Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202046
Nú líður að fjársmölun og fannst
mér þá tilvalið að prófa tæki
og tól sem nýtast við smölun.
Ökutækjaprófunarsíðan (Véla
básinn) og síðan um forvarnir
(ÖryggiHeilsaUmhverfi) sem
hafa verið hér í blaðinu hlið við
hlið eru sameinaðir að þessu
sinni í umfjöllun sem tengja má
fjársmölun.
Tvö „leik-vinnu-tæki“
frá Ellingsen
Fyrir nokkru síðan fór ég í
Ellingsen og fékk þar tvö tæki til
að prófa og tók „dótadag“ með syni
mínum. Úrvalið af fjórhjólum sem
Ellingsen selur er mikið, en fyrir
valinu varð CanAm Outlander
XT-P 1000, árgerð 2020 sem kostar
frá 3.290.000 kr. XT-P hjólið er
flaggskipið í Outlander fjöl-
skyldunni, öflugt 2ja manna áttatíu
og tveggja hestafla fjórhjól sem var
með miklum aukabúnaði sem sett
hafði verið á hjólið fyrir viðskipta-
vin sem var búinn að kaupa hjólið
og gaf mér leyfi til að prófa það í
samráði við Ellingsen.
Gott að keyra jafnt
á vegi og í torfærum
Hjólið er með „traktorsskráningu“
og má því keyra á vegum, það nær
léttilega þriggja stafa tölu í hraða
og virðist ekkert vera svagt eða
laust á vegi á miklum hraða. Á
torfærum og grýttum vegslóðum
er gott að keyra það, fjöðrun góð
og 4x4-ViscoLok læsingin kemur
vel út, sérstaklega þar sem mikið
laust grjót er í slóðanum. Lyklarnir
eru tveir af hjólinu, grár og svartur:
Munurinn er í raun vinnulykill eða
keyrslulykill, sá grái er hægari lyk-
illinn, en meira tog og torfærur, en
sá svarti meiri hraði.
Mikið úrval aukahluta
fáanlegt á fjórhjólið
Ef verið er að hugsa um að kaupa
svona hjól og hugmyndin er að
ferðast mikið og langt mæli ég
eindregið með að setja handa-
hlífar og hita í handföng bæði
fyrir ökumann og farþega. Það
kostar sitt, nálægt 80.000, en er
fullkomlega peninganna virði. Stór
farangurskassi (124 lítrar) aftan á
farangursgrindina kostar aukalega
119.000, í staðinn fyrir vír í spilið
nota margir tóg sem stundum er
kallað „ofurtóg“, kemst lengra og
meira inn á spiltromluna (kostar
ekki mikið). Hjólið ber vel stærri
dekk sem gefa meira flot og mýkt
við torfæran akstur.
Sur-Ron LB-X götuskráð
rafmagnshjól á 849.000 kr.
Sur-Ron er mun öflugri og kraftmeiri
en hefðbundin rafmagnsfjallahjól, en
helmingi léttari og nettari en hefð-
bundnir krossarar. Hjólið er með 6
KW, 200 N.m 6000+W rafmagns-
mótor með Sport og Eco mode still-
ingum.60v/32AH Panasonic batt-
erýin eru minni úrfærsla af sömu
batteríum og Tesla notar. Hjólið er
einungis 47 kg og nær það 75-80
km/klst og fer allt að 100 km á einni
hleðslu.
200 mm framgaffall og 210 mm
afturdempari, 4 stimpla glussa-
bremsur, 70/100 krossaradekk og
19 tommu krossarafelgur. Hjólið er
með skellinöðruskráningu og þarf
réttindi á létt bifhjól til að keyra það.
Rafmagnskrossari, eitthvert
skemmtilegasta leiktæki sem ég
hef prófað
Fyrir rælni datt mér í hug að fá
rafmagnshjól til að prófa þegar
ég var að sækja fjórhjólið. Virkar
smátt og ekki líklegt til að geta gert
neitt, en raunin var önnur. Þetta
„apparat“ er hrein snilld. Ég hef
sjaldan skemmt mér svona vel á
torfæruhjóli (þrátt fyrir að vera
kominn á sjötugsaldur). Rafhlaðan
dugir í góða tvo klukkutíma í tor-
færum. Mesti hraði sem ég náði á
þessu hjóli var um 75 km á sport
stillingunni, en þegar maður ætlar
að nýta sem mest út úr rafhlöðunni
er betra að taka sport stillinguna af.
Ef maður er að fara á milli staða
án sportstillingar, fer maður hægar
yfir, en þá á maður meira rafmagn
eftir til að leika sér.
Það sem kom mér mest á óvart
er hvað hjólið þoldi af verulega
ógeðslega grýttum slóðum og það
hreinlega vakti furðu mína hvað
mátti bjóða hjólinu miklar torfær-
ur, þúfurakstur og stórgrýti. Þetta
„tryllitæki“ hefði verið gott til brúks
við að sækja beljurnar og smala
heimatúnið í sveitinni þar sem ég
ólst upp. Eftir um tveggja tíma leik
og allt rafmagn búið var syni mínum
mikið skemmt þegar ég fór úr brynj-
unni og hann sá að „gamli“ var vel
sveittur á bakinu. Varð honum þá
að orði: „Greinilega verið gaman
hjá þér.“
Nýr Garmin, auðveldur í notkun
(jafnvel fyrir mig „tölvuheftan“
manninn)
Fyrir rúmri viku kom nýtt á markað
Garmin leiðsögutæki sem er sér-
hannað fyrir útivistarfólk. Þetta tæki
kemur í þrem mismunandi útgáfum.
Ég las umsögn frá vini mínum,
Ásgeiri Erni Rúnarssyni, um Garmin
Montana 700 i frá vini mínum sem
var að hluta svohljóðandi:
„Nýtt og betra GPS tæki frá
Garmin fyrir okkur ævintýrafólk
sem elskum að fara út á F-vegi.
Tækið er endurbætt útgáfa af
Montana tækinu sem hefur verið
mjög vinsælt hjá okkur ferða-
hjólurum. Þetta tæki kemur í þrem-
ur útgáfum, Montana 700, 700i og
750i .
Ég er búinn að vera að fikta svo-
lítið í tækinu síðasta sólarhringinn
og líst mjög vel á. Hægt er að hafa
tækið uppistandandi eða útafliggj-
andi.
Tækið er með 5 tommu snert-
iskjá sem er bjartur og góður í
VÉLABÁSINN &ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Can Am 1000 er seigt í torfærum. Myndir / HLJ
Vinnulykill sá grái fyrir vinnumanninn,
en svarti meira fyrir akstur og hraða. Hjálm, brynju, hálskraga og góða vettlinga eiga allir að vera með á fjórhjólum.
Sur-Ron LB-X götuskráð rafmagnshjól. Magnað hvað dekkin þoldu mikinn hamagang í grjóti án þess að springa.
Myndin er skýr og örnefni mörg í
Íslandskortinu.
Hægt að taka leið dagsins og gera
mynd úr henni í tölvunni.