Bændablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 35
Gríðarlegur vandi sem skapast
hefur vegna svínapestarinnar sem
herjað hefur í Kína hefur orðið fjár
málamönnum að féþúfu. Græða þeir
nú sem aldrei fyrr á við skiptum með
svínakjöt sem stórhækkað hefur í
verði vegna minna framboðs.
Qin Yinglin, forstjóri og aðal
eigandi Muyuan Foodstuff Co., hefur
horft á fyrirtæki sitt fjórfaldast í verði
á þessu ári og eru eignir hans metnar
á 8,6 milljarða dollara. Er þetta mesta
eignaaukning á milljarðamæringa
vísitölu Bloomberg yfir 500 ríkustu
einstaklingana sem sést hefur þessi
misserin. Segja má að Qin sé eins
konar spútnik í milljarðamæringa
hópnum og er hann í hópi tíu ríkustu
manna í Kína.
Stórgræðir á
verðhækkunum á svínakjöti
Er þessi mikli gróði Qin Yinglin
skýrður með því að heildsöluverð á
svínakjöti hefur tvöfaldast í verði á
þessu ári samkvæmt tölum viðskipta
ráðuneytisins í Kína. Ástæðan er
afríska svínapestin sem hefur leitt til
þess að milljónir svína hafa drepist í
landinu og valdið hefur skorti á svína
kjöti á markaði. Hefur þessi hækkun
á verði svínakjöts valdið mestu verð
bólgu sem sést hefur í landinu í sjö ár.
Hagnaður fyrirtækisins Muyuan
Foodstuff Co. á þriðja ársfjórðungi
hefur aukist um 260% miðað við sama
tíma 2019. Samkvæmt Fitch Ratings
hafa stórfyrirtæki í viðskiptum
með svínakjöt verið að sölsa undir
sig markaðinn og þrýsta minni
fyrirtækjum út úr samkeppninni.
Fleiri græða á svínapestinni
Qin Yinglin er þó ekki sá eini sem
veðjað hefur á og grætt vel á vand
ræðum Kínverja vegna svínapest
arinnar. Má þar nefna WH Gorup,
sem skráð er á markaði í Hong Kong
og er stærsti svínakjötsframleiðendi
í Kína. Einnig New Hope Group,
sem er svínaeldisfyrirtæki og fóður
framleiðandi. Eignir eigenda þess og
forstjóra, Liu Yonghao, eru nú metnar
á 11 milljarða dollara og hafa nær
tvöfaldast síðan 2018.
Stærsti hluti hagnaðar Qin Yinglin
er hins vegar tilkominn vegna 60%
eignarhluta hans í Muyuan Foodstuff
Co. Hann heldur sjálfur utan um
þann hlut ásamt eiginkonu sinni í
gegnum félag sitt, Muyuan Industrial
Group.
Búfræðingur sem byrjaði í rekstri
með 22 dýr en á nú milljónir
Qin var fæddur 1965 og er upp
runninn í Henanhéraði í Kína. Hann
er menntaður búfræðingur frá land
búnaðarháskólanum í Henan. Eftir
útskrift úr háskóla var hann sendur
á ríkisbúgarð, en lét þar af störfum
þrem árum seinna og stofnaði eigin
eldisstöð fyrir gelti. Í upphafi var
hann aðeins með 22 dýr, en nú sendir
fyrirtæki hans um 5 milljónir svína
í slátrun á hverju ári. Til að forðast
smit vegna svínapestarinnar eru allir
dýraflutningabílar fyrirtækisins sótt
hreinsaðir og allt fóður dýranna er
sótthreinsað með hitameðhöndlun.
Auk þess er allt loft sem dælt er inn í
svínabúin hreinsað í gegnum síur, að
því er Qin útskýrði í viðtali við China
Morning Post fyrr á árinu.
„Við verðum að komast í gegnum
þetta óveður og snúa því upp í
frábært tækifæri til að þróa okkur
áfram,“ sagði Qin m.a. í viðtalinu.
/HKr.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
561 9200
UTAN ÚR HEIMI
Milljarðamæringar hagnast gríðarlega á svínapestinni í Kína
– Ástæðan er skortur á svínakjöti sem leitt hefur til mikilla verðhækkana
Milljarðamæringurinn Qin Yinglin,
forstjóri og aðaleigandi Muyuan
Foodstuff Co.
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 117, 201 Kópavogi, sími 550 3000 er
með til sölu jörðina Hól Norðurárdal í Borgarbyggð.
