Bændablaðið - 20.08.2020, Síða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202026
Skjól er nýlegt einkarekið tjald
svæði sem var opnað vorið 2014
og nýtur sívaxandi vinsælda, bæði
meðal erlendra ferðamanna og
Íslendinga. Greinilegt er að mik
ill metnaður ríkir í uppbyggingu
staðarins og þjónustu við ferða
menn, sem koma þar aftur og
aftur. Enda hefur staðurinn skart
að fimm stjörnum á ferðasíðunni
Tripadvisor sem segir heilmikið
um ánægju þeirra viðskiptavina
sem þangað koma.
Skjól er vel staðsett á „Gullna
hringnum“ svonefnda, mitt á milli
Gullfoss og Geysis við veg nr. 35
í landi Kjóastaða 1. Á veitinga
staðnum, sem er með sali á tveim
hæðum, er hægt að taka við allt að
180 manns í mat í einu.
Stutt er í vinsælustu náttúruperlur
landsins og aðeins 3,5 km niður
að Geysi, 6 km upp að Gullfossi
og um 4 km að Brúarhlöðum. Þá
er kjörbúðir að finna í um 25–30
km radíus, þ.e. á Laugarvatni, á
Flúðum og einnig á bensínstöðinni
á Reykjum.
Jón Örvar Baldvinsson er eig
andi tjaldstæðisins og veitinga
staðarins Skjóls. Tíðindamaður
Bændablaðsins tók hús á Jóni
Örvari nú í sumar og spurði hann
um uppruna og ástæður þessarar
uppbyggingar í landi Kjóastaða.
Með sögufrægan bar á tjaldsvæði
í uppsveitum Árnessýslu
Það er þó fleira merkilegt við Skjól
en myndarleg aðstaða fyrir ferðaglatt
bakpoka, fellihýsa, hjólhýsa og
húsbílafólk. Á veitingastaðnum
sem þar hefur verið byggður upp
er líklega um 57 ára gamall veglegur
bar sem ættaður er úr Pálmasal
Hótel Borgar í Reykjavík. Við
þennan bar hafa margir þjóðþekktir
og líka heimsfrægir einstaklingar
væntanlega kneyfað öl úr krús eða
dreypt á gini í tónik.
Margir eiga þannig tengsl við
þetta barborð í gleði og örugglega
hafa einhverjir líka reynt að drekkja
þar sorgum sínum. Meira að segja
sölufulltrúi MS, sem færir eiganda
Skjóls ost í hverri viku, á við það
sterka tengingu. Hann heitir Bjarki
Long og er lærður framreiðslumeist
ari og nam sitt fag einmitt við þetta
barborð á Hótel Borg á sínum tíma.
Á kvöldin er ekki óalgengt að
gestir setjist niður við barinn og
spili nokkur lög á gítar. Ef gestir
geta haldið lagi, spilað þrjú lög á
gítar eða píanó og fengið klapp frá
áhorfendum fá þeir gjarnan bjór í
verðlaun. Þar hafa líka troðið upp
margir heimsfrægir listamenn af
ýmsum toga úr hópi gesta. Erfitt
hefur þó verið undanfarið að bjóða
upp á lifandi músík á Skjóli vegna
nálægðartakmarkana og hættu á
útbreiðslu COVID19.
Kom frá Húsavík og lærði að
vera þjónn á Hótel Sögu
„Ég er lærður þjónn og lærði mitt
fag á Hótel Sögu þar sem ég byrjaði
22 ára gamall,“ segir Jón Örvar. „Ég
hef eiginlega unnið við veitinga
þjónustu alla mína starfsævi. Annars
kem ég frá Húsavík og kom til starfa
á Geysi árið 2002. Þar var ég að
vinna til 2014 þegar ég hóf hér starf
semi. Ég byggði þetta upp sem fjöl
skylduvænt tjaldsvæði og hef haldið
mig við það síðan.“
Jón passar upp á að krakkar
hafi eitthvað við að vera í Skjóli
og hefur komið upp ærslabelg á
svæðinu ásamt rólum og sparkvelli.
Þá reyndi hann um sinn að bjóða
krökkum upp á að kynnast kanínum
og geitum. Af heilbrigðissjónarmið
um ákvað hann þó að hætta því,
allavega í bili.
Keypti land á Kjóastöðum 2010
„Ég keypti landið upphaflega
undir þessa starfsemi af Magnúsi
Jónassyni og Kristínu Ólafsdóttur
á Kjóastöðum 1 árið 2010. Um
haustið 2013 byrjaði ég að leggja
hér vegi fyrir veitingastaðinn og
tjaldstæðið og fá öll leyfi til að
breyta skilyrðum landsins úr því að
vera bújörð yfir í svæði fyrir verslun
og þjónustu. Ég flutti tvö hús hér
á lóðina 2014 og síðan opnaði ég
aðstöðuna hér 1. júní 2014. Ég
byggði síðan tengibyggingu úr
stálgrind á milli húsanna árið 2017.
Ég er því kominn hér með rúma 500
fermetra að gólffleti.
Í upphafi byrjaði ég með að vera
með „hostel“ gistingu í öðru húsinu
og var nóg að gera. Hins vegar jókst
eftirspurn eftir gistingu í gegnum
Airbnb og annað hröðum skrefum
hér á svæðinu og fékk ég þá hvergi
gistingu fyrir starfsfólkið mitt. Þess
vegna breytti ég gistiaðstöðunni í
starfsmannahúsnæði og sparaði mér
þá líka bílakostnað við að koma
starfsmönnum til og frá vinnu.
Ég fæ enga styrki eða meðgjöf
með þessum rekstri og því held
ég að næsta skref hjá mér verði að
sækja um lögbýlarétt, allavega til að
fá niðurfellingu af gjöldum vegna
starfsmannahúsnæðis.“
Hyggst reisa nýtt aðstöðuhús
fyrir tjaldstæðagesti
Öll aðstaða fyrir tjaldstæðagesti,
eins og salerni, sturtur og upp
þvottaaðstaða, er í þjónustu húsinu
sem hýsir líka veitingastaðinn.
Þessu hyggst Jón breyta.
„Það er stefnan að byggja hér á
svæðinu nýtt aðstöðuhús sem ein
göngu yrði fyrir tjaldstæðið, en í
dag er sú aðstaða sameiginleg með
veitingastaðnum sem getur stundum
verið bagalegt.“
Áberandi breyting
á aðbúnaði ferðamanna
Jón segir að aðsóknin að
tjaldsvæðinu Skjóli hafi vaxið
hröðum skrefum og áberandi
breyting sé á aðbúnaði ferðamanna.
Nú séu hjólhýsi mest áberandi ásamt
fellihýsum og tjaldvögnum, en tjöld
eru ekki mjög áberandi lengur.
Ört vaxandi aðsókn
„Fyrsta árið vorum við að fá hingað
á tjaldstæðið á milli tvö til fjögur
þúsund manns. Það jókst fljótlega
Jón Örvar Baldvinsson hóf rekstur á tjaldstæðinu Skjóli sumarið 2014 og nýtur staðurinn ört vaxandi vinsælda.
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Bjarki Long er sölufulltrúi fyrirtækjasviðs MS og kemur reglulega í heimsókn til Jóns Örvars í Skjóli með ost. Hér
eru þeir félagarnir við mjög merkilegan bar sem á sér mikla sögu og er frá 1963 og var á Hótel Borg í Reykjavík.
Þar var barinn í Pálmasalnum til 2008 þegar staðnum var breytt. Bjarki er menntaður framreiðslumeistari og lærði
sitt fag einmitt á þessum bar á Hótel Borg á sínum tíma. Barinn er mikil og vönduð smíð og níðþungur og segir
Jón að mikið átak hafi verið að koma honum fyrir á veitingastaðnum í Skjóli.