Bændablaðið - 20.08.2020, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 25
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Bænda 56-30-300
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Kortlagning ágengra plantna í Þingeyjarsveit:
Skógarkerfill og lúpína
breiðast hratt út
„Það er mjög mikið af skógarkerfli
í Þingeyjarsveit, sérstaklega á
Laugum í Reykjadal, en þaðan
hefur hann dreifst mjög víða um
Reykjadalinn. Þá er orðið mikið af
skógarkerfli á nokkrum svæðum í
Kaldakinn og stöku stað í Aðaldal
og Fnjóskadal,“ segir Sigþrúður
Stella Jóhannsdóttir, líffræðingur
hjá Náttúrustofu Norðausturlands.
Sigþrúður og Sesselja Guðrún
Sigurðardóttir, sem einnig er líf
fræðingur hjá NNA, luku í sumar við
kortlagningu á ágengum og framandi
plöntutegundum í Þingeyjarsveit,
lúpínu, skógarkerfli og bjarnarkló.
Vettvangsvinnu er lokið og er nú
verið að vinna upp úr henni. Verkinu
lýkur í haust.
Útbreiðsla eykst
með minnkandi beit
Sigþrúður Stella segir að
skógarkerfillinn breiðist mjög hratt
út um svæðið, meðfram vegum þar
sem fræin „fá far“ með farartækjum
og meðfram ám og lækjum. Einnig
getur hann dreifst mjög auðveldlega
með jarðvinnuvélum sem fara á milli
svæða.
Með minnkandi beit á svæðinu
hefur útbreiðsla hans aukist mjög
mikið og hann leggur auðveldlega
undir sig gömul næringarrík tún og
önnur vel gróin svæði en einnig tekur
hann yfir lúpínubreiður. Í þéttum
breiðum verður skógarkerfillinn
allsráðandi og aðrar plöntutegundir
þrífast þar ekki.
„Spánarkerfill er ekki eins út
breidd ur en á nokkrum stöðum eru
miög stórar breiður af honum. Hann
dreifist á sama hátt og skógarkerfill.
Hann er ekki enn orðinn eins ágeng
ur en spurning hvað verður,“ segir
Sigþrúður Stella.
Aðrar plöntur verða undir í
samkeppni við lúpínu
Lúpína er víða um svæðið, að sögn
Sigþrúðar Stellu, og eru stærstu
breiðurnar í landgræðslugirðingum
og skógarreitum en hún hefur einnig
dreift sé víða utan þeirra svæða og
inn á gróið land þar sem ekki er beit.
„Lúpína hefur dreift sér víða
meðfram Skjálfandafljóti og
Fnjóská og út í eyrar og hólma í
ánum. Plöntutegundum fækkar
í lúpínubreiðum þar sem litlar
plöntur verða undir í samkeppninni.
Í hólmum og meðfram Fnjóská hefur
t.d. eyrarrósin þurft að víkja fyrir
lúpínu.“
Mikið um bjarnarkló á
Végeirsstöðum
Bjarnarkló, eða risahvönn, er
ekki á mörgum stöðum innan
sveitarfélagsins en Sigþrúður Stella
segir að þó hafi nú í sumar fundist
margar plöntur innan skógargirðingar
við Végeirsstaði í Fnjóskadal, –
„og þar eru fleiri plöntur en á öllum
hinum stöðunum, þar sem bjarnarkló
er, til samans“. /MÞÞ
Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir við bjarnarklóarbreiðu á Végeirsstöðum fyrr
í sumar. Mynd / Sesselja Guðrún Sigurðardóttir
Sesselja Guðrún Sigurðardóttir við
vettvangsvinnu sumarið 2019.
Mynd / Chanee Thianthong
Sesselja Guðrún og Sigþrúður Stella
önnum kafnar í vettvangsvinnu í
fyrrasumar. Mynd / Chanee Thianthong
Séð yfir Lauga í Reykjadal sumari 2019, en þar sjást stórar kerfilsbreiður
greini lega. Mynd / Aðalsteinn Örn Snæþórsson
Íbúðarhúsnæði á Bifröst til leigu
Fjölbreytt og hagstætt íbúðarhúsnæði til leigu.
Einstaklingar fá herbergi í 2-6 manna íbúðum en einnig
bjóðast fjölskylduíbúðir af öllum stærðum og gerðum.
Tilvalið fyrir þá sem vilja stunda nám við Háskólann á
Bifröst sem og þá sem vilja búa í fallegri sveit.
Í skólanum er bjart og fallegt bókasafn og á staðnum er
líkamsræktarstöð og heitir pottar.
Með búsetu á Bifröst fylgir aðgangur að háhraða
interneti.
Nánari upplýsingar á bifrost.is
- í fararbroddi í fjarnámi