Húsakostur á jörðinni er íbúðarhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr
frá árinu 1979 stærð 224m2. Húsið er sambyggt við eldri hluta frá1962 sem
er 144m2. Snyrtilegt hús en hluti af neðri hæð hefur ekki verið full inréttaður.
Véla- og verkfærageymsla, 60,5m2 að stærð, frá árinu 1964 og sambyggð véla/
verkfærageymsla, 60,5m2 að stærð frá árinu 1990. Fjós, 117,3 m2 að stærð, frá
árinu 1971. Mjólkurhús, 17,7 m2 að stærð, frá árinu 1971. Hlaða, 112,7 m2 að
stærð, frá árinu 1969. Fjárhús, 176,2 m2 að stærð, frá árinu 1933. Hlaða, 57m2
að stærð, frá árinu 1938.
Á Hóli hefur verið búið með sauðfé og kýr en í dag er aðeins búið með sauðfé.
Vetrarfóðraðar ær eru um 150 og framleiðsluréttur í sauðfé um 135 ærgildi.
Bærinn stendur á lágum hól, snertispöl frá suðausturbakka Norðurár. Þeim
megin árinnar þar sem er mjó láglendisræma og gott slægjuland. Land Hóls
takmarkast að vestan af landi Hafþórsstaða, að sunnan af landi Lundar í
Þverárhlíð. Að austan af landi Háreksstaða og norðan af löndum Dýrastaða og
Hvamms um Norðurá og Hólsey, en þar á Hóll góð slægjulönd beggja megi ár
svo og engjastykki á Desey. Þessi slægjulönd hafa nú öll verið ræktuð. Gott
beitiland er á jörðinni. Hóll á laxveiðirétt í Norðurá og upprekstur á Hellistungur.
Landstærð jarðarinnar er um 450 hektarar þar af tæpir 40 hektarar tún.
Áhugaverð jörð að mörgu leiti t.d. fyrir ferðaþjónustu m.a. vegna
fjölda herbergja í íbúðarhúsinu og vegna staðsetningar.
Hóll, Borgarbyggð
Hóll, Borgarbyggð
Á Hóli hefur verið búið með sauðfé og kýr en í dag er aðeins búið með
sauðfé. Vetrarfóðraðar ær eru um 150 og framleiðsluréttur í sauðfé um
135 ærgildi.
Bærinn stendur á lágum hól, snertispöl frá suða sturbakka Norðurár. Þeim
megi árinnar þar sem er mjó láglendi ræma og gott slægjuland. Land Hóls
takmarkast að vestan af landi Hafþórsstaða, að sunnan af landi Lundar í
Þverárhlíð. Að austan af landi Háreksstaða og norðan af löndum Dýrastaða og
Hvamms um Norðurá og Hólsey, en þar á Hóll góð slægjulönd beggja megi ár
svo og engjastykki á Desey. Þessi slægjulönd hafa nú öll verið ræktuð. Í hálsi-
num suðaustan túns skiptast á mýrarsund, auk þess er þar grasi og lygi vaxnar
brekkur. Þar á milli eru svo mosa vaxin, ávöl holt og mólendi. Gott beitiland
er á jörðinni. Hóll á laxveiðirétt í Norðurá og upprekstur á Hellistungur. Land-
stærð jarðarinnar er um 450 hektarar þar af tæpir 40 hektarar tún.
Húsako ur á jörðinni er íbúðarhús á tveimur hæð m með innbyggðum bíl-
skúr frá árinu 1979 stærð 224 m². Húsið er sambyggt við eldri hluta frá 1962
sem er 144 m². Snyrtilegt hús en hluti af neðri hæð hefur ekki verið full inrét-
taður. Véla- og verkfærageymsla, 60,5 m² að stærð, frá árinu 1964 og sambyg-
gð véla/verkfærageymsla, 60,5 m² að stærð frá árinu 1990. Fjós, 117,3 m² að
stærð, frá árinu 1971. Mjólkurhús, 17, 7m² að stærð, frá árinu 1971. Hlaða,
112,7 m² að stærð, frá árinu 1969. Fjárhús, 176,2 m2 að stærð, frá árinu 1933.
Hlaða, 57 m² að stærð, frá árinu 1938.
Áhugaverð jörð að mörgu leiti t.d. fyrir ferðaþjónustu m.a. vegna fjölda
herbergja í íbú arhúsinu og v gna staðsetningar.