6MWT og holdafar hafa marktæka fylgni við ýmsa þætti heilsutengdra lífsgæða karla. Tafla VI sýnir að 6MWT hefur mark- tæka fylgni við alla þætti heilsutengdra lífsgæða kvenna, nema getu til sjálfsumönnunar og athafnir daglegs lífs (ADL)við kvíða. Í töflu VI sést einnig að holdafar hefur fylgni við ýmsa þætti heilsu- tengdra lífsgæða kvenna. Í öllum tilfellum hefur 6MWT hærri fylgni við þá þætti en holdafarsmælingarnar, nema í ADL, þar sem LÞS hefur meiri fylgni við þann þátt en 6MWT hefur. Í öllum til- fellum þar sem marktæk fylgni (p<0,05) fannst við 6MWT, var það á þann veg að hátt skor í 6MWT tengdist hagstæðari eða heilsu- samlegri niðurstöðum annarra mælinga. Útreikningar sýndu einnig að 6MWT hafði fylgni við öll áðurnefnd atriði óháð aldri og að gengin vegalengd í 6MWT sagði meira til um það hvernig fólk skoraði í heilsutengdum lífsgæðum heldur en aldur viðkomandi einn og sér, eða þegar fylgni var reiknuð milli 6MWT og heilsu- tengdra lífsgæða, með tilliti til aldurs. Umræða Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu fylgni þreks við bæði heilsutengd lífsgæði og holdafar. Rúmlega tveir af hverjum þrem- ur þátttakendum mældust með einhvern þátt holdafars yfir við- miðunarmörkum.12 Heilsutengd lífsgæði þátttakenda voru al- mennt í meðallagi.37 Einungis um 14% þátttakenda mældust með persónuleika D. Þegar allt kemur til alls sýndi þessi rannsókn að í flestum tilfellum virðist gengin vegalengd í 6MWT hafa hærri fylgnistuðul við heilsutengd lífsgæði heldur en holdafar fólks, með áðurnefndri undantekningu á fylgni milli LÞS og getu til að sinna ADL. Af holdafarsmælingum virðist almennt vera meiri fylgni á milli mittisummáls eða hlutfalls milli ummáls mittis og mjaðma og heilsutengdra lífsgæða, en LÞS eða fituprósentu við heilsutengd lífsgæði. Það kemur ekki á óvart að mikil fylgni finnst á milli ólíkra þátta holdafars, því að sumu leyti er verið að mæla mjög skyld, eða jafnvel sömu atriði á ólíka vegu. Til dæmis eru líkur á að manneskja með háan LÞS sé einnig með háa fitupró- sentu, eða að manneskja með háa fituprósentu sé einnig með auk- ið mittisummál. Holdafar Hátt í þrjár af hverjum fjórum konum voru með mittisummál yfir viðmiðunarmörkum WHO.34 Um tveir af hverjum þremur körlum voru yfir kjörþyngd38 og um helmingur þátttakenda var með fituprósentu hærri en viðmiðunarmörk fyrir hvort kyn um sig.36,39 Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt hvað getur legið að baki þessu, þar á meðal þyngd yfir kjörþyngd fyrir greiningu með krabbamein;5 þyngdaraukning samhliða krabbameinsmeðferð3,4,6 og þyngdaraukning eftir meðferðarlok.4,9 Vísbendingar eru um að líðan og heilsa fólks sem greinst hefur með krabbamein, verði fyrir meiri neikvæðum áhrifum af völdum yfirþyngdar og offitu, heldur en líðan og heilsa fólks sem ekki hefur greinst með krabba- mein.12-14 Því er mikilvægt að rannsaka enn frekar hvað veldur og hvað hægt sé að gera til að sporna gegn því að fólk sé yfir við- miðunarmörkum um holdafar eftir greiningu með krabbamein. Slík þekking gæti bætt heilsufar og horfur fólks á víðtækan hátt, væri hægt að grípa inn í þegar við á til að sporna gegn neikvæðum breytingum á holdafari. Heilsutengd lífsgæði Heilsutengd lífsgæði þátttakenda voru innan viðmiðunarmarka fyrir fríska einstaklinga, sem eru 50 stig ± 10 stig fyrir PCS og MCS hvort um sig í SF-36v2 spurningalistanum.37 Þátttakendur gáfu al- mennri heilsu sinni að meðaltali 7,7 stig af 10 mögulegum í EQ- Tafla III. Fjöldi þátttakenda innan viðmiðunarmarka holdafarsmælinga og DS14 Konur n (%) Karlar✦ n (%) Alls n (%) Kjörþyngd 32 (49,2) 5 (35,7) 37 (46,8) Yfirþyngd 26 (40,0) 7 (50,0) 33 (41,8) Offita 7 (10,8) 2 (14,3) 9 (11,4) Mitti innan marka 18 (27,7) 9 (60,0) 27 (22,8) Mitti yfir mörkum 47 (72,3) 6 (30,0) 53 (66,3) Hlutfall mittis og mjaðma innan marka 37 (56,9) 7 (46,7) 44 (55,0) Hlutfall mittis og mjaðma yfir mörkum 28 (43,1) 8 (53,3) 36 (45,0) Fituhlutfall innan marka 31 (47,7) 8 (53,3) 39 (48,8) Fituhlutfall yfir mörkum 34 (52,3) 7 (46,7) 41 (51,2) DS14 NA <10 48 (73,8) 10 (66,7) 58 (72,5) DS14 NA >9 17 (26,2) 5 (33,3) 22 (27,5) DS14 SI <10 44 (67,7) 8 (53,3) 52 (65,0) DS14 SI >9 21 (32,3) 7 (46,7) 28 (35,0) Ekki með persónuleika D 57 (87,7) 12 (80,0) 69 (86,3) Með persónuleika D 8 (12,3) 3 (20,0) 11 (13,8) ✦skráning á þyngd eins þátttakanda var ófullnægjandi og því ekki notuð við útreikninga sem hafa með þyngd að gera. Skammstafanir og útskýringar: DS14 (spurningalisti sem metur persónuleika D), NA (tilhneiging til neikvæðrar líðanar), SI (félagslegar hömlur).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.