Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202024
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Bustarfellsdagurinn
haldinn í 28. sinn
Höfuðbýlið Bustarfell í Hofsárdal, Vopnafirði. Margt um manninn og fjölskyldufólk fjölmennti á Bustarfellsdaginn.
Myndir / Birna H. Einarsdóttir og Þórdís Þórarinsdóttir
Þann 5. júlí síðastliðinn var Bust
ar fellsdagurinn haldinn hátíðlegur
í 28. sinn. Dagskráin fór fram á
hinu forna höfuðbýli Bustarfelli
í Hofsárdal, Vopnafirði, þar sem
einn stærsti og best varðveitti torf
bær landsins stendur. Í honum er
minjasafn, sem geymir tveggja
alda sögu lifnaðarhátta í bænum og
sveitinni á tímabilinu 1770 til 1966
að flutt var úr bænum.
Á Bustarfellsdaginn lifnar gamli
bærinn við þegar gengið er í gömlu
störfin og í ár mátti til að mynda
sjá hina þekktu textíllistakonu
Sigrúnu Láru Shanko að störfum
og annars staðar í bænum var skor-
ið út, ofið við vefstólinn, prjónað
jafnt á hringprjónavél og gömlu
góðu sokkaprjónana og úti í hjall-
inum bullaði í ullarlitunarpottun-
um.
Venju samkvæmt mátti gæða sér
á ýmiss konar góðgæti hér og þar
um bæinn, svo sem reyktu sauða-
kjöti, heimabökuðu rúgbrauði og
harðfiski, og fá bæði í nefið og
tána í skiptum fyrir góða sögu eða
vísu. Þá tóku heimasætur í upphlut
á móti gestum á baðstofuloftinu
og buðu upp á kaffi, lummur og
kandís.
Í gamla haughúsinu voru valin
brot úr heimildarmynd Ásdísar
Thoroddsen, Gósenlandið, sýnd,
en Elín heitin Methúsalemsdóttir,
húsfreyja á Bustarfelli, fléttar
saman þræði myndarinnar með
því að segja frá matarhefðum á
Bustarfelli og sögu bæjarins. Á
kaffihúsinu Hjáleigunni hékk
uppi ljósmyndasýning Halldóru
Andrésdóttur, Réttardagur, með
svipmyndum af bændum og
búaliði á réttardegi í Teigsrétt. Og í
Hjáleigunni svignuðu borðin undan
bakkelsi sem Kvenfélagið Lindin
reiddi fram af list og mettaði mann-
skapinn.
Að vanda var aðsókn góð og
fjölmennti fjölskyldufólk, enda var
af nógu að taka fyrir börnin, sem
gátu til að mynda farið á hestbak og
skemmt sér með dýrunum í daln-
um, sem léku við hvurn sinn fingur,
og gátu því allir fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Fleiri myndir frá þessum
skemmtilega degi má finna á
Facebook-síðu minjasafnsins og
safnið verður opið alla daga frá
10–17 og kaffihúsið Hjáleigan frá
11–17 út sumarið. /FÁI
Yngri og eldri engjamenn. Það söng og hvein í ljánum hjá þessum sláttu-
mönnum.
Þjóðleg stemning og prúðbúnu heimasæturnar á baðstofuloftinu.
Hvítserkur er brimsorfinn 15 metra hár klettur í sjó við vestanverðan botn
Húnafjarðar í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann stendur rétt í flæðarmálinu,
austan við Vatnsnesið. Hvítserkur er hvítur af fugladriti og er sennilegt að
nafnið sé dregið af því.
Ísland býður á stefnumót:
Heimsókn á friðlýst svæði
Stefnumót við náttúruna er yfir
skrift hvatningarátaks sem miðar
að því að hvetja landsmenn til að
heimsækja friðlýst svæði á Íslandi
í sumar. Að átakinu stendur
umhverfis og auðlindaráðuneytið
í sam starfi við Umhverfisstofnun,
Vatnajökulsþjóðgarð og þjóð
garðinn á Þingvöllum.
Friðlýst svæði á Íslandi eru
tæplega 120 talsins og þar geta gestir
upplifað ólíkar hliðar íslenskrar
náttúru, allt frá viðkvæmum gróðri
og skordýrum til stórbrotinna fjalla,
landslags og útsýnis sem á engan
sinn líkan.
Aukin fræðsla um friðlýsingu
Á mörgum svæðanna er í boði
fjölbreytt þjónusta þar sem
landverðir veita fræðslu og
upplýsingar og traustir innviðir á
borð við göngustíga, útsýnispalla,
tjaldstæði og nútímaleg salerni eru
innan seilingar.
Verkefnið Stefnumót við
náttúruna er hluti af yfirstandandi
friðlýsingarátaki umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins sem felur
meðal annars í sér aukna fræðslu
um friðlýsingar og friðlýst svæði.
Friðlýsingarflokkar
Íslenskir friðlýsingarflokkar eru níu
talsins og taka mið af flokkunarkerfi
Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna
(IUCN) fyrir vernduð svæði.
Þannig eru friðlýst svæði á Íslandi
samanburðarhæf við verndarsvæði í
öðrum löndum og auðvelt að leggja
mat á árangur verndar.
Flokkun IUCN grundvallast
á því hver markmiðin eru með
stjórn svæðanna en fleiri þættir
skipta einnig máli, til dæmis ein-
kenni svæðanna og sérstaða þeirra.
Svæði geta raunar fallið undir fleiri
en einn flokk. Þannig geta mismun-
andi svæði innan þjóðgarða verið
skilgreind í ólíka verndarflokka.
Flokkuninni er ætlað að hjálpa til
við skipulagningu verndaðra svæða,
stjórn framkvæmda og stuðla að
bættum upplýsingum um svæðin.
Íslenskir friðlýsingarflokkar
skiptast í náttúruvé, óbyggð
víðerni, þjóðgarða, náttúruvætti,
friðlönd, landslagsverndarsvæði,
verndarsvæði með sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda, fólkvanga, friðlýst
svæði í verndarflokki verndar- og
orkunýtingaráætlunar og friðlýsing
heilla vatnakerfa. /VH
Austur vegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Vesturhrauni 3 // 210 Garðabær // 480 0000 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is
Cobalt 550 Max ltd
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.680.000
Iron 450 Max ltd
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.480.000
með vsk. með vsk.
götuskráð
!
drIflæsIng fraMan og aftan / hátt og lágt drIf / rafléttIstýrI / dráttarkúla / spIl / stór dekk / stIllanleg fjöðrun