Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020 Til sölu, Njarðarbraut 20, 260 Njarðvík Tjarnargata 12 ehf. og Reykjanesbær auglýsa til sölu byggingu að Njarðarbraut 20, 260 Njarðvík. Verið er að vinna nýtt deiliskipulag á svæðinu og er byggingin samkvæmt því víkjandi. Óskað er eftir tilboðum í eignina auk hugmynda um nýtingu á svæðinu. Sérstaklega verður horft til samspils áætlana við markmið fyrirhugaðs deiliskipulags. Tilboðum skal skila inn eigi síðar en mánudaginn 7. september 2020. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum netfangið fasteignir@reykjanesbaer.is Aron Þórður Albertsson Jóhann Ólafsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Ríkisstjórn Íslands tilkynnti í gær um hertar aðgerðir vegna út- breiðslu faraldurs kórónuveirunnar hér á landi. Frá og með 19. ágúst þurfa allir sem koma til Íslands að fara í skimun á landamærum. Þá verður sömu aðilum gert skylt að fara í fjögurra til sex daga sóttkví auk annarrar sýnatöku að henni lokinni. Þetta var meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi ríkis- stjórnarinnar í Safnahúsinu í gær. Um er að ræða innleiðingu reglna samkvæmt fimmtu tillögu Þórólfs Guðnasonar sóttvarna- læknis, en hann hafði fyrr í vikunni lagt fram níu tillögur vegna að- gerða á landamærunum. Hefur ákvörðunin í för með sér að farþeg- ar frá „öruggum svæðum“, sem fram til þessa hafa sloppið við skimun, þurfa að undirgangast sama ferli og aðrir. Það sama mun gilda um einstaklinga sem ætla að dvelja í yfir tíu daga hér á landi. Áður fóru þeir í svokallaða heimkomusmitgát sem fylgt var eftir með annarri sýnatöku eftir fjögurra til sex daga dvöl. Verður heimkomusmitgát því lögð niður. Gjald verður tekið fyrir sýnatöku á landamærum eins og verið hefur hingað til. Seinni sýnataka verður áfram að kostnaðarlausu. Lífið verði eðlilegt að nýju „Þegar við lögðumst yfir þá val- kosti sem sóttvarnalæknir lagði til okkar, þá í raun beittum við bara þeirri aðferð að útiloka suma þeirra og aðra tókum við til nánari skoð- unar. Því meira sem við lágum yfir þessu, ekki bara út frá sóttvarna- sjónarmiðum heldur líka hag- rænum og samfélagslegum sjón- armiðum þá var niðurstaða okkar sú að það væri skynsamlegast að grípa inn í tiltölulega fast og geta þá slakað á síðar,“ segir Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra um ákvörð- un ríkisstjórnarinnar. Segir hún að horft hafi verið til þess að hægt verði að lifa eins eðli- legu lífi innanlands og kostur er. Þá hafi innanlandssmit síðustu vikna vegið þungt. „Rökin eru tvenns konar, í fyrsta lagi auðvitað þessi innanlandssmit, en það eru ekki þau ein og sér sem ráða þessari ákvörðun heldur í raun og veru þessi þróun sem við sjáum bara alls staðar í kringum okkur. Við erum með faraldur í vexti og það eru auðvitað stærstu rökin. Hugs- unin er líka sú auðvitað að við getum slakað á takmörkunum hér innan- lands, með það leiðarljós ávallt að samfélagið geti gengið áfram. Þar erum við að hugsa um skólana, íþróttirnar, menninguna og bara allt sem okkur finnst mikilvægt og skiptir okkur máli sem samfélag að gera.“ Staðan endurmetin sem fyrst Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir ferðamálaráðherra segir að ákvörðunin hafi verið gríðarlega erf- ið. Aðgerðirnir séu þó nauðsynlegar. „Það eru mikil vonbrigði að vera í þessari stöðu og það er ekki auðvelt að ákveða eitthvað svona. Staðan í löndunum í kringum okkur er ein- faldlega sú að veiran er í vexti og það eitt og sér hefur augljóslega mikil áhrif á ferðavilja fólks,“ segir Þórdís og bætir við að hún vonist til að hægt verði að aflétta takmörk- unum sem fyrst. Þannig verði hugs- anlega hægt að einfalda sýnatöku ákveðinna landa. „Ég hef lagt mjög mikla áherslu á það að þetta verði endurskoðað og það rætt hvenær megi slaka á þessari ráðstöfun að nýju. Við náttúrulega miðum að því að ganga ekki lengra en þörf þykir á hverjum tíma, þannig að nákvæm- lega hvenær verður slakað á þessari ráðstöfun verður bara að koma í ljós en það þarf að endurskoða þetta fljótt og þá reglulega.“ Hagkvæmt að herða kröfur Að sögn sóttvarnalæknis verður erfitt að framkvæma fram- angreindar aðgerðir. „Þetta verður ekki auðvelt í framkvæmd. Þetta krefst mikils mannaafla í skimun og í veirurannsóknum. En ef okkur tekst að framkvæma þetta vel og gera þetta eins og við viljum þá á það að lágmarka áhættuna á að veir- an komist hér inn,“ segir Þórólfur og bætir við að umrædd ráðstöfun feli í sér lágmarksáhættu. Það þýði þó ekki að veiran komist ekki inn fyrir landamærin. „Það eru margar áskoranir samt sem áður. Veiran getur alveg komist inn. Það er engin aðferð til sem kem- ur algjörlega í veg fyrir það.“ Talið nauðsynlegt að herða aðgerðir við landamærin  Allir látnir sæta fjögurra til sex daga sóttkví  „Ekki auðvelt í framkvæmd“ Morgunblaðið/Eggert Fundur Aðgerðirnar voru kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar sem haldinn var í Safnahúsinu í gær. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Útlit er fyrir að innanlandssmit kór- ónuveiru haldi áfram að greinast nær daglega út þennan mánuð og inn í fyrstu viku septembermánaðar, ef marka má nýja spá vísindamanna við Háskóla Íslands, embætti landlæknis og Landspítalann sem gefin var út í gær. Spáin nær til næstu þriggja vikna, eða til 4. september, en segir ekki til um þróunina þar eftir. Tekur spáin ekki til ytri þátta, heldur er ein- vörðungu horft til fjölda smita. Hafa aðgerðir stjórnvalda af þeim sökum engin áhrif á líkanið. Líkaninu sem rannsóknarteymið hefur þróað er beitt á fyrirliggjandi gögn um veiruna til að reyna að meta þróun faraldursins. Sett eru fram nokkur spábil, sem gefa líkur á því að fjöldi nýrra tilfella verði innan tiltek- inna marka. Þannig sýnir dekksta svæðið á grafinu hér til hliðar 50% spábil. Af því má ráða að hvern dag sem spálíkanið nær til eru yfir helm- ingslíkur á að hér greinist nýtt innan- landssmit, þótt þróunin sé niður á við. Næstu daga er gert ráð fyrir að lík- legast sé að fjöldi virkra smita á dag verði á bilinu 1-4. Í spánni er horft til annarrar bylgju faraldursins, sem miðað er við að hafi hafist 23. júlí þeg- ar smit greindist innanlands í fyrsta sinn í þrjár vikur. Síðan þá hafa 128 smit greinst innanlands. Uppsafnað- ur fjöldi smita í annarri bylgju eftir þrjár vikur, þegar spánni sleppir, er líklegur til að vera um 150, en taldar eru 5% líkur á að fjöldinn fari yfir 300. Smitum fækki hægt og bítandi næstu vikur  Spá tekur ekki tillit til aðgerða Greind smit og spá fyrir næstu þrjár vikur Fjöldi daglegra smita innanlands frá 23. júlí og spá frá 14. ágúst 300 200 200 100 0 20 15 10 5 0 júlí ágúst sept. júlí ágúst sept. Heimild: Háskóli Íslands Uppsafnaður fjöldi smita innanlands frá 23. júlí og spá frá 14. ágúst Líklegasta útkoma Minni líkur skv. spálíkani Rauntölur til 13. ágúst Líklegasta útkoma Minni líkur skv. spálíkani Rauntölur til 13. ágúst 14. ágúst 14. ágúst „Að mínu mati er þetta rétt ákvörðun. Þetta snýst um okkar hags- muni, hagsmuni Íslend- inga,“ segir Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri Hertz á Íslandi. Segir hann að aðgerðin muni reynast ferðaþjónustunni erfið. Hún sé þó rétt- lætanleg. „Rök sóttvarnayfirvalda vega þyngra en rök ferðaþjónustunnar. Við treystum sóttvarnayfirvöldum og ríkis- stjórninni til að taka bestu ákvarðanirnar í stöðunni. Hitt verðum við að leysa síðar.“ „Við höfum verið að gera ráð fyrir því, allt frá því í vor, að þetta gangi svolít- ið upp og niður í alllangan tíma,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair, en tekur fram að aðgerðirnar breyti áætlunum flugfélags- ins ekki neitt. Þó hafi þetta vissulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna. „Okkar áætlanir breytast ekki neitt við þetta. Auðvitað hefur þetta áhrif á trafík- ina til skemmri tíma og hefur verulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna.“ „Ég sé ekki annað en þetta stöðvi allar komur ferðamanna til landsins, eða nánast allar. Það kemur enginn hingað til að vera hér í sóttkví og ég held að þau sem taka þessa ákvörðun geri sér alveg grein fyrir því,“ segir Kristófer Oliversson, for- maður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjón- ustu og framkvæmdastjóri Center- hótela. Erfiðir tímar séu fram undan og landið verði í raun lokað ferðamönnum. Áform- um fyrirtækisins um endurráðningar verði slegið á frest. „Það er alveg klárt að það eru bara sóttvarnasjónar- mið sem ráða för. Þetta er bara eins og skyndilok- un sem nær yfir landið og miðin,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust- unnar. Sóttkví og önnur skimun þýði lok- un landsins. Uppsögnum muni taka að fjölga á ný, enda sé íslensk ferðaþjón- usta nú í raun lokuð erlendum ferða- mönnum. „Ferðamenn koma ekki til landsins til að sitja í sóttkví í fjóra daga.“ Viðbrögð ferðaþjónustu ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.