Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Betra er að hafa elskað og
misst, en að hafa aldrei elskað
yfir höfuð sagði skáldið ein-
hvern tímann. Undanfarnar vikur
og mánuði hef ég byrjað að vé-
féngja sannleiksgildi þessa
spakmælis samhliða því hvernig
ástin rennur mér sífellt úr greip-
um.
Fyrsti missirinn var í vor,
þegar heimsfaraldur kippti und-
an mér fótunum þegar ég var
rétt að komast á skrið. Stutt var
í örlagastundir stærstu deilda
Evrópu þar sem menn hljóta
vegsemd og frægð í stærstu
leikjunum. Þá var komin sú
stund í Meistaradeildinni þar
sem menn duga eða drepast,
sjálfri útsláttarkeppninni. Og þá
kom skellurinn. Veiruskrattinn
óð yfir byggðir heimsins og fót-
boltinn var flautaður af.
Við tók hvimleið bið. Verður
yfir höfuð hægt að ljúka keppni?
Verður eitthvert Íslandsmót? Jú,
við komumst yfir hæðina. Hægt
var að klára sparkið erlendis og
Evrópukeppnir eru orðnar að
hraðmótum sem svipar helst til
stórmóta landsliða. Alls staðar
er spilað fyrir luktum dyrum en
eitthvað er betra en ekkert. Þá
hófst Íslandsmótið, að vísu
seint en hófst þó.
Byrjunin reyndist þó gáleys-
isleg. Boltaþyrstir Íslendingar
flykktust á völlinn og gerðu tón-
listarmönnum og partífólki skrá-
veifu. Upp komst um smit á fót-
boltamóti í Laugardalnum og
önnur veirubylgja setti allt í bak-
lás. Íslandsmótinu var frestað.
Íslandsmótið er nú byrjað
aftur en ég þori ekki að láta mig
dreyma, ekki alveg strax. Ég
ætla að ganga hægt um gleðinn-
ar dyr að þessu sinni. Ég ræð
ekki við annan missi og í raun,
ef að honum kemur, mun ég
óska þess að hafa bara aldrei
elskað til að byrja með.
BAKVÖRÐUR
Kristófer
Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
FH af alvöru í toppbaráttu
FH vann á heimavelli meistaranna KR búið að tapa jafnmörgum leikjum og
allt síðasta sumar Grótta náði í stig gegn taplausum Stjörnumönnum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Superman KR-ingurinn Óskar Örn Hauksson í áhugaverðum loftfimleikum í baráttu við Guðmann Þórisson úr FH.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tækling Þorsteinn Már Ragnarsson úr Stjörnunni leitar leiða fram hjá Kristófer Melsted úr Gróttu í gærkvöldi.
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Pepsi Max-deild karla í fótbolta
sneri aftur eftir tæplega þriggja
vikna frí í gærkvöld með tveimur
leikjum. FH-ingar voru sigurveg-
arar gærkvöldsins því þeir eru
komnir í alvörutoppbaráttu eftir 2:1-
útisigur á Íslandsmeisturum KR í
Vesturbænum. Á sama tíma mis-
steig Stjarnan sig á heimavelli á
móti nýliðum Gróttu og þurfti að
sætta sig við eitt stig, 1:1.
Daníel hetja FH-inga
KR átti fleiri skot en andstæðing-
urinn úr Hafnarfirðinum, en Daníel
Hafsteinsson reyndist hetja FH og
gerði bæði mörkin. Hefur hann verið
einn besti leikmaður FH í sumar.
„Vel var staðið að báðum mörkum
FH og Daníel sýndi að hann er
hættulegri í sókninni en margan
grunar. Hefur maður frekar litið á
hann sem varnarsinnaðan miðju-
mann en hann tímasetti hlaupin inn í
teiginn afar vel og skoraði bæði
mörkin. Eggert Gunnþór kemur
með líkamlegan styrk og reynslu inn
á miðjuna. Hann skilaði boltanum
ekki alltaf vel frá sér en allir vita að
hann er mjög sterkur í návígjum og
getur tengt saman vörn og miðju,“
skrifaði Kristján Jónsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Eggert Gunnþór Jónsson spil-
aði sinn fyrsta leik í efstu deild og
sinn fyrsta leik hér á landi síðan
hann lék með Fjarðabyggð í 2. deild
2005.
Grótta bítur frá sér
Gróttumenn eru töluvert kátari
með eitt stig en Stjarnan eftir 1:1-
jafntefli á Samsung-vellinum. Grótta
hefur sýnt fína takta á köflum í sum-
ar og má ekki stíga af bensíngjöfinni
gegn sprækum Seltirningum.
Stjarnan er enn taplaus en hefur
ekki unnið í síðustu tveimur og að-
eins tvo af síðustu fimm. Stjörnu-
menn urðu kærulausir eftir að Guð-
jón Pétur Lýðsson kom þeim yfir og
Gróttumenn nýttu sér það og fengu
að lokum verðskuldað stig eftir jöfn-
unarmark Karls Friðleifs Gunn-
arssonar. Vinni Stjarnan þá leiki
sem liðið á inni fer það í toppsætið,
en til þess að það verði að veruleika
verða Garðbæingar að spila betur.
„Það var ákveðin værukærð sem
greip um sig hjá Stjörnumönnum í
stöðunni 1:0. Þeir voru yfir móti ný-
liðunum á heimavelli á fallegu föstu-
dagskvöldi og héldu eflaust ein-
hverjir Stjörnumenn að um þægilegt
kvöld yrði að ræða. Sú var heldur
betur ekki raunin,“ skrifaði undirrit-
aður m.a. um leikinn á mbl.is.
Guðjón Pétur Lýðsson skoraði
sitt fyrsta mark fyrir Stjörnuna í
átjánda deildarleiknum. Hefur hann
skorað 46 mörk í 208 leikjum í efstu
deild.
KR – FH 1:2
0:1 Daníel Hafsteinsson 15.
1:1 Kristján Flóki Finnbogason 42.
1:2 Daníel Hafsteinsson 75.
MM
Daníel Hafsteinsson (FH)
M
Gunnar Nielsen (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Guðmann Þórisson (FH)
Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Kennie Chopart (KR)
Finnur Orri Margeirsson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Dómari: Ívar Örn Kristjánsson – 7.
Áhorfendur: Ekki heimilt.
STJARNAN – GRÓTTA 1:1
1:0 Guðjón Pétur Lýðsson 26.
1:1 Karl Friðleifur Gunnarsson 75.
M
Jósef Kristinn Jósefsson (Stjörnunni)
Guðjón Pétur Lýðsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarss. (Stjörnunnni)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Arnar Þór Helgason (Gróttu)
Patrik Orri Pétursson (Gróttu)
Axel Sigurðarson (Gróttu)
Kristófer Melsted (Gróttu)
Karl Friðleifur Gunnarsson (Gróttu)
Kristófer Orri Pétursson (Gróttu)
Dómari: Þorvaldur Árnason – 8.
Áhorfendur: Ekki heimilt
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hef-
ur gert samning við kanadíska
markvörðinn Erin McLeod. Kemur
hún að láni frá Orlando Pride í
Bandaríkjunum út tímabilið.
McLeod er mikill reynslubolti og
hefur farið á fjögur heimsmeist-
aramót og tvenna Ólympíuleika
með kanadíska landsliðinu. Vann
hún brons á Ólympíuleikunum í
London. Markvörðurinn er 37 ára
og hefur leikið með liðum í Banda-
ríkjunum, Svíþjóð og Þýskalandi.
Stjarnan er í 8. sæti Pepsi Max-
deildarinnar með sjö stig.
Landsliðsmark-
vörður í Stjörnuna
Morgunblaðið/Eggert
Kanada Erin McLeod er landsliðs-
markvörður Kanada.
Fram og ÍBV gerðu ótrúlegt 4:4-
jafntefli í Lengjudeild karla í fót-
bolta á Framvellinum í Safamýri í
gærkvöld. ÍBV komst í 4:2, en
Framarar neituðu að gefast upp.
Bjarni Ólafur Eiríksson, Tómas
Bent Magnússon, Felix Örn Frið-
riksson og Gary Martin skoruðu
mörk Eyjamanna á meðan Fred,
Þórir Guðjónsson og varamennirnir
Tryggvi Snær Geirsson og Aron
Snær Ingason gerðu mörk Fram.
Jafnaði Aron metin í uppbótartíma.
ÍBV er í öðru sæti með 19 stig og
Fram í þriðja með 18.
Átta marka jafn-
tefli í Safamýri
AFP
Safamýri Fram og ÍBV gerðu ótrú-
legt jafntefli í Safamýri í gær.
KKÍ hefur ráðið
Danielle Ro-
driguez til starfa
sem aðstoð-
arþjálfara í lands-
liði kvenna í
körfubolta. Bæt-
ist hún í þjálf-
arahóp Benedikts
Guðmundssonar
en honum til að-
stoðar er fyrir
Halldór Karl Þórsson og nýtur
Benedikt því nú liðsinnis tveggja að-
stoðarþjálfara.
Sem leikmaður hefur Danielle
leikið hér á landi við góðan orðstír;
fyrst í þrjú tímabil með Stjörnunni
og svo sl. vetur með KR. Öll tímabil-
in hefur hún verið meðal hæstu leik-
manna í helstu tölfræðiþáttum Ís-
landsmótsins.
Sem þjálfari var hún meðal ann-
ars aðstoðarþjálfari U20 liðs kvenna
sumarið 2019. Lagði hún skóna á
hilluna eftir síðasta tímabil og hefur
nú helgað sér þjálfarastörfum. Verð-
ur hún sömuleiðis aðstoðarþjálfari
mfl. karla í Stjörnunni í vetur.
„KKÍ er mjög ánægt með að hafa
fengið Danielle til liðs við sig og
njóta krafta hennar og visku í þjálf-
arateyminu og fyrir komandi verk-
efni landsliðsins,“ segir í fréttatil-
kynningu sem Körfuknattleikssam-
band Íslands sendi frá sér í gær.
Í landsliðs-
þjálfara-
teymið
Danielle
Rodriguez