Bændablaðið - 20.08.2020, Side 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 11
Þrettán verkefni fengu úthlutað
styrkjum í verkefninu Áfram
Árnes hreppur sem stendur yfir
og er hluti af verkefninu Brot
hættar byggðir á vegum Byggða
stofnunar. Úthlutað var tæplega
14,8 milljónum króna til verkefn
anna. Þess er vænst að verkefnin
muni augða mannlíf og samfélagið
allt í þessu fámennasta sveitarfé
lagi landsins.
Stærsti styrkurinn fer til
endur bóta á búningsaðstöðu við
Krossneslaug. Hún var gerð árið
1954 og er rétt fyrir ofan fjöruna
þannig að gestir horfa út yfir haf-
flötinn þegar þeir slaka á í lauginni.
Ungmennafélagið Leifur heppni sér
um rekstur laugarinnar.
Annað stórt verkefni er
uppbygging á Baskasetri sem mun
fjalla um veru Baska hér á landi. Þeir
stunduðu sjávarnytjar hér um langt
skeið fyrr á öldum. Einnig verður
saga Spánverjavíganna rakin, en
sýslumaðurinn Ari í Ögri lét elta uppi
og drepa áhafnir þriggja baskneskra
skipa sem höfðu farist í Reykjarfirði.
Setrið og sýningin verður sett upp
í risavöxnum lýsistanki í gömlu
síldarverksmiðjunum í Djúpavík.
Hanna og smíða smáhýsi
Verkefnið Djúpavíkurhús snýst um
að hanna og framleiða smáhýsi sem
verða síðan seld um allt land. Húsin
eru hugvitssamlega innréttuð þannig
að rýmið nýtist sem best og þau eru
einnig skemmtileg í útliti. Húsin
verða framleidd i Djúpavík eins og
nafnið bendir til.
Ómar Bjarki Smárason fékk styrk
til að kortleggja og gera aðgengilegar
upplýsingar um hina merkilegu
jarðfræði Árneshrepps og Kristjana
Svarfdal fékk styrk til að koma upp
jógasetri í gamla renniverkstæðinu
í síldarverksmiðjubyggingunum
í Djúpavík. Þá var veittur styrkur
til kaupa á öryggisbúnað fyrir
Sleðaferðir á Ströndum, m.a. Tetra-
talstöðvar. Það var sett sem skilyrði
að björgunarsveitin hefði aðgang
að þeim ef á þyrfti að halda. Sleða-
ferðirnar njóta sívaxandi vinsælda.
The Factory er myndlistarsýning
listamanna af ýmsu þjóðerni sem
sýna í sal verksmiðjubyggingarinn-
ar í Djúpavík. The Factory er stýrt
af Emilie Dalum sem hefur séð um
þetta verkefni í mörg ár, en alls hafa
verið myndlistarsýningar í þessu
rými frá því um aldamót. Styrkur
var veittur til að bæta aðstöðu á tjald-
stæði við Urðartind í Norðurfirði.
Þar er nú verið að leggja lokahönd á
vatnssalerni og snyrtingu fyrir tjald-
ferðalanga.
Verið er að hanna flóttaherbergi
(Escape Room) í Djúpavík. Þetta
er spennandi þraut fyrir unga sem
aldna sem reynir á útsjónarsemi og
að leggja saman vísbendingar til að
fá út rétta niðurstöðu. Reiknað er
með að herbergið verði tilbúið næsta
sumar.
Þróar ullarvinnslu
Elsa Rut Jóhönnudóttir fékk styrk
til að þróa áfram ullarvinnslu, en
hún hefur gert tilraunir með lopa
og ull og eru vörur hennar seldar í
Verzlunarfjelagi Árneshrepps og njóta
mikilla vinsælda. Verzlunarfjelagið
fékk líka lítinn styrk til að bæta kaffi-
aðstöðu fyrir gesti, enda þjónar versl-
unin ekki síst sem samfélagsmiðstöð
í Árneshreppi.
Sögusýning í Djúpavík
Í verksmiðjubyggingunum í Djúpa-
vík er sögusýning um tilurð og
starfsemi verksmiðjunnar, sem var
reist á árunum 1934–5, að mestu
með handafli. Sýnt er hvernig
menn leystu risavaxin verkefni
með hugvitssemi og samtakamætti.
Sögusýningin fékk styrk, ekki
síst til að gera söguskilti um m.s.
Suðurlandið, en stefni þess er í
fjörunni í Djúpavík. Það er afar
myndrænt og er ljósmyndað í tætlur
á hverju sumri.
Ferðamálasamtök Árneshrepps
fengu myndarlegan styrk til
hönnunar og útgáfu á markaðsefni
til að laða fólk til Árneshrepps. Að
samtökunum standa allir ferðaþjónar
í hreppnum og kemur það mörgum á
óvart hve margt er að sjá og upplifa
í Árneshreppi. /MÞÞ
Starfssvið:
TÆKNIMAÐUR
Menntunar- og hæfniskröfur:
Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri • bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Vegna aukinna umsvifa leitum við að framúrskarandi starfsmanni í DeLaval
þjónustudeild Bústólpa. Starfsmaðurinn mun hljóta þjálfun hjá Bústólpa og DeLaval.
• Þjónusta á DeLaval mjaltaþjónum og
öðrum tæknibúnaði
• Viðgerðir og uppsetningar á DeLaval búnaði
• Iðnmenntun skilyrði
• Góð enskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Hæfni til að vinna sjálfstætt
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Þekking á landbúnaði er kostur
• Bílpróf er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2020.
Umsókn um starfið ásamt ferilskrá skal send til aðstoðarframkvæmdarstjóra á netfangið hanna@bustolpi.is.
Bústólpi starfrækir fóðurverksmiðju á Oddeyrartanga á Akureyri ásamt því
að reka verslun með vörur sem tengjast landbúnaði. Bústólpi er þjónustuaðili
DeLaval á Íslandi. Það starfa 23 manns hjá Bústólpa og við höfum verið valið
fyrirmyndar fyrirtæki 9 ár í röð af Creditinfo.
Þrettán styrkir til fjölbreyttra verkefna í Árneshreppi:
Baskasetur byggt upp í risavöxnum lýsistanki
Þrettán verkefni fengu úthlutað
styrk jum að upphæð tæplega 15
milljónir í verkefninu Áfram Árnes
hreppur sem stendur yfir. Á mynd
inni er hluti þeirra sem fengu styrki.
Mynd / Skúli Gautason
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?