Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2020 1. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 135.35 Sterlingspund 175.98 Kanadadalur 100.89 Dönsk króna 21.365 Norsk króna 14.841 Sænsk króna 15.416 Svissn. franki 148.02 Japanskt jen 1.2883 SDR 190.45 Evra 159.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 192.1262 Hrávöruverð Gull 1952.2 ($/únsa) Ál 1687.0 ($/tonn) LME Hráolía 43.73 ($/fatið) Brent Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla Tap móðurfélags Árvakurs hf. árið 2019 nam 210 milljónum króna, en árið á undan var tapið 415 millj- ónir króna. EBITDA var neikvæð um 190 milljónir króna sem er einnig umtalsverður bati frá fyrra ári. Samanburður á milli ára er ekki fyllilega raunhæfur þar sem Póstmiðstöðin ehf., sem Árvakur keypti í árslok 2018 51% hlut í, er komin inn í samstæðu félagsins. Tap samstæðu Árvakurs nam 291 milljón króna. Hlutafé var aukið um 300 millj- ónir króna í fyrra. Eiginfjárhlut- fall móðurfélags Árvakurs í lok árs var 38%. „Rekstrarumhverfið er áfram mjög erfitt,“ segir Haraldur Jo- hannessen, framkvæmdastjóri Ár- vakurs. „Eins og þekkt er af um- ræðunni hefur rekstrarumhverfi fjölmiðla verið afleitt síðastliðin ár og setur sú staðreynd áfram mark sitt á afkomu Árvakurs. Staðan batnar engu að síður á milli ára vegna mikilla hagræðingarað- gerða sem gripið var til haustið 2018 og vorið 2019. Undir árslok í fyrra var aftur gripið til mikilla hagræðingaraðgerða, sem hafa orðið til þess að reksturinn hefur haldið áfram að batna það sem af er þessu ári þrátt fyrir mikinn skell sem Árvakur, líkt og flest önnur fyrirtæki, hefur orðið fyrir vegna kórónuveirunnar. Vegna kórónuveirufaraldursins er útlitið hins vegar mikilli óvissu háð og af- ar erfitt að átta sig á því hvernig rekstrarumhverfið mun þróast, en rekstur fjölmiðla er mjög við- kvæmur fyrir undirliggjandi ástandi í atvinnulífinu. Sá árangur sem þrátt fyrir allt hefur náðst er ánægjulegur og ekki síður sú staðreynd að miðlar Árvakurs standa afar sterkt og ná til 94% landsmanna. Morgunblaðið og mbl.is halda sinni öflugu stöðu og samkvæmt nýjustu mælingum er K100 orðin næststærsta út- varpsstöð landsins í sínum mark- hópi,“ segir Haraldur. Tap Árvakurs minnkar á milli ára  Miðlarnir standa sterkt - K100 komið upp í 2. sæti Fjármálastöðugleika Seðlabankans kemur fram að 10% af heildarút- lánum bankanna séu til ferðaþjón- ustufyrirtækja og nemur upphæðin réttum 250 milljörðum króna. Áhrifin skýr hjá Landsbanka Segja má að áhrif vegna kórón- uveirunnar komi skýrast fram hjá Landsbankanum þar sem virðis- rýrnun útlána nam 13,4 milljörðum- króna á fyrri árshelmingi, þar af 8,2 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi sem bankinn segir að rekja megi „til þeirra aðstæðna sem hafa skapast í kjölfar COVID-19“ en samanlagt tap bankans á fyrri árshelmingi nemur 3,3 milljörðum króna. Hjá Íslandsbanka nam hagnaður- inn 1,2 milljörðum á öðrum ársfjórð- ungi en tapið 131 milljón á fyrstu sex mánuðum ársins. Neikvæð virðisbreyting útlána á fjórðungnum nam 2,4 milljörðum króna og sam- tals 5,9 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðunum og skýrist að mestu leyti af endurmati á mögu- legum áhrifum heimsfaraldurs vegna kórónuveiru á útlán á stigi 2 til fyrirtækja í ferðaþjónustu. Hjá Arion banka nam hagnaður- inn 4,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi en 2,7 milljörðum fyrstu sex mánuði ársins. Neikvæð virðisbreyting útlána minnkaði frá fjórðungi til fjórðungs hjá bankan- um og nam 918 milljónum á öðrum ársfjórðungi en 2,9 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. Í uppgjöri bankans segir þó að þörf geti skap- ast á frekari niðurfærslum á árinu á meðan gengið er í gegnum núver- andi efnahagsörðuleika. Olíu- og gasiðnaður ígildi ferðaþjónustu hér á landi Uppgjör Arion banka á öðrum ársfjórðungi var annars gott og að sögn Benedikts Gíslasonar banka- FRÉTTASKÝRING Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Kórónuveiran hefur vitanlega litað uppgjör bankanna það sem af er ári. Sé horft á hlutfall virðisrýrnunar útlána af heildarútlánum kemur Ar- ion banki best út úr samanburði ís- lensku bankanna. Nemur meðal- talshlutfall fyrstu tveggja ársfjórð- unga 1,02% hjá Arion banka,1,28% hjá Íslandsbanka en er áberandi hæst hjá Landsbank- anum og nemur 2,2%. Sé litið út fyrir landstein- ana virðast norrænu bankarnir enn sem komið er hafa sloppið betur en þeir íslensku. Líklega má rekja það til hlutfallslegs mikilvægis ferða- þjónustunnar fyrir þjóðarbúið en í stjóra hefur mikil áhersla verið lögð á að bæta reksturinn í þá átt að færa bankann frá áhættumeiri og stærri fyrirtækjalánum í að dreifa lánasafninu betur. Bankinn er með hátt hlutfall íbúðalána og hefur að mati Benedikts sýnt mikla ráðdeild í rekstri sem hefur skilað því að grunnrekstur bankans hefur batnað um 15% á milli ára. Í samhengi við virðisrýrnun út- lána íslensku bankanna í saman- burði við þá norrænu segir Bene- dikt hana hugsanlega skýrast af miklu vægi ferðaþjónustunnar hér á landi. „En á móti eru margir þess- ara norrænu banka með útlána- áhættu á olíu- og gasiðnaðinn sem hefur átt erfitt uppdráttar að und- anförnu. Mín kenning er sú að þessi iðnaður sé kannski ígildi ferðaþjón- ustunnar hér á landi. Sér í lagi fyrir norska bankann DNB. Af fyrstu yfirsýn sýnist mér að áætlanir fyrir einstaklinga geri ráð fyrir minni út- lánatöpum af lánum til einstaklinga en íslensku bankanir eru að meta. Ef það er hægt að draga einhverja ályktun má segja að íslensku bank- arnir hafi gengið lengra í virðis- rýrnun heldur en norrænir bankar þrátt fyrir að hafa ekki neina áhættu í olíuiðnaðinum sem er að valda hinum bönkunum mestum út- lánatöpum af einstökum geirum,“ segir Benedikt. Svartsýnni á efnahagshorfur „Það er alla vega ekki hægt að gagnrýna íslensku bankanna fyrir að hafa ekki gengið nógu langt í samanburði við norrænu bankana,“ bætir hann við og bendir einnig á þá miklu óvissuþætti sem virðisrýrn- unarmódel banka feli í sér. „En það virðist vera sem svo að íslensku bankarnir séu svartsýnni á efna- hagshorfurnar heldur en norrænu bankarnir. Sem er kannski að ein- hverju leyti eðlilegt þar sem við er- um háðari ferðaþjónustu en aðrir.“ Danske Bank skilaði 2,3 milljarða danskra króna hagnaði á öðrum árs- fjórðungi sem var 1,3 milljörðum umfram spár bankans. Virðisrýrnun á útlánum Danske Bank námu rúm- um milljarði danskra króna á öðrum ársfjórðungi sem er 76% minna en á fyrsta ársfjórðungi sem bar þyngsta byrði vegna kórónuveirunnar. Sam- tals nema útlánatöp bankans 5,3 milljörðum danskra króna á fyrstu sex mánuðunum og búast stjórn- endur bankans ekki við frekari niðurfærslum á árinu. Á fyrri árs- helmingi nemur hagnaður bankans einum milljarði danskra króna sam- anborið við 7 milljarða á fyrri árs- helmingi 2019. Norræni bankinn Nordea er stærsti banki Norðurlandanna og þar vógu útlánatöp vegna kórónu- veirunnar þungt á öðrum ársfjórð- ungi. Hagnaður bankans nam 243 milljónum evra á öðrum ársfjórð- ungi, en 703 milljónum á fyrstu sex mánuðunum og dregst saman um 37% í samanburði við sama tímabil í fyrra. Umfangsmikil útlánatöp vegna kórónuveirunnar eru höfuð- orsökin, m.a. í olíu- og gasiðnaði. Þau námu 698 milljónum evra á öðr- um ársfjórðungi og voru 69% hærri en spár sérfræðinga sögðu til um en þau námu 154 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi. Norski bankinn DNB skilaði 5 milljarðra norskra króna hagnaði. Þar dróst virðisrýrnun útlána sam- an um 63% á milli fjórðunga en þau námu 5,8 milljörðum norskra króna á fyrsta ársfjórðungi en 2,1 milljarði á þeim næsta, sem að stærstum hluta til má rekja til kórónuveir- unnar og lána tengdum olíu- og gas- iðnaði. Útlitið var nokkuð gott hjá Handelsbanken í Svíþjóð þar sem hagnaður nam tæpum fjórum millj- örðum sænskra króna á öðrum árs- fjórðungi, líkt og á þeim fyrsta. Út- lánatöpin þar voru takmörkuð, rétt um 97 milljónir sænskra króna á öðrum ársfjórðungi og drógust sam- an um 82%, og voru 0,04% að með- altali sem hlutfall af heildarlánum fyrstu sex mánuðina, enda er bank- inn með hátt hlutfall íbúðalána af heildarlánasafni bankans. Veiran vegur þyngra á Íslandi  Virðisrýrnun útlána íslensku bankanna er hlutfallslega meiri en þeirra norrænu  Útlán til ferða- þjónustu vega þungt  Arion banki kemur best út af íslensku bönkunum en Landsbankinn verst Virðisrýrnun útlána Hlutfall rýrnunar á ársgrundvelli á 1. og 2. ársfjórðungi 2020 1. ársfj. 2. ársfj. Meðaltal 1. og 2. ársfj. Arion banki 1,52% 0,52% 1,02% Landsbanki 1,80% 2,60% 2,20% Íslandsbanki 1,52% 1,04% 1,28% DNB 1,36% 0,51% 0,94% SEB 0,30% 0,60% 0,45% Handelsbanken 0,08% 0,003% 0,04% Swedbank 0,50% 0,30% 0,40% Nordea 0,30% 1,20% 0,75% Danske Bank 0,70% 0,20% 0,45% Benedikt Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